Tíminn - 04.05.1980, Side 10

Tíminn - 04.05.1980, Side 10
10 Sunnudagur 4. mai 1980 RAFSTOÐVAR allar stærðir • grunnafl • varaafl • flytjanlegar • verktakastöðvar ^Délaðalaní Leikfanga húsið Sími 14806 SkólavörÓustíglO Bifvélavirki Kaupfélag Vopnfirðinga óskar eftir að ráða bifvélavirkja, vélvirkja eða mann vanan vélaviðgerðum sem fyrst. Húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri i sima 97-3201. $ Kaupfélag Vopnfirðinga ÓDÝRIR BARNAVAGNAR J Garðastræti 6 .■ XsWv'^avuwww: Símar 1 -54-01 & 1-63-41 ,%■!; J.R.J. Bifreiðasmiðjan hf. :'PL~= m Varmahlíð, Skagafirði. Sími 95-6119. Bifreiöaréttingar (stór tjón — lftil tjón) — Yfirbyggingar á jeppa og allt aö 32ja manna bfla — Bifreiöamálun og skreytingar (Föst verötilboö) — Bifreiöaklæöningar — Skerum öryggisgler. Viö erum eitt af sérhæföum verk- stæöum í boddýviögeröum á Norðurlandi. Sendum i póstkröfu Verð: Körfuvagnar M/burðarrúmi Barnavagnar Barnakerrur Brúðuvagnar kr. 123.000 ” 128.000 ” 66.800 ” 29.500 ” 46.900 Leggiyfir þoku, veröur ekki fariö I smölun, þviaö veröur fé náö saman nema viöhlltandi sýni sé. Elsa Árnadóttir í Húsey: Þegar þokan kom og göngurnar runnu út í sandinn Hvers vegna erum viö hér? Er þokunni aö létta? Þeirri niö- dimmu þoku, sem grúföi sig yfir Héraö á kvennafridaginn 24. okt. 1975? Ég gleymi þeim degi seint, ekki slst vegna þess, aö f heimasveit minni var hann talinn alveg til- valinn til aö smala i 2. löggöngu. Þaö skipti sko engu máli, hvaöa dagur var, svona uppi i sveit. Svo voru þaö bara þessar of- stækisfullu kaupstaöarkvensur, sem voru aö gera sig digrar þenn- an dag, og því best talið aö halda okkur sveitakonum frá spilling- unni meö þvi aö láta okkur smala. Þaö var aldrei aö vita, hvaö viö gætum orðiö leiöitamar. En viti menn: Þennan merkis- dag okkar kvenna geröi niö- dimma þoku, svo aö vonlaust var aö smala. Þá hlakkaöi nú 1 mér ótuktarskapurinn, og hugurinn reikaði til karlanna i hrepps- nefndinni. Skyldi þeim ekki hafa mislikaö þessi afskiptasemi æöri máttarvalda? Viö sveitakonur erum öfunds- veröar um margt, en þaö er lika margt, sem viö förum á mis viö, sem annað fólk telur sjálfsagöa hluti. Þó hefur þaö lengst af veriö þannig siöan Island byggöist, aö sveitakonan hefur haft næg verk- efni á sinum snærum, og oft á tfö- um býst ég viö, aö hún hafi verið þræll á sinu eigin heimili. En nú er þaö þannig, aö margir búa hreinlega viö verkefnaskort, þó svo aö sumir haldi þvl fram, aö sveitakonur geti alltaf fundiö sér nóg til aö gera heima, ef þær bara vilja. Þeim, sem þaö halda, vil ég segja.aösem betur fer eru konur ekki viljalaus verkfæri, sem hægt er að skikka til hvers sem er. Eða erum viö ekki steinhættar aö þvo körlunum um fæturnar o.sirv.? Sveitastörfin eru fjölbreytt og skemmtileg, finnst flestum á vor- inog yfir sumartimann, og hjálp- ast þá öll fjölskyldan aö. En strax þegar haustar, fara eldri börnin I skólann og sumardvalarbörnin einnig, sem mikiö er um, aö séu á sveitabýlunum. Eftir heima verða þá oft og tlöum hjónin ein, eða meö yngstu börn sin. Margar sveitakonur hugsa þá eflaust til þess, hvað gott væri, ef þær heföu tækifæri til aö komast i' hálfs dags vinnu eöa svo til að drýgja tekjumar, því aö viða veitir ekkert af þvf, þar sem innan bændastéttarinnar er tekjulægsti hópur landsins, og mikill kostnaöur fylgir oft skóla- göngu sveitabarna fram yfir önn- ur. Og fleira mætti upp telja. Sumar konur langar kannski hreinlega I nám, þvi aö margar hafa bara barnaskólann eöa gagnfræðaskóla að baki. Þetta geta nú margar konur I þéttbýlinu þegar veitt sér. Þá kemur e.t.v. fram spurning sem hljóöarsvo: Hvaö hefurkona I sveit meö nám aö gera? Ég vil svara þvf þannig: Erindi flult á Egilsslööum á baráltudegi kvenna 8. marz Egilsstaöir á Völlum, þar sem höfuöstaöur Fljótsdalshéraös er I mótun og héraösfundir eru haldnir. — Ljósmynd: Mó.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.