Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 6
 Leikskólastjóri vopnaður handsprengju og skot- vopnum hélt ásamt öðrum kenn- ara 32 leikskólabörnum og tveim- ur kennurum í gíslingu í rútu í gær. Gíslatakan, sem átti sér stað fyrir framan ráðhúsið í höfuðborg Filippseyja, Maníla, stóð yfir í tíu klukkustundir. Meðan á gíslatök- unni stóð fordæmdi leikskólastjór- inn, Jon Ducat, spillingu og krafð- ist betra lífs fyrir fátæk börn. Eftir að hafa verið fullvissaður um að nemendur hans myndu fá góða menntun setti Ducat pinnann í handsprengjuna sem hann hélt á og gafst upp. Bað hann börnin og lögregluna því næst afsökunar. Áður en Ducat gafst upp krafð- ist hann þess að kveikt yrði á hvít- um kertum í kringum rútuna. Sagði hann kertin vera aðvörun. „Ef ekki verður staðið við loforð- in þá munuð þið sjá þessi kerti á ný.“ Gíslatakan vakti heimsathygli og varpar ljósi á bágborið mennta- kerfi Filippseyja. Almenningsskól- ar þar eru margir hverjir í niður- níddum byggingum. Á síðasta ári voru meira en 17 milljónir grunn- skólanemenda í þeim. Mennta- málaráðherra landsins lýsti því yfir að næstum 7.000 skólastofur skorti fyrir alls 315.000 nemendur. Tók leikskólabörnin í gíslingu Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra kynnti í gær sam- komulag sem náðst hefur milli ís- lenska ríkisins og eigenda flutn- ingaskipsins Wilson Muuga um að gerð verði tilraun til að ná skipinu af strandstað. Stefnt er að því að skipið verði dregið í burtu á stór- straumsflóði 16. til 18. maí. Áætlaður kostnaður við verk- ið er 40 milljónir króna. Þar af munu 15 milljónir greiðast úr rík- issjóði. Útgerð skipsins greið- ir afganginn af kostnaðinum auk þess sem hún mun taka á sig 69 milljóna króna áfallinn kostnað vegna aðgerða við að koma í veg fyrir tjón af völdum brennsluolíu skipsins, en þeim aðgerðum er nú lokið. Eigendur skipsins, Nesskip hf., munu stjórna aðgerðum þegar skipið verður fjarlægt, en fulltrúi Umhverfsistofnunnar mun hafa eftirlit með verkinu. Wilson Muuga strandaði við Hvalsnes, skammt frá Sandgerði, 19. desember í fyrra. Deilur stóðu um hvaða lög giltu um hreinsun- arstarfið og fjarlægingu skips- ins þar sem útgerðarmennirn- ir héldu því fram að siglingalög giltu um bótaábyrgðina en stjórn- völd sögðu lög um mengun hafs og stranda í gildi í málinu. Jónína hafði meðal annars sagt á Alþingi í lok janúar að siðferðisleg, sam- félagsleg og lagaleg skylda hvíldi á eigendum skipsins að fjarlægja það af strandstað innan hálfs árs. Jónína var ánægð með að sam- komulag hefði náðst. Hún sagði ís- lenska ríkið taka þátt í kostnaðin- um vegna þess að hagsmunir væru settir í fyrrirúm. „Ef einhver rétt- aróvissa er um þetta þá hefði ekki fengist úr henni skorið endanlega nema fyrir dómstólum. En hlut- ur ríkisins er mjög lítill miðað við hlut útgerðarinnar í þessu.“ Guðmundur Ásgeirsson, stjórn- arformaður Nesskipa, sagði sam- komulagið viðunandi. „Miðað við að það var vond staða hjá báðum aðilum þá verður maður að vera sáttur við niðurstöðuna. Þetta er búið að taka svolítið langan tíma eins og gengur og gerist þegar menn eru með svona flækjufót fyrir framan sig eins og lög og túlkun þeirra.“ Guðmundur segir að mögulega sé hægt að fá allt að 25 milljón- ir fyrir flakið ef skipið næst í nú- verandi ástandi að bryggju. Hann sagði þá aðgerð þó áhættusama og líklega þyrfti tvo til þrjá drátt- arbáta í verkið. „Allir botntankar í skipinu eru líka rifnir og lekir. Við þurf- um að þétta flesta tankana og koma sjónum aftur úr þeim til að létta skipið þannig að það fljóti aftur. Það er engin önnur aðferð í stöðunni.“ Strand Wilson Muuga kostar ríkið milljónir Reynt verður að fjarlægja Wilson Muuga af strandstaðnum um miðjan maí. Kostnaðurinn við aðgerðina er áætlaður um 40 milljónir króna. Fimmtán millj- ónir greiðast úr ríkissjóði. Hagsmunir settir í fyrirrúm segir umhverfisráðherra. Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift! www.oryggi.is Hver vaktar þitt heimili um páskana? H im in n og h af / S ÍA Ungir lesendur lesa frekar Fréttablaðið en annan prentmiðil, samkvæmt nýrri lestr- arkönnun Capacent. Meðallestur á Fréttablaðinu mældist þannig 138 prósent umfram lestur á Morgun- blaðinu í aldurshópnum 18 til 34 ára. Meðallestur Fréttablaðsins, miðað við Morgunblaðið, er einnig meiri í öllum öðrum aldurshópum, af báðum kynjum. Lestur Blaðsins mælist nú nokkuð minni en í síðustu könn- un Capacent, sem var gerð í lok síðasta árs. Tæpur fjórðungur yngsta lesendahópsins, 16 til 29 ára, les Blaðið. „Það er mjög ánægjulegt að sjá að Fréttablaðið hefur svo sterka stöðu meðal yngri aldurshópa. Það má í raun segja að við höld- um dagblaðalestri lifandi meðal fólks undir fimmtugu, ef litið er á tölurnar. Hin blöðin virðast vera í grimmri varnarbaráttu,“ segir Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu í gær mælist Fréttablað- ið með 65,1 prósents meðallestur á tölublað. Morgunblaðið mælist með 43,6 prósenta lestur en Blað- ið rekur lestina með 38,3 prósenta lestur. Lestur á aukablöðum Frétta- blaðsins er einnig talsvert meiri en hjá samkeppnisaðilum í öllum aldursflokkum nema þeim elsta. Þannig er meðallestur fast- eignablaðs Fréttablaðsins 42,5 prósent meðal allra lesenda, en hliðstætt aukablað Morgunblað- ins mælist með 33,7 prósent. Þess má geta að fasteignablað Morgun- blaðsins er fríblað, því er dreift ókeypis. Markaður Fréttablaðsins mælist með 34 prósenta lestur en hliðstætt blað Morgunblaðsins með 25,3 prósenta lestur. Könnun Capacent var fram- kvæmd í gegnum síma. Mæld var dagleg lesning rúmlega 2.500 les- enda, fyrstu tvo mánuði þessa árs. Verða umhverfismál heitasta kosningamálið? Ætti að banna reykingar við akstur?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.