Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Eins gott Gullgæs á silfurfati
Undirbýr hörkukeppni
Þeir sem standa ráðþrota
frammi fyrir tæknivand-
ræðum um óttubil þurfa
ekki lengur að örvænta.
Tölvunördar BT standa
nú vaktina nótt sem nýtan
dag og reyna að ráða úr
hvers manns tæknilegu
örðugleikum á öllum tímum
sólarhringsins, alla daga
vikunnar.
„Við ákváðum að bjóða upp á
þessa þjónustu þegar Playstat-
ion 3 kom á markað og ætlum að
prófa þetta aðeins áfram og jafn-
vel stíga skrefinu lengra ef vel
gengur,“ segir Gunnar Ingvars-
son, innkaupastjóri afþreyinga
hjá tölvuverslunum BT og einn
þriggja „BT-nörda“ sem eru á
vakt allan sólarhringinn og greiða
úr vandamálum tölvunotenda,
hvort sem um er að ræða týndar
snúrur eða hvernig á að komast í
gegnum erfið borð í tölvuleikjum.
„Það kemur þó fyrir að við getum
ekki svarað, til dæmis ef maður
þarf að bregða sér í sturtu,“ segir
hann og hlær.“
Gunnar segir að þjónustan
hafi gefist vel og símtölin skipti
hundruðum nú þegar. Þótt hringt
sé á öllum tímum sólarhrings-
ins segist hann þó fá bærilegan
svefnfrið. „Það er lítið hringt eftir
klukkan tvö á nóttunni og þetta
hefur truflað mig lítið.“ Vanda-
málin sem koma upp eru jafn mis-
jöfn og þau eru mörg, en Gunnar
segir þó að vel hafi gengið að ráða
úr flestum þeirra. „Sum getum
við ekki leyst, annaðhvort eru
þau utan okkar sviðs eða þekkt
vandamál sem ekki verða leyst
í bili. Margir eru í vandræðum
með að fá HDMI-tengið hjá sér til
að virka, það er fyrir Playstation-
tölvur í sjónvörp með góða upp-
lausn, en það er lítið hægt að gera
í þeim tilfellum nema bíða eftir
uppfærslu á stýrikerfið.“
Einnig koma inn á borð nörd-
anna léttvægari vandamál sem
auðvelt er að greiða úr. „Fólk er
misjafnlega tæknivætt eins og
gefur að skilja,“ segir Gunnar.
„Sumir skilja ekki hvers vegna
kviknar ekki á vélinni og hafa þá
gleymt að setja straum á hana.
Aðrir finna ekki snúrurnar fyrir
stýripinnana en átta sig ekki á að
þeir eru þráðlausir. Það er sem
betur fer lítið mál að bjarga því.“
Eðli málsins samkvæmt þurfa
BT-nördarnir nánast að vera
gangandi leiðarvísar um allt sem
viðkemur tölvum og tækni. „Ég
er óttalegt nörd í þessum efnum;
er með PC-tölvu, Playstation og
X-Box heima hjá mér. Svo sé ég
um innkaup á tölvuleikjum og
kvikmyndum, þannig að ég veit
mikið sitt úr hvorri áttinni og
stend alveg undir nafngiftinni
BT-nörd.“
Vaktir og sofnir
nördar á vakt
Sumir skilja ekki hvers
vegna kviknar ekki á
vélinni og hafa þá gleymt að
setja straum á hana. Aðrir finna
ekki snúrurnar fyrir stýripinn-
ana en átta sig ekki á að þeir eru
þráðlausir.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
/
LB
I
36
93
6
03
/0
7
Skráning á landsbanki.is
Skráning á fjármálakvöld fer fram á landsbanki.is
Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í Ráðgjafa-
og þjónustuveri í síma 410 4000.
Verið innilega velkomin.
Fimmtudagskvöld eru
fjármálakvöld
Fræðslukvöld fyrir almenning
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld”, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning.
Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um helstu þætti sem lúta að skattamálum, fjármálum heimilisins,
fjárfestingum, ávöxtun eigna og lífeyrissparnaði. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.
Í kvöld, Mjódd: Farið verður yfir fjárfestingarkosti sem í boði eru, til dæmis skráð
hlutafélög í kauphöll og verðbréfasjóði. Einnig verða gefin hagnýt ráð um
uppbyggingu eignasafna. Jafnframt verður greint frá því hvar hægt er að nálgast
upplýsingar um fjármálamarkaðinn og hvernig þær eru nýttar. Námskeiðið er
ætlað þeim sem vilja nýta tækifæri á fjármálamarkaði til að ávaxta eignir sínar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Námskeiðin hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stöðum:
1. mars Holtagarðar Skattar og framtalsgerð
8. mars Vesturbæjarútibú við Hagatorg Skattar og framtalsgerð
15. mars Aðalbanki - Austurstræti Fjármál heimilisins
22. mars Hamraborg Fjármál heimilisins
29. mars Mjódd Fjárfestingar og ávöxtun eignaÍ kvöld
Börn eiga ekki að þjást