Tíminn - 04.05.1980, Síða 15
f 11 ..1
Málgagn stuðningsmanna
Péturs J. Thorsteinssonar
--------
Kosninga
skrifstofur:
Reykjavík
Aöalskrifstofa stuðnings-
manna Péturs J. Thorsteins-
sonar er að Vesturgötu 3,
Reykjavik, simar 28170 og
28171. Þar íiggja frammi með-
mælendalistar og kjörskrár og
þar er veitt hvers konar upp-
lýsingaþjónusta.
Forstöðumaður er Óskar V.
Friöriksson.
Akureyri
Stuðningsmenn Péturs á
Akureyri hafa opnað skrif-
stofu þar fyrir Norðlendinga-
fjórðung. Hún er á 2. hæö i
Amarohúsinu, Hafnarstræti
101, simar 25300 og 25301.
Skrifstofan er opin alla virka
daga kl, 14-19. Forstöðumenn
eru Halldóra Ingimarsdóttir
og Herdis Elin Steingrims-
dóttir.
ísafjörður
A ísafiröi hefur veriö opnuð
skrifstofa fyrir Vestfirði að
Hafnarstræti 12, sfmi 4232.
Málfriöur Halldórsdóttir veit-
ir skrifstofunni forstöðu.
Húsavik
A Húsavik verður bráðlega
opnuð kosningaskrifstofa.
Þangað til gefur Hákon Aðal-
steinsson allar upplýsingar.
Heimilisfang hans er að Skjól-
brekku 6, simar 41260 og 41261.
Egilsstaðir
A næstunni verður opnuð
kosningaskrifstofa fyrir Aust-
firöi aö Egilsstööum, en þang-
að til veitir Ólafur M. Olafs-
son, Seyöisfirði, allar upplýs-
ingar. Simar 2235 og 2440.
Hafnarfjörður
Fyrirhugað er að opna skrif-
stofu I Hafnarfiröi, en þangað
til veitir Guörún Egilson, simi
51484, allar upplýsingar.
Keflavik
Kosningaskrifstofa verður
bráðlega opnuð i Keflavik.
Þangað til má snúa sér til
Arnbjörns ólafssonar, læknir.
Slmi 92-1840.
Allir þeir sem hafa safnað
undirskriftum á meðmæl-
endalista, eru beðnir aö senda
þá jafnóðum til aðalskrifstof-
unnar. A það skal bent, að
leyfilegt er skv. lögum að
skrifa undir meömæli með
fleiri en einum frambjóðanda.
Stuöningsfólk Péturs J.
Thorsteinssonar er hvatt til að
hafa samband viö kosninga-
skrifstofurnar. Ærin verkefni
eru fyrir höndum i kosninga-
baráttunni. Margar hendur
vinna Iétt verk.
Þegar þetta er skrifaö, hafa
stuðningsmenn Péturs J.
Thorsteinssonar auglýst
kynningarfund i Laugarásbiói
i Reykjavflc, laugardaginn 3.
mai ki. 14.30. Með þeim fundi
er kosningabaráttan hafin, og
allir stuðningsmenn Péturs J.
Thorsteinssonar eru beðnir að
leggja fram sinn skerf til sig-
urs Péturs þann 29. júni.
Kynningarfundur stuðningsmanna í Sigtúni:
Um 1500 manns fögnuðu
sumri með Oddnýju og Pétri
Á kynningarfundi Péturs J. Thorsteinssonar i Sig-
túni á sumardaginn fyrsta komu allt að 1500 gestir
og voru hin miklu salarkynni þar yfirfull i nærfellt
þrjár klukkustundir. Nutu gestir góðra veitinga og
skemmtunar, hlýddu á ræður og að fundi loknum
höfðu hundruð manna látið skrá sig á meðmælenda-
lista og drjúgum hafði bætzt i kosningasjóð. Var
mikill hugur i fundargestum um að tryggja sem
glæsilegasta kosningu Péturs.
Þar rikti hátiðablær innan og
utan veggja Sigtúns. Framan við
húsið blöktu fánar við hún, gest-
um var heilsaö meö sumarkveðj-
um og salarkynni voru blómum
skrýdd. Fólk tók aö drifa að um
þrjúleytiö og var slðan viöstöðu-
laus straumur fram yfir kl. 5.
Stuöningsfólk Péturs hafði lagt
kapp á að útbúa margvislegar
veitingar fyrir gesti og borð
svignuðu undan kræsingum i veit-
ingasalnum á neðri hæð hússins.
A efri hæð haföi veriö útbúin að-
staða fyrir barnagæzlu, enda
voru þeir allmargir, sem komu
með börn með sér til þessa fund-
ar. Mun kynslóðabilið sjaldan
hafa veriö eins kyrfilega brúað i
glæstu óðali Sigmars Péturssonar
veitingamanns.
Hluti af hinum mikla bilaflota
gesta fyrir framan Sigtún.
Efst á húsinu varfesturborðimeð
vigorði dagsins: — Kveöjum vetur
Kjósum Pétur.
(Ljósm. Guðm. Ingólfsson).
Hjartanlegur hlátur og
dynjandi iófatak
Meðan gestir spjölluðu saman,
gæddu þeir sér á kaffi og meðlæti,
sem stuöningsfólk bar inn jafn-
skjótt og grynnkaöi á. Frú Selma
Kaldalóns lék létta tónlist á pianó
gestum til mikillar ánægju.
Pétur Thorsteinsson og Oddný
kona hans sátu og ræddu við
gesti, en siöan tók Pétur til máls.
Hann gerði grein fyrir ferli sinum
og f jallaði siöan um kosningabar-
áttuna. Kvaöst hann hafa lagt
áherzlu á ferðalög út um landið og
vinnustaðafundi úti á lands-
byggðinni sem og á höfuðborgar-
svæðinu. Hann sagðist hafa svar-
að ótal spurningum um sjálfan
sig, embættið og fleira og haft
mikla ánægju af þvi að komast i
kynni við fólk um land allt. Enn-
fremur fór Pétur nokkrum orðum
um valdsviö forseta Islands, sem
er rýmra en margur virðist
halda. Mál sitt kryddaöi hann
með léttrikimni og gamansögum,
sem hann hefur á hraöbergi, og
var þeim tekiö meö hjartanlegum
hlátri. Ræðu Péturs var fagnað
með dynjandi lófataki.
Langhæfastur fram-
bjóðenda
Eftir aö Pétur hafði lokið máli
sinu tók Haraldur Blöndal hér-
Séð yfir veitingasalinn f Sigtúni á sumardaginn fyrsta, en þar brúuðu
kynslóöabilið um 1500 manns. Gæzla og kvikmyndasýningar fyrir
yngstu börnin voru á efri hæð hússins. (Ljósm. Guðm. Ingólfsson.)
aðsdómslögmaður viö hljóðnem-
anum. Hann brýndi fyrir mönn-
um, aö forsetaembættið væri
mikilvægasta embætti landsins,
og á örlagastundum gæti það
skipt sköpum hver meö þaö færi.
A tlmum óvissu og óróa i lands-
málum og alþjóöamálum væri
nauðsynlegt aö forseti hefði yfir-
gripsmikla þekkingu á báöum
sviöum, og aö þvi leyti stæði
Pétur Thorsteinsson skör framar
en aðrir frambjóöendur.
Þá sté Arni Johnsen fram með
gitar sinn og lék og söng fyrir
mannfjöldann og skemmti jafn-
framt með gamansögum. Agúst
Bjarnason skrifstofustjóri tók þvi
næst til máls. 1 ræðu hans fólst
eindregin hvatning til manna um
að styöja Pétur Thorsteinsson,
sem væri langhæfastur frambjóð-
enda til forsetakjörs. Var þvi
samsinnt með lófataki.
Þröngt máttu sáttir
sitja
Undir ræöum og öðrum dag-
skráratriðum hélt fólk áfram að
streyma inn i Sigtún, og var á
timabili oröinn skortur á sæta-
framboði isalnum. Sannaðist þar
hið fornkveðna, aö þröngt mega
sáttir sitja, enda var eindrægni og
baráttuhugur I algleymingi með-
al gesta.
Lokaatriöið á dagskrá þessa
kynningarfundar var óvænt og
skemmtilegt. Andrés Valberg
framkvæmdastjóri kvaddi sér
hljóðs og flutti nokkrar frumortar
stökur til Oddnýjar og Péturs og
kvaö þær siöan samkvæmt þjóð-
legum sið.
Þegar liða tók að lokum fundar-
ins sneru gestir á brott eftir
ánægjulega viðdvöl. Hundruð
manna höfðu greinilega gert upp
hug sinn á staðnum, þvi aö mikil
örtröð myndaöist frammi i and-
dyriþarsem undirskriftalistarnir
lágu. Létu ýmsir svo ummælt að
vonandi liði ekki á löngu þar til
unnt væri aö endurtaka slikan
fund, og fréttu þá aö ýmislegt
væri I bigerö hjá stuðningsmönn-
um Péturs til þess að fylgja eftir
þeim meöbyr, sem framboö hans
hefur fengiö á siöustu vikum,—ge
Páll A. Pálsson:
Gifta hefur jafnan
fylgt störfum hans
Vér Islendingar erum kosn-
ingaglöö þjóð. Kosningar af
ýmsu tagi taka hug margra og
ómældur er sá timi, orka og
fjdrmunir sem variö er í kosn-
ingaþras.
1 kosningaumræðum hér á
landi eru gifuryrðin óspart not-
uð og ásakanir og óhróöur
stundum svo hatrammur aö
seint eða aldrei grær um heilt,
svo sem fjölmörg dæmi sanna.
Oft virðist návigið þeim mun
heiftugra sem fámennið er
meira.
Sumir telja þetta þjóðarsport,
fleiri munu þó telja það þjóöar-
löst og er senn mál aö linni.
Nú fara forsetakosningar I
hönd. Frambjóðendur eru fimm
valinkunnir menn. Allir munu
þeir hafa óskað eftir þvi að þessi
kosningabarátta verði háð með
drengilegum hætti.
Þá ósk ættu allir kjósendur að
taka til greina, hvaða frambjóð-
anda sem þeir styðja og gæta
þeirrar hófsemi að allir megi
skilja sáttir og ósárir að loknum
leik.
Þegar ég hafði veður af þvl á
liönum vetri, aö Pétur J. Thor-
steinsson, sendiherra hefði látið
til leiðast að vera i kjöri viö
fyrirhugaðar forsetakosningar,
taldi ég þaö góðar fréttir.
Astæðan var sú að hann þekki
ég að góðu einu siðan við sátum
I sama bekk i sex ár.
Aldrei kynnast menn betur
eöa nánar heldur en á æskuár-
unum, þegar menn segja hug
sinn allan um menn og málefni,
opinskátt og umbúöalaust.
A þessum umbrotaárum
kynntist ég Pétri vel, ljúf-
mennsku hans, hjálpsemi og
gáfum.
Siðan hafa vegir Péturs legið
viða bæöi hér heima og erlendis.
1 mörgum þjóðlöndum hefur
hann dvaliö, sem fulltrúi þjóðar
sinnar, og jafnan hefur gifta
fylgt störfum hans.
Þaö hefi ég fyrir satt að fáum
sé sýnna um en Pétri að finna
lausn á viðkvæmum og vanda-
sömum ágreiningsmálum.
Ég er þeirrar skoöunar aö
störf Péturs og starfsreynsla
verði honum gott vegarnesti á
Bessastööum.
Þvi óska ég honum sigurs i
forsetakosningum þeim sem
framundan eru.
Páli A. Páisson.
Veljum Pétur forseta - Hann er vandanum vaxinn
Auglýsing