Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 4
 Demókratar á Bandaríkjaþingi láta engan bil- bug á sér finna í rimmunni við Hvíta húsið um viðbótarfjárfram- lög vegna Íraksstríðsins. Öld- ungadeild þingsins hefur nú einn- ig samþykkt frumvarp þar sem kveðið er á um að bandaríska her- liðið í Írak skuli kallað heim fyrir lok mars á næsta ári, gegn því að þingið leggi blessun sína yfir þau milljarða dala viðbótarútgjöld sem forsetinn hefur farið fram á til að standa straum af kostnaðinum við að halda heraflanum í Írak. „Við vonum að forsetinn láti sér skiljast hver alvara okkar er,“ sagði Harry Reid, leiðtogi þing- meirihluta demókrata, eftir að öldungadeildin greiddi atkvæði um lagafrumvarpið um viðbótar- útgjöldin. Atkvæði fóru 50-48. Er öldungadeildin hóf í gær aftur umræðu um frumvarpið, sem kveður á um 122 milljarða dala viðbótarútgjöld, andvirði 8.174 milljarða króna, ítrekaði George W. Bush forseti að þessi samþykkt þingsins myndi ekki þvinga sig til samningaviðræðna, heldur myndi hann hiklaust beita neitunarvaldi sínu ef frumvarp- ið innihéldi ákvæði um frest til að kalla herliðið heim. „Þingheimur verður að hætta að gefa út pólitískar yfirlýsing- ar, byrja að veita nauðsynlegu fé til hermanna okkar og koma frum- varpi á borðið hjá mér sem ég get undirritað og veitt lagagildi,“ segir í texta ræðu sem Bush hugð- ist flytja á landsfundi nautakjöts- framleiðenda í Washington. Hvíta húsið birti fyrirfram útdrætti úr ræðunni. „Bregðist þingið þeirri skyldu sinni að setja lög um fjár- veitingar til hermanna okkar í fremstu víglínu, mun bandaríska þjóðin vita hverja hún á að draga til ábyrgðar,“ segir einnig í ræð- unni. En Reid og aðrir demókratar sögðu að þeir hygðust hvergi hvika. „Í stað þess að hafa í öllum þeim hótunum sem hann hefur gert, væri forsetanum nær að vinna með okkur að því að finna út úr því hvernig hægt er að uppfylla vilja meirihluta beggja þingdeilda og þoka málinu áleiðis,“ sagði Reid. Hliðstætt frumvarp var sam- þykkt í fulltrúadeild þingsins í síðustu viku, með 218 atkvæð- um gegn 212. Frumvörp beggja deilda þarf að samræma áður en hið endanlega frumvarp fer inn á borð til forsetans til undirritunar. Synji forsetinn frumvarpinu stað- festingar fer það aftur til þings og þarf að samþykkjast með auknum meirihluta ef það á að öðlast laga- gildi. Báðar deildir Banda- ríkjaþings setja frest Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur nú einnig samþykkt frumvarp sem inni- heldur ályktun um að bandaríska herliðið í Írak skuli kallað heim í áföngum fyr- ir marslok á næsta ári. George W. Bush forseti hefur áfram í hótunum við þingið. Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 „Það má birta allnokkuð fyrir þennan pening, sérstak- lega þegar litið er til þess hversu skammt er til kosninga,“ segir Magnús Loftsson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hvíta hússins, um samkomulag stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi sem felur í sér takmörkun á kostnaði til auglýsinga. Stjórnmálaflokkarnir eru mislangt komnir við að undirbúa aug- lýsingaherferðir fyrir kosningarnar 12. maí en samkvæmt sam- komulagi þeirra ber þeim að takmarka kostnað við auglýsingar við 28 milljónir króna. Magnús Loftsson segir líklegt að flokkarnir hefji herferðir sínar fljótlega eftir páska. „Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking- in eru með landsfundi á tímabilinu 12.-15. apríl og svo eru kosning- arnar 12. maí. Reikna má með því að fullur þungi í auglýsingum þessara flokka hefjist um svipað leyti og landsfundirnir eru haldn- ir og jafnvel eftir þá.“ Samkomulag flokkanna um takmörkun á auglýsingum er hið fyrsta sem flokkar gera með sér síðan 1991. Capacent hefur eftir- lit með því að samkomulaginu verði fylgt. Nægir peningar til auglýsinga Þrítugur karlmað- ur var handtekinn á höfuðborgar- svæðinu um miðjan dag í fyrra- dag, þar sem hann var staðinn að sölu fíkniefna. Maðurinn var staðinn að verki þegar hann var að selja karl- manni um tvítugt ætluð fíkniefni. Í bíl fíkniefnasalans fundust efni sem talin eru vera 20 grömm af hassi og 10 grömm af maríjúana. Í framhaldi af þessu var leitað á heimili hans og þar fundust til viðbótar 20 grömm af hassi. Yngri maðurinn var líka færður á lögreglustöð en málið er nú að mestu upplýst, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu. Tekinn við að selja fíkniefni Stjórn Læknafé- lags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að ein af þyrlum Land- helgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi Læknafélagsins á þriðjudag. Í ályktuninni segir að með því að staðsetja þyrlu á Akureyri megi stytta viðbragðstíma veru- lega, til dæmis ef slys verði á sjó úti fyrir Norðurlandi eða á há- lendinu norðan- og austanlands. „Markmið sérhæfðrar þyrlu- þjónustu sem þessarar hlýtur að vera að tryggja öllum landsmönn- um sem besta þjónustu. Það er álit stjórnar Læknafélags Íslands að allar þyrlur Landhelgisgæsl- unnar á einum stað á suðvestur- horninu mæti ekki þessari kröfu,” segir í ályktuninni. Vilja þyrlu á Akureyri Tarja Halonen, for- seti Finnlands, setti nýtt þing landsins er það kom í fyrsta sinn saman í gær eftir kosn- ingar sem fram fóru tíu dögum fyrr. Lýsti for- setinn yfir von- brigðum með litla kjörsókn en ánægju með að nú settust á þing fleiri konur en nokkru sinni áður. „Nú eru 84 konur á meðal ykkar, fleiri en nokkru sinni í sögu þings- ins fram til þessa. Ég mun fylgj- ast með því af áhuga hvernig þetta mun hafa áhrif á umræður og ákvarðanatöku,“ tjáði Halonen þingheimi. 200 fulltrúar eiga sæti á finnska þinginu. Ánægja með fjölgun kvenna Stjórn Fuglaverndar fer fram á að leyfi til þess að drepa sílamáva með eiturefnum verði afturkallað tafarlaust. Notkun eit- urefna til fugladráps hefur verið bönnuð lengi en nýlega veitti Um- hverfisstofnun Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen leyfi til að drepa hátt á annað þúsund síla- máva með eiturefnum í grennd við þéttbýli á höfuðborgarsvæð- inu. Í yfirlýsingu frá Fuglavernd segir að fráleitt sé að hefja iðju sem þessa að nýju enda hafi ekki verið sýnt fram á að mávar valdi það miklu tjóni. Þá bendir stjórn Fuglaverndar á að reynsla af notkun eiturefna sé afar slæm og slíkar aðgerðir hafi meðal annars orðið til þess að haferninum var nærri útrýmt á sínum tíma. Vilja að leyfi verði afturkallað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.