Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 10
Karlmaður og ung kona
hafa verið ákærð og kölluð fyrir
dómara, fyrir það meðal annars
að stela dekki ásamt felgu undan
bíl á bílastæði fyrir utan lögreglu-
stöðina á Selfossi í september í
fyrra.
Fólkið hafði verið stöðvað á bíl
að morgni mánudagsins 4. sept-
ember og reyndist maðurinn, sem
er 28 ára gamall, hafa ekið bíln-
um undir áhrifum „MDMA, kóka-
íns, amfetamíns og tetrahýdr-
ókannabínólsýru, frá Ölfusborg-
um, vestur Suðurlandsveg áleiðis
til Reykjavíkur“, eins og orðrétt
segir í ákæru. Maðurinn keyrði
út af á Hellisheiði og ók bíl sínum
„dágóðan spöl utan vegar í hrauni“
þar sem bíllinn skemmdist tölu-
vert.
Maðurinn og konan gistu í
fangageymslum lögreglu en var
sleppt úr haldi innan við sólar-
hring síðar.
Þá tók maðurinn sig til og skrúf-
aði dekk á felgu undan bíl sem var
á bílastæðinu fyrir utan lögreglu-
stöðina og setti undir bílinn sem
þau höfðu áður keyrt utan vegar.
Hann varð ökufær fyrir vikið en
var mikið skemmdur.
Konan og maðurinn eru meðal
annars ákærð fyrir að „hafa hag-
nýtt sér hjólbarðann til aksturs“
allt þar til lögreglan í Hafnarfirði
stöðvaði akstur mannins á um-
ræddum bíl ellefu dögum síðar.
Stálu dekki og settu undir bíl
Joe Borg, sem fer
með sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, kynnti í gær tillögu sem
hefur að markmiði að hamla gegn
brottkasti í fiskveiðiflota aðildar-
ríkjanna.
Nýju aðgerðirnar eru liður í
verndun þorskstofnsins í Norð-
ursjó og annarra fiskistofna sem
eru hætt komnir vegna ofveiði.
„Það er ekkert vit í brottkasti,
hvort sem er í umhverfislegu,
efnahagslegu eða siðferðilegu til-
liti. Því fyrr sem við fáum bund-
inn enda á þennan forkastan-
lega ósið, þeim mun betra,“ sagði
Borg.
Nýjar aðgerðir
gegn brottkasti
S. 444 5050www.vox.is
VOX Restaurant
Opi› flri.-lau.
18.30 - 22.30
VOX Bistro
Opi› alla vikuna
11.30 - 22.30
Nordica hotel
Su›urlandsbraut 2
vox@vox.is
VOX Bistro er me› n‡jan matse›il flar sem bo›i› er upp á
miki› úrval af ferskum og spennandi réttum. Lög› er áhersla
á afslappa› andrúmsloft, flægilega fljónustu og gott ver›.
VOX Restaurant er fullkominn veitingasta›ur fyrir flá sem unna
gó›um mat, fínu víni og fágu›u umhverfi. Í bo›i er a la carte
matse›ill flar sem sérhver réttur er einstök upplifun.
Njóttu fless a› gæ›a flér á gómsætum mat á VOX Bistro e›a
VOX Restaurant, Nordica hotel.
fyrir sanna sælkera
NÝR OG SPENNANDI BISTRO-SEÐILL
Sesarsalat 810 kr. / 1.270 kr.
Romaine salat, kjúklingur,
brauðkruður, parmesanostur
Andalæri 1.250 kr.
Sultað með appelsínugljáa, klettasalat
Norrænn tapas 1.650 kr.
Rækjur, birkireyktur lax, síld, kavíar, rúgbrauð
Nautalundir 2.900 kr.
Bernaise, franskar, romaine salat
Hlýri 1.850 kr.
Bygg, rauðvínssósa, rótargrænmeti
Nordica club 1.750 kr.
Kjúklingur, beikon, franskar
LÉTTIR RÉTTIR
AÐALRÉTTIR
DÆMI AF BISTRO-SEÐLI:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
7
2
4
Reglur sem talið er að
hafi verið brotnar með því sem kall-
að er í ákæru ólöglegar lánveiting-
ar Baugs til tengdra aðila eru svo
óskýrar að þar eru ekki heimild-
ir til að refsa einstaklingum, rétt
eins og í olíusamráðsmálinu fyrir
skemmstu.
Þetta sagði Gestur Jónsson, verj-
andi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
í munnlegum málflutningi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann
sagði lagagrein hlutafélagalaga
sem ákært er vegna þannig upp
byggða að það sé ekki einstaklingur
sem sé gerandi, sem veiti lán, held-
ur hlutafélagið.
Refsingin sem tiltekin er eru sekt-
ir eða fangelsi allt að tveimur árum.
Gestur sagði alveg ljóst að óheimilt
sé að draga stjórnendur til ábyrgðar
nema það sé skýrt heimilað í lögum,
og það sé einfaldlega ekki í þessu
tilviki, enda hafi aldrei fallið dómur
þar sem ákært var á grundvelli
þessarar lagagreinar hér á landi.
Benti hann ennfremur á að í þess-
ari sömu lagagrein sé ákvæði sem
verði ekki túlkað öðruvísi en að
séu ólögmæt lán endurgreidd með
dráttarvöxtum sé brotið ekki leng-
ur til staðar og ekki hægt að ákæra.
Þetta sé ólíkt lagaákvæðum um
fjárdrátt og virðisaukaskatt, þar
sem ekki skipti máli þó endurgreitt
sé eftirá.
Gestur fjallaði í ræðu sinni um
meint ólögmæt lán, og sagði í raun
furðulegt að saksóknari hafi ekki
fallið frá þeim ákæruliðum sem
snúa að þeim eftir dóm Hæstarétt-
ar í fyrra Baugsmálinu sem kveðinn
var upp í janúar síðastliðnum,
en þar skilgreindi dómurinn
hvað átt væri við með orðinu
lán. Ljóst sé af þeim dómi
að ekki sé um ólöglegar
lánveitingar að ræða.
Jakob R. Möller, verj-
andi Tryggva Jónssonar,
hóf sinn málflutning í gær. Hann
gagnrýndi Sigurð Tómas Magnús-
son, settan ríkissaksóknara, fyrir
að hafa ekki gætt jafnt að því sem
bendi til sýknu og því sem bendi
til sektar, eins og honum hafi borið
að gera. Jakob sagði Sigurð Tómas
hafa beitt Morfís-brögðum í mál-
flutningi sínum fyrr í vikunni, en
Morfís er ræðukeppni framhalds-
skólanema. Hann hafi gert lítið
úr sakborningum og slíkt sé
ekki saksóknara sæmandi.
Jakob gagnrýndi einnig
rannsókn lögreglu og endurskoð-
enda í þeirra þjónustu. Ákært sé
fyrir bókhaldsfærslur sem sagðar
eru hafa haft áhrif á ársreikning
Baugs, en meta verði reikninginn
sem eina heild. Lögregla hafi ekki
framkvæmt heildstætt mat á árs-
reikningnum og þeim tölum sem
þar standa að baki, sem sé óskilj-
anlegt.
Ekki hægt að sakfella
vegna meintra lána
Verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sagði ekki hægt að sakfella vegna meintra
ólöglegra lánveitinga þar sem ekki sé heimild í lögum til að dæma einstaklinga
fyrir slík brot. Annar verjandi sakaði saksóknara um að beita Morfís-brögðum.
Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri
Baugs Group,
hefur verið beð-
inn um að finna
tíma til að mæta
í yfirheyrslur
hjá efnahags-
brotadeild ríkis-
lögreglustjóra
vegna rann-
sóknar á meint-
um skattalaga-
brotum nokkurra einstaklinga
tengdum Baugi Group.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, greindi frá þessu við
upphaf málflutnings hans í hér-
aðsdómi í gær. Hann sagðist þar
hafa fengið bréf þar sem óskað
var eftir því að hann fyndi tíma
til að koma í yfirheyrslur með
skjólstæðingi sínum seinnipartinn
í apríl.
Boðaður í yfir-
heyrslu í apríl
BAUGS M Á L I Ð