Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 32
„Leikritið gerist árið 1958 og svo
skemmtilega vill til að kjólarn-
ir sem ungu stelpurnar klæð-
ast eru einmitt frá þessum tíma,“
segir Saga Jónsdóttir leikstjóri,
sem leikstýrir leikritinu „Príma-
donnurnar“ eftir Ken Ludwig,
sem sýnt er í Freyvangsleikhús-
inu í Eyjafjarðarsveit. Rauði kjóll-
inn er eign systur minnar, Heklu
Geirdal, en hún er ótrúleg með að
geyma kjóla, þennan t.d. í fimmtíu
ár,“ segir Saga og bætir við að það
sé afar hentugt að fá að gramsa í
kjólasafni systurinnar þegar bún-
inga vanti fyrir uppsetningar.
„Græni kjóllinn kemur upphaf-
lega frá Þóru Borg leikkonu og
hefur farið nokkrar krókaleiðir
en er nú kominn upp á svið í Frey-
vangi.“
Leikkonurnar, Rósa Björg Ás-
geirsdóttir og Svala Ingólfsdóttir,
eru afar hrifnar af kjólunum sem
þær fá að klæðast í sýningunni.
„Mér sýnist að þessi tíska sé að
koma aftur,“ segir Saga og bætir
við að það sé gaman að hafa leik-
búninga og hluti ekta, frá því tíma-
bili sem leikritið gerist, en það er
Þórarinn Blöndal gerir leikmynd-
ina, sem er afar falleg.
Uppselt hefur verið á nær allar
sýningar leikhússins en sýnt er um
helgar. „Freyvangsleikhús heldur
upp á 45 ára afmæli sitt um þess-
ar mundir en leikhúsið hefur verið
virkt nánast allan þann tíma. Fólk-
ið í sveitinni er afar áhugasamt
um leikhúslífið og helmingi fleiri
vildu fá að taka þátt en hlutverk
voru fyrir,“ segir Saga og bætir
við að það sé afar skemmtilegt að
vinna með áhugamönnum. „Þau
eru svo fagmannleg þarna í Frey-
vangsleikhúsinu og ég dáist að því
hvað þau taka þetta alvarlega og
vilja gera þetta vel. Það á reyndar
við um þau áhugaleikfélög sem ég
hef unnið með undanfarið. Mikill
áhugi og metnaður.“
Ekta leikmunir gera
sýninguna skemmtilega
Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit er 45 ára um þessar mundir. Saga Jónsdóttir segir skemmti-
legt að vinna með áhugamönnum.
Ný sending frá
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Maternity
Fyrir verðandi og
nýbakaðar mæður.
• Neðanþvottaklútar fyrir þrútin og
viðkvæm svæði
• Olíugel, eykur teygjanleika húðarinnar
og er tilvalið til að nudda uppúr
• Næringarkrem sem eykur teygjanleika
húðarinnar
•Fótakrem sem léttir á þrútnum fótum
Fæst aðeins í verslunum Lyf og heilsu og ÁrbæjarapótekiFæst í apótekum um land allt