Tíminn - 23.09.1979, Page 27

Tíminn - 23.09.1979, Page 27
Sunnudagur 23. september 1979 27 Jazzvakning til lífsins Jazzvakning, kltibbur jazz- áhugafólks, hefur sitt fimmta starfsár nú f vetur. Fjóröa starfs- ári félagsins lauk sfbastliOið vor með tónleikum jazzpianistans Duke Jordan. Jazzvakning hélt ekki úti neinu skipulögðu starfif sumar, en unn- ið var að undirbúningi ýmissa mála sem tekin verða á dagskrá félagsins á vetri komanda. A undanförnum árum hefur jazzlif sffellt eflst hérlendis með fjölbreyttara starfi Jazzvakning- ar ár hvert. Fyrir rúmu ári hóf félagiðað flytja inn erlenda lista- menn til að leika jazz fyrir al- menning. Þessi nýbreytni hefur mælst vel fyrir, þó misvel hafi verið mætt á tónleika þá er Jazz- vakning hefur boðið upp á. Til aö mynda, komu ekki nema um það bil 600 manns á tónleika Dexters Gordon siðastliðið haust, og nú i vor sóttu aðeins um það bil 500 manns tónleika Art Blakey og Jazzmessengers. Aftur á móti hefur mesta aðsókn aö tónleikum Jazzvakningar tvímælalaust ver- ið þegar Tri'ó Niels Henning ör- sted Pedersen lék hér i april 1978. Þá sóttu um 1000 manns tónleik- Þrátt fyrir að islenskt jazz- áhugafólk hafi með dræmri þátt- töku sinni sýnt heldur litinn sam- hug með starfsemi Jazzvakning- ar, er ætlun félagsins að halda á- fram þrotlausu starfi i vetur. Þann 29. september nk. hefst raunverulega fimmta starfsár Jazzvakningar.þvi að þá eru liðin 4ár frá stofnun félagsins. Verður afmælisins rækilega minnst með tónieikum bandariska trompet- leikarans John McNeal fimmtu- daginn 4. október. Með John McNeal koma til landsins þrir tónlistarmenn sem skipa kvartett hans. John McNeal er mjög upprennandi trompet- leikari og hefur hann stundum verið nefndur sem einn af arftök- um Miles Davis. McNeal er 31 árs að aldri og hefur hann starfað meö hljómsveit jazzpianistans Horace Silver (sem stofnaöi Jazz Messengers ásamt Art Blakey ár- ið 1955), en er nýlega búinn að stofna eigin kvartett. 1 kvartetti McNeal eru þrir ungir tónlistarmenn, Tom Warrington er 28 ára gamall bassaleikari, sem starfaö hefur með stórhljómsveit trommuleik- arans Buddy Rich. Trommuleik- ari kvartettsinser aðeins tvi'tugur að aldri. Þrátt fyrir lágan aldur á Mike Hymanað baki fjögurra ára atvinnuferil með ýmsum góðum mönnum. Hann hefur m.a. leikið með Joe Henderson og I hljóm- sveit saxófónleikarans Gerry Mulligan. Nýjasti meölimur kvartettsins er gitarleikarinn Bill Bickford. Hann er aðeins 23 ára gamail. John McNeal hefur gefið út tvær sólóplötur á danska jazz- merkinu Steeple Chase, en sú þriðja kemur væntanlega á markað i nóvember nk. Auk tónleika kvartetts John McNeal mun Jazzvakning fyrir- huga aöra tónleika fyrir jól og tónleika stórhljómsveitar Clark Terry i febrúar næsta ár. Jazzvakning hefur i' hyggju að standa að sýningu jazzkvik- mynda i Laugarásbiói, ef kostur gefst i' vetur og aö auki að stuðla að kynningum jazzhljómplatna og kynningu á einstökum jazz- listamönnum af plötum. Nú þegar er hafin söfnun heim- ilda um íslenskt jazzlíf fyrr og nú. Er þetta verkefni mjög brýnt, þar eð viða liggja heimildir, svo sem hljóöritanir og annað, undir skemmdum ef ekki er að þeim hugaö i ti'ma. Það mun ætlun Jazzvakningar með þessari heimildasöfnun, að leggja grunninn að varðveislu jazzsögu Islands og minja um hana. Eruallir sem gefið geta upplýs- ingar um muni eða minjar sem varða jazzsögu tslands, hvattirtil að hafa samband við forráða- menn Jazzvakningar á skrifstofu félagsins að Laugavegi 42. Land Rover díesel '72 Til sölu er Land Rover diesel lengri gerð með mæli og útvarpi. Góður bfll. Upplýsingar i sima 91-23020 eftir kl. 6 á kvöldin. Framtíðarstarf Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri óskar að ráða starfsmann við vinnurann- sóknir o.fl. Tæknimenntun æskileg. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri i sima 96-21900. Iðnaðardeíid Akureyri ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA BANDAfi breflrt ekki A erfiöum vegum og vegleysum, þegar álagió er mest, stendur Bandag sig best. Þess vegna velja flutningabilstjórar, rallökumenn, jeppaeigendur og aðrir bileigendur kaldsólaða Bandag hjólbaröa sem bregðast ekki. Nú er rétti timinn til að setja Bandag snjóhjólbaröa undir bilinn. Art Blakey. Mánudagsmynd Háskóla- bíós Næsta mánudagsmynd Há- skólabíós verður franska myndin FORSJÓNIN (Providence) sem Alain Resnais gerði 1977. Hún fjallar um aldurhniginn rithöf- und að nafni Clive Langham sem þjáist af sársaukafullum sjúk- dómi og á i harðri baráttu viö dauðann. Til aðflýja frá sársaukanum og drepa timann sviðsetur hann i huga sér ýmis atvik þar sem börn hans skipa stórt hlutverk. Sem dæmi um uppbyggingu myndar- innar þá imyndar rithöfundurinn sér i einu atriðanna son sinn Claud, sem er lögfræðingur að mennt, flytja mál á hendur her- manni, sem átti að hafa drepið gamlanmann. Siðar kemur þessi sami hermaður i heimsókn til konu Claud, sem reynir að not- færa sér heimsóknina til að ögra eiginmanni sinum. Allir draumar eða imyndanir rithöfundarins eru i þessum dúr og það er ekki fyrr en i lok myndarinnar að greiðast fer úr flækjunni. Þá á Langham 78áraafmæli og býðuröllum vin- um og kunningjum til veislu á landareign sinni. Þar leysast málin og þegar gestirnir hverfa á brott er hann einn eftir, umvafinn hugsunum sinum en þó búinn að öðlast sálarró. Margt þekktra leikara fer með stór hlutverk i myndinni. Má þar nefna John Gielgud i hlutverki rithöfundarins og Dirk Bogarde og Ellen Burstyn ihlutverki sonar hans og tengdadóttur. David Warner leikur hermanninn. Tón- listin er samin og stjórnað af MiklosRózsa og flutt af National Philharmonic Orchestra. í lengsta rally sem haldið hefur verið hérlendis voru bílar á Bandag hjólbörðum í 1.3.5.6.og7. sæti. Bandag Hjólbarðasólun h.f. Dugguvogi 2 - Sími 84111 MEÐ KAUP Á TELEFUNKEN LITSJÓNVARPSTÆKI TRYGGIR ÞÚ ÞÉR BJARTARI OG BETRIMYND Þegar þú velur þér litsjónvarp skaltu velja rétt tæki, tæki frá uppfinningamönnunum sjálfum. Telefunken fann upp Pal kerfið sem sjónvarpsframleiðendur í Evrópu nota. Þú getur að sjálfsögðu fengið ódýrari litsjónvarpstæki en ekki sambærileg að gæðum. —JW0“ ' | 1 n Telefunken býður upp á alla þá möguleika sem aðrir bjóða eins og til dæmis Inline myndlampa, fullkomið einingakerfi, lága orkunotkun (90-130 Wött), bjartari og betri mynd, sjálfvirkur llta- og birtustillir, tengimöguieiki fyrir leiktæki og myndsegulbönd. En það sem mestu máli skiptir er að tækin eru betri. BRÆÐURNIR ORMSSON % LAGMULA 9 SIMI 38820

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.