Fréttablaðið - 29.03.2007, Side 72
Guðmundur nær aldrei að spila eins lengi og ég
Flestir íslenskir hand-
boltaáhugamenn þekkja Anders
Dahl-Nielsen. Hann spilaði og
þjálfaði KR leiktíðina 1982-83 þar
sem hann fór mikinn ásamt Alfreð
Gíslasyni. Hann hefur síðar komið
víða við á ferlinum og meðal ann-
ars þjálfaði hann Flensburg í fimm
ár. Hann tók síðan við Skjern en
eftirlét Aroni Kristjánssyni starf-
ið fyrir nokkrum árum og gerðist
framkvæmdastjóri félagsins. Líkt
og Aron yfirgefur hann herbúð-
ir Skjern í sumar en hann mun þá
taka við framkvæmdastjórastöð-
unni hjá þýska stórliðinu Flens-
burg.
Yfir tíu Íslendingar hafa verið
að spila í danska boltanum í vetur
en hann er á hraðri uppleið. Ein
ástæða þess er aukið fjármagn
sem komið er inn í boltann. Virð-
ist danska deildin geta keppt við
þýsku og spænsku deildina í dag
að stóru leyti.
„Það hefur verið hröð þróun í
danska handboltanum og miklir
peningar komnir í hann. Bæjarfé-
lög hafa verið að nota handbolta-
og fótboltafélög til að kynna sig og
fyrirtæki í bæjunum taka virkan
þátt í þeirri herferð,“ sagði And-
ers Dahl við Fréttablaðið í gær.
Hann segir að önnur stór ástæða
sé sú að fótboltafélögin séu farin
að taka yfir handboltadeildirn-
ar í stóru borgunum. Það sé hag-
kvæmt fyrir báðar deildirnar og
ekki síst handboltann sem fær
sterka markaðsmenn í sín lið.
Anders Dahl segir marga í Dan-
mörku óttast að þessi þróun sé
of hröð og að sum lið séu að tefla
einum of djarft í samkeppninni.
„Launin hafa hækkað samhliða
þessari þróun og fyrir vikið eru að
koma sterkari leikmenn í deildina.
Leikmenn eru jafnvel að koma frá
Þýskalandi eins og Snorri Steinn
Guðjónsson og Ásgeir Örn Hall-
grímsson. Danska deildin getur
kannski ekki keppt við bestu liðin í
Þýskalandi og Spáni en er vel sam-
keppnishæf við liðin sem koma
þar á eftir,“ sagði Anders Dahl.
Annað sem laðar íþróttamenn
til Danmerkur er hinn svokall-
aði „prófessoraskattur“. Afburða-
íþróttamenn falla undir þennan
skattlið og greiða því aðeins 33
prósenta skatt í stað 63 prósenta
eins og hinn almenni borgari.
Þessara réttinda njóta íþrótta-
mennirnir í þrjú ár en aðeins þeir
sem hafa yfir 700 þúsund krónur
í mánaðarlaun eiga rétt á þessum
skattfríðindum.
Danskur kvennahandbolti er
geysilega vinsæll og danska deild-
in er sú besta í heimi. Anders Dahl
segir dönsku liðin geta fengið
hvaða leikmann sem er í kvenna-
boltanum.
Konurnar hafa hingað til verið
með mun hærri laun en strákarn-
ir og það er fyrst núna sem karl-
mennirnir fá sömu laun og kon-
urnar.
„Það er talið að bestu handbolta-
konurnar hafi fengið tæplega eina
og hálfa milljón króna í mánað-
arlaun á meðan bestu karlarnir
fengu aðeins tæplega milljón.
Þeir allra bestu eru loksins farn-
ir að sjá sömu tölur og konurn-
ar núna þótt þær séu almennt að
gera það betur en karlarnir,“ sagði
Anders Dahl.
Anders Dahl-Nielsen, framkvæmdastjóri Skjern, segir launin í danska handbolt-
anum hafa hækkað mikið síðustu ár. Verðmiði leikmanna hefur einnig hækkað
verulega. Karlarnir eru loksins komnir í sama launaflokk og konurnar.
Ummæli Viggós Sig-
urðssonar, fyrrum landsliðsþjálf-
ara í handbolta, í fréttum Stöðvar
2 síðasta þriðjudagskvöld vöktu
nokkra athygli. Þar lét Viggó í
veðri vaka að hann gæti verið á
förum til þýska stórliðsins Flens-
burg á nýjan leik. Hann þjálfaði
liðið fyrri hluta þessa tímabils
þar sem þjálfarinn, Kent Harry
Anderson, glímdi við veikindi.
„Það er ekki loku fyrir það skot-
ið að það verði eitthvað meira þar
síðar,“ sagði Viggó meðal annars
í viðtalinu á Stöð 2.
Anderson er með samning við
Flensburg út næsta ár og sá sem
ræður framhaldinu er ekki að
vinna hjá Flensburg í dag held-
ur tekur til starfa í sumar. Það
er Anders Dahl-Nielsen, fram-
kvæmdastjóri Skjern, en hann
hefur verið ráðinn í stað Thors-
ten Storm sem réð Viggó á sínum
tíma.
Fréttablaðið bar ummæli Vigg-
ós í viðtalinu undir Dahl-Niel-
sen í gær. „Það eru engar áætl-
anir um að fá Viggó Sigurðsson
aftur til Flensburg,“ sagði Dahl-
Nielsen sem vonaðist til þess að
Einar Hólmgeirsson yrði kominn
á fætur sem fyrst en hann fer til
einnig til Flensburg í sumar.
Viggó ekki í áætlunum Flensburgar
Það hefur vakið
mikla athygli í undanúrslitaein-
vígi Njarðvíkur og Grindavíkur
hversu lítið Brenton Birmingham
hefur reynt í Njarðvíkursókninni.
Brenton hefur aðeins skotið
9 skotum á 63 mínútum í fyrstu
tveimur leikjunum og hefur enn
fremur bara fengið 3 víti.
Brenton hefur aftur á móti tapað
8 boltum og verið oft á tíðum ólík-
ur sjálfum sér á þessum hluta vall-
arsins. Friðrik Ragnarsson þekkir
vel til Brentons eftir að hafa spil-
að með og þjálfað hann í mörg ár.
Það er spurning hvort hann hefur
fundið leiðina til þess að loka á
þennan frábæra leikmann.
Liðin mætast þriðja sinni í
Njarðvík í kvöld. Staðan í einvíg-
inu er 1-1. Njarðvík vann fyrsta
leikinn en Grindavík jafnaði í
ótrúlegum leik í Röstinni síðasta
mánudag.
Hvar er Brenton í sókninni?
Jacobsen Dagar
New Style Restaurant / Pósthússtræti 11 / 578 2008 / www.silfur.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
5
9
1
Marineruð og bjórsoðin klaustursbleikja
„Saaz Blonde“ með spínati, aspas, beikoni
og eggjasósu.
Íslenskur humar „Saaz Blonde“.
Lambafillet og hægeldaður lambaskanki
„Brown Ale“ með dilli, kartöflufroðu, blómkáli,
ólífum og bjórgljáðum heslihnetum.
Crème caramel „páskabjór“ með lime
og engifer ásamt pistasíuhjúpuðum
banana og karamellu-balsamico ís.
Fjögurra rétta seðill með bjór: 8.900,-
á sérréttaseðli Silfurs