Fréttablaðið - 29.03.2007, Side 20
fréttir og fróðleikur
Alvarlegra
en áður
Fara fram næstkomandi laugardag
Formaður Tannlæknafélags
Íslands segir tannlækn-
ingar nú ódýrari en þær
voru fyrr á árum. Samt
sem áður sýna rannsóknir
að íslensk börn hafa mun
fleiri skemmdar tennur en
jafnaldrar þeirra á Norður-
löndum, þá sérstaklega þau
sem eiga fátæka foreldra.
Doktor við Háskóla Íslands
segir að ef þessi þróun held-
ur áfram verði ekki langt
í að falskar tennur verði
fermingargjöf á ný.
„Tannlækningar eru ódýrari nú en
þær voru. Aftur á móti greiða fjöl-
skyldur og einstaklingar nú miklu
hærri hluta af þeim en var,“ segir
Sigurjón Benediktsson, formaður
Tannlæknafélags Íslands.
Viðamiklar rannsóknir á tann-
heilsu barna sýna að íslensk
börn eru að meðaltali með tvöfalt
fleiri tannskemmdir en jafnaldr-
ar þeirra í Svíþjóð. Staðan hér er
verri en á öllum Norðurlöndunum.
Ljóst er að tannskemmdir eru að
verða enn tíðari og því áhyggju-
efni að kannanir sýna að dregið
hefur úr því að gert sé við tennur
barna.
Doktor Inga B. Árnadóttir, for-
seti tannlæknadeildar Háskóla Ís-
lands, segist undrast áhugaleysi
stjórnmálamanna á þeim niður-
stöðum sem nú liggja fyrir. „Þetta
er mjög alvarlegt mál og ég skil
ekki að stjórnmálaflokkar hafi
ekki gert þetta að kosningamáli.
Við erum með sláandi niðurstöður
um tannheilsu barna en viðbrögð
stjórnvalda við þeim hafa hing-
að til aðeins verið að lækka verð
á gosdrykkjum. Það er eins og
skvetta olíu á eld,“ segir hún.
Inga telur að nauðsynlegt sé að
auknu fé verði veitt til málaflokks-
ins og að tannheilsa verði stjórnuð
heilsugæsla. Hún segir að ef ekk-
ert verði að gert innan skamms sé
hún hrædd um að íslenska þjóðin
snúi þrjátíu ár til baka. „Þá þótti
ekki undarlegt að börn fengju
falskar tennur í fermingargjöf.“
Sigurður Rúnar Sæmundsson
tannlæknir segist ekki taka djúpt í
árinni þegar hann lýsir ástandinu
sem skelfilegu. „Rannsóknir sýna
að 40 prósent sex ára barna hafa
fengið tannskemmd. Það þýðir að
sum þessara litlu barna hafa feng-
ið margar skemmdir og þjáðst
vegna þeirra. Ég vil líta á þetta
sem þjóðfélagshneyksli,“ segir
hann og bætir við að ólíðandi sé að
lítil börn þurfi að gráta sig í svefn
vegna tannpínu nú á tímum.
Sigurður segir ástæðuna fyrir
þessari þróun felast í því hve
margir ráða ekki lengur við að
greiða tannlæknaþjónustu barna
sinna. Þátttaka ríkisins sé orðin
það takmörkuð. Sama upphæð til
málaflokksins hafi nánast haldist
föst í fimmtán ár. Á þessum tíma
hafi endurgreiðsluréttur vegna
forvarnaraðgerða á borð við flúor-
meðferð, röntgenmyndir, fræðslu
og reglulegt eftirlit einnig verið
mjög takmarkaður. Hann segir at-
hyglisvert að útgjöld Trygging-
arstofnunar, sem verulega hafi
dregist saman, séu mest skert
þegar kemur að forvarnaraðgerð-
um. Ástæðuna segir hann vera að
um forvarnir gildi kvóti á endur-
greiðslum. Því fái foreldrar að-
eins endurgreidda flúormeðferð
einu sinni á ári en ekki sé kvóti á
viðgerðum. Það sé öfugt við stefnu
annarra Norðurlanda.
„Þetta á ekki að vera sandkassa-
leikur milli Tryggingastofnunar
og tannlækna. Við eigum að gera
það sem kemur best út fyrir börn-
in, óháð því úr hvaða þjóðfélags-
hópi þau eru,“ segir Sigðurður.
Engir samningar hafa verið í
gildi milli Tryggingarstofnunar
og Tannlæknafélags Íslands frá
árinu 1999.
Tryggingastofnun metur því
endurgreiðslur vegna tannvið-
gerða ákveðinna hópa, svo sem
eldri borgara og barna við sína
eigin viðmiðunargjaldskrá. Lögum
samkvæmt endurgreiðir stofnun-
in 75 prósent í viðgerðum sem til-
greindar eru á lista hennar. Sigur-
jón Benediktsson segir viðmiðun-
arverð þó helming þess kostnaðar
sem fólk þarf í raun að greiða. Auk
þess eru verðskrár tannlækna
mjög mismunandi enda verðsam-
ráð ólöglegt.
Samkvæmt tölum Trygginga-
stofnunar er dýrasti tannlæknir
landsins 130 prósentum yfir við-
miðunarverðskrá en á ódýrasti
6 prósentum undir henni. Í til-
kynningu Tryggingastofnunnar er
harmað að jákvæð áhrif frjálsr-
ar samkeppni komi ekki fram.
Því hefur Tannlæknafélag Ís-
lands svarað þannig til á heima-
síðu sinni. „þar á bæ [Trygginga-
stofnun] svífist menn einskis til að
spara í heilbrigðiskerfinu“. Enn
fremur segir að ekki sé traustvekj-
andi að stofnunin eyði fé og tíma í
að fara yfir reikninga tannlækna
og eru sjúklingar sjálfir hvattir til
að kynna sér verð og þjónustu án
þess að miða við „hlutdrægt verð-
lagseftirlit Tryggingastofnunar“,
eins Sigurjón orðar það.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra segir að verið sé að athuga
hvort nauðsynlegt sé að uppfæra
viðmiðunargjaldskrána í fjárlaga-
gerð.
Sterk tengsl eru milli tekna
foreldra og fjölda tannskemmda
barna og segir Siv að reynt verði
að koma til móts við þau með því
að bjóða upp á ókeypis tannlækna-
skoðanir nokkurra grunnskólaár-
ganga. „Ég tel mjög mikilvægt að
við náum slíkum samningum við
tannlækna um þessar athuganir.
Það hafa þó verið skiptar skoðan-
ir um þessa hugmynd meðal tann-
lækna,“ segir Siv.
Falskar tennur í fermingargjöf á ný
STARFSMANNAMIÐLUN
VANTAR ÞIG PÍPU-
LAGNINGARMENN?
Höfum milligöngu um að útvega
innlenda sem erlenda starfsmenn
fyrir ýmsar greinar atvinnulífsins
Er starfsmannaleiga rétta
lausnin fyrir þig?
VOOT STARFSMANNAMIÐLUN • HAFNARGATA 90
230 REYKJANESBÆR • SÍMI 581 2222 • WWW.VOOT.IS