Tíminn - 04.05.1980, Blaðsíða 6
6
Sunnudagur 4. mai 1980
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. 'Jónsson. Rítstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sföu-
múla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495.
Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 230.- Áskriftargjald kr.:
4.500 á mánuöi.
V.
Biaöaprent.
Eini trausti
grunnurinn
Um alllangt skeið hefur það verið regla en ekki
undantekning i islenskum kjaramálum að rikis-
valdið kæmi til skjalanna og greiddi fyrir samn-
ingum með fyrirheitum um opinber framlög á
sviði félags- og húsnæðismála eða á öðrum þeim
sviðum sem máli hafa þótt skipta.
1 sjálfu sér verður ekki sagt að neitt sé óeðlilegt
við þetta. Það er ótvirætt hlutverk rikisvaldsins að
miðla málum i slikum efnum, og það hefur verið
vilji til þess að auka framlög rikisins til félags-
legra málefna.
Hinsvegar er það ljóst að ekki má ganga of langt
i þessum efnum. auknum framlögum hins opin-
bera fylgir að sjálfsögðu aukin skattheimta og
vaxandi „bákn”, sem hvort tveggja orkar mjög
tvimælis og nýtur litilla vinsælda að vonum. í
annan stað er ekki hægt að lita á sáttahlutverk rik-
isvaldsins sem sjálfsagðan hlut i þeirri merkingu
að aðilar kjarasamninga geti einfaldlega sent
kostnaðarreikningana af nýjum samningum jafn-
an til innheimtu hjá rikisvaldinu.
Nú er svo komið að áhugi almennra launþega á
„félagsmálapökkum” til lausnar kjaradeilu virð-
ist fara mjög minnkandi. í vaxandi mæli heyrast
þær raddir i verkalýðshreyfingunni að nær væri að
lækka skattana en auka framlög rikisins, en að
sjálfsögðu fylgist þetta tvennt algerlega að.
Á sama tima er á stjórnmálasviðinu tekist á um
leiðir til þess að vinna bug á óðaverðbólgunni, eftir
þvi sem ráðrúm gefst fyrir pólitiskum uppþotum,
stjórnarslitum og kosningum svo sem var á
siðasta ári.
Mönnum er það ljóst að mikilvægur þáttur i
baráttunni gegn verðbólgunni er að draga úr rikis-
útgjöldunum og minnka umsvif rikisins með
ströngu aðhaldi og slá þannig á þensluna i efna-
hagslifinu. Mjög aukin framlög hins opinbera,
jafnvel þótt þau fari til góðra málefna sem njóta
almenns skilnings og stuðnings, stuðla augljóslega
ekki að þvi að draga úr þenslu eða verðbólgu.
Það virðist þannig ljóst að svigrúmið til þess að
rikið greiði fyrir samningum með verulegum fjár-
framlögum er orðið miklu minna en verið hefur, ef
það er þá yfirleitt nokkuð fyrir hendi. Menn eru
sammála um það i stuðningsflokkum rikisstjórn-
arinnar að fjárlög og lánsfjáráætlun séu i efstu
mörkum miðað við þá stefnu að ná verðbólgunni
niður i áföngum, og enda þótt niðurstöðutölur fjár-
laganna séu ef til vill raunhæfari nú en oft hefur
verið, sýnir þetta að svigrúmið til aukinna um-
svifa er úr sögunhi.
í rauninni stöndum við frammi fyrir þeim stað-
reyndum að áhugi á launajöfnun er mjög tak-
markaður innan launþegasamtakanna, þannig að
liklega mun það reynast mjög erfitt að fá fram
kjarabætur til hinn tekjulægri með tilfærslum, og
hins vegar að þá er aðeins sú leið til kjarabóta eftir
sem felst i aukinni verðmætasköpun og bættri nýt-
ingu framleiðslukraftanna. Þessi leið, fram-
leiðslustefnan, er reyndar eini trausti grunnurinn
sem góð og varanleg lifskjör hvila á.
JS
Þórarinn Þórarínsson:
Erlent yfirlit
Mótspyrnunni linnir
ekki í Afganistan
Ástandiö þar minnir stöðugt meira á Víetnam
FORRAÐAMENN Rússa hafa
aö undanförnu notiö þess, aö
miklu minni athygli hefur beinzt
aö Afganistan en ella, sökum
þess, aö Carter Bandarikjafor-
seti hefur fyrst og fremst snúiö
sér aö deilunni viö Iran. Afgan-
istan hefur þvi aö verulegu leyfi
horfiö i skuggann.
Fréttir þaöan benda hins
vegar til þess aö ástandiö þar
fari sizt batnandi. Samkvæmt
heimildum, sem liklegt er aö
séu áreiöanlegar, kom til mik-
illa átaka í Kabúl, höfuöborg
Afganistans, siöastl. laugardag,
þegar stúdentar efndu til áber-
andi mótmælaaögeröa. Sagt er,
aö rússneski herinn hafi oröiö aö
skerast I leikinn áöur en ró
komst á. Gizkaö er á, aö um 60
manns hafi falliö I þessum átök-
um, en mörg hundruö særzt.
Margir voru handteknir. Þetta
bældi þó ekki niöur mótspyrnu-
viljann, þvl aö aftur kom til
verulegra átaka i Kabúl á miö-
vikudaginn var.
Þegar ástandiö er þannig i
höfuöborginni, má vel hugsa
sér, aö þaö sé ekki betra utan
hennar, heldur lakara. Þaö
ætlar aö rætast, sem spáö var i
þessum þáttum, þegar Rússar
réöust inn I Afganistan, aö þeir
myndu lenda þar i svipuöum
ógöngum og Bandarikjamenn i
Vletnam. Bandarikin skárust I
leikinn I Vietnam til aö reyna aö
bjara óvinsælli og spilltri stjórn,
likt og Rússar eru aö gera I
Afganistan. Viöbrögö almenn-
ings uröu hins vegar þau, aö
bandariski herinn hraktist burt
eftir nokkur ár eftir aö hafa
oröiö fyrir miklu áfalli hern-
aöarlega, fjárhagslega og siö-
feröilega.
Ef Rússar átta sig ekki I tlma,
geta beöiö þeirra svipuö örlög I
Afganistan. Andstaöan gegn er-
lendu hervaldi viröist jafnvel
enn eindregnari þar en i
Víetnam.
FRÉTTARITARI The
Christian Science Monitor I
Moskvu, David K. Willis, segir
þaö álit Vesturlandmanna þar,
aö Rússar þurfi aö auka inn-
rásarher sinn I 250 þúsund
manns, ef þeim eigi aö takast aö
sigrast á skæruliöahreyfingn-
um, en eins og áöur hefur veriö
rakiö, eru þær margar og
dreiföar um landiö.
Samkvæmt áliti sömu aöila,
er annar valkostur Rússa sá, aö
hafa álika fjölmennt herliö I
Brésnjef
Afganistan og nú eöa um 85 þús.
manns og um 30 þús. manna liö
til taks Rússlandsmegin landa-
mæranna. Þetta myndi aö Hk-
indum hafa I för meö sér, aö
styrjöldin viö skæruliöana stæöi
I mörg ár.
Sömu heimildir telja, aö
Rússar muni hafa herliö I
Afganistan i fyrirsjáanlegri
framtiö, þótt þeir og rikisstjórn
Karmals tali um, aö rússneski
herinn veröi bráölega kvaddur
heim. Sliku tali sé aöeins ætlaö
aö blekkja gagnrýnendur, I
Kabúl sjáist mörg merki þess aö
Rússar reikni meö langri dvöl
þar. T.d. sé veriö aö byggja þar
hermannaskóla, klúbbhús fyrir
liösforingja o.s.frv.
Eins og nú sé ástatt I Afgan-
istan, ráöi Rússar aöeins yfir
borgunum, en skæruliöar leiki
lausum hala utan þeirra. Sá
herstyrkur, sem Rússar hafi nú
i Afganistan, anni ekki öllu
meira. 1 þessu sambandi megi
minna á, aö Afganistan er helm-
ingi stærra en Suöur-Vietnam en
þar dugöi Bandarlkjunum ekki
500 þúsund manna her til aö
brjóta skæruliöana á bak aftur.
Aö visu má segja, aö skæru-
liöum i Vietnam hafi borizt
meiri aöstoö utan frá. Margt
bendi til aö skæruliöunum i
Afganistan berist verulegt af
vopnum utan frá og munu Kln-
verjar og Bandarlkjamenn
einkum vera þar aö verki. Erfitt
Babrak Karmal
getur veriö fyrir Rússa aö koma.
I veg fyrir, aö á þessu veröi
framhald.
Rússar segja fátt frá átökum
viö skæruliöa og reyna þannig
aö gera litiö úr baráttu þeirra.
Þó sagöi Tass frá þvi 22. april
siöastl., aö felldir heföu veriö i
Zindajanhéraöinu 124 hermdar-
verkamenn og málaliöar, en 47
teknir höndum.
MARGT bendir til aö þaö
styrjaldarástand, sem nú rlkir I
Afganistan, haldist áfram lengi
enn og valdi þjóöinni stórfelld-
um hörmungum. Þaö llkleg-
asta, sem gæti komiö I veg fyrir
þetta, væri þaö, aö Rússar átt-
uöu sig á þvi, aö þ?ir eru á leiö
út I sömu ófæruna og Banda-
rikjamenn I Vietnam. Hyggileg-,
ast væri þvl af þeim aö draga'
her sinn heim.
Bæöi af hagsmunaástæöum
og metnaöarástæöum getur
þetta hins vegar reynzt erfitt.
Þaö eru augljósir hagsmunir
Rússa, aö ekki komi óvinveitt
stjórn til valda i Kabúl. Rússar
hafa vissulega mikilla varnar-
hagsmuna aö gæta á þessum
slóöum.
Rikisstjórnir landanna I
Efnahagsbandalagi Evrópu
hafa gert sér þetta ljóst, og þvi
hafa þeir boriö fram hugmynd
um aö Afganistan veröi hlut-
laust riki og veröi þaö tryggt
meö alþjóölegúm samningum.
1 Staöa Afganistan yröi þá svipuö
og Austurríki. Hjá stórum
múhameöstrúarrikja I þessum
heimshluta nýtur þessi hug-
mynd Efnahagsbandalagsrikj-
anna mikils stuönings.
Rússar hafa ekki tekiö henni
illa, en þó ekki fallizt á hana.
Þeir segjast ætla aö draga her
sinn burtu strax og friöur kom-
ist á, en vilja bersýnilega halda
opinni þeirri leiö, aö Afganistan
veröi bandalagsríki Sovétrikj-
anna.
Vafalitiö er þaö viturlegasta,
sem vestrænar þjóöir geta nú
gert i sambandi viö Afganistan,
aö heröa sóknina fyrir þvi, aö
Afganistan veröi hlutlaust riki,
án erlendrar hersetu. Fyrir
Rússa er erfitt aö hafna þessu,
ef hlutleysi Afganistans veröur
nægilega tryggt. Brátt ætti þeim
aö veröa sjálfum ljóst, aö þetta
þjónar ekki síöur hagsmunum
Sovétrikjanna en annarra rikja
á þessu svæöi. Baráttan fyrir
hlutleysi Afganistans er stórum
jákvæöari leiö en aö hafna þátt-
töku I ölympluleikunum, enda
kejur þá nýtt deiluefni til sög-
unnar, sem Rússar geta hagnýtt
sér, en þaö er, hvort rétt sé aö
blanda saman iþróttum og
stjórnmálum.