Tíminn - 04.05.1980, Side 24
24
Sunnudagur 4. mal 1980
Þrjár samstæöar tjarnir I Fagradal á bökkum Kerlingardalsár, alls um einn hektari, og ætlaöar til silungseldis.
Fisktjarnir á mörgum
bæjum á Suðurlandi
SKEPPSHULT
hjólin frá
RLBERT
eru sænsk
gæðavara
Kvenhjól og karl-
mannahjól 2 stærðir.
Vönduð hjól á góðu
verði.
HAGVÍS
P.O. box 85, Garöabæ. Simi
41068 (9-1 og 5-7)
Vönduö hjól fyrir vandláta
kaupendur
Sendum gegn póst-
kröfu
Utihuröir, bilskúrshurðir.
svalahuröir. gluggar. gluggafög.
DALSH RAUNI 9 HAFNARFIRÐ!
BÆNDUR
Krossviður
vatnsþotinn og
vatnsheldur
Spónaplötur
vatnsþolnar og
eldvarðar.
Tilvalið í
gripahús.
Sendum í
póstkröfu.
BJÖRNINN:
Brekkugötu 1 — Slmi 98-1534
A flugvelli 98-1464
Allviöa um Suöurland hafa
bændur gert tjarnir I grennd viö
bæi sina til þess aö ala i bleikju
og sjóbirting. Sums staöar hefur
þetta tekist svo vel, aö bleikjan
hefur náö fast aö þriggja punda
þyngd á tæpum tveimur árum,
enda þótt hún hafi ekki fengiö
annaö æti en henni fellur tii meö
náttúrlegum hætti.
Um atvinnuveg eöa búgrein
er þó ekki aö tala aö svo
stöddu. Tjarnir þessar eru
meira til gamans hugsaöar og
tilbreytingar I mataræöi, en
annars hagnaðar, þótt reynslan,
sem þannig fæst, geti oröiö
gagnleg og þessar tjarnir visir
aö umfangsmeiri fiskrækt siöar
meir.
Til dæmis má nefna, aö sllkar
fisktjarnir hafa veriö geröar á
þremur bæjum i Mýrdal austan
heiöar.sem þar er kallaö, ein er
á Galtalæk á Landi og ein er I
vændum aö Lágafelli I Land-
eyjum. En mun viöar mun eitt-
hvaö hafa veriö gert f þessa átt
sunnan lands.
Bæirnir i Mýrdal, austan
Vikur, þar sem tjarnir hafa
veriö geröar eru Kerlingar-
dalur, Fagridalur og Höföa-
brekka. 1 Fagradal eru
tjarnirnar orönar fjórar. Ein
þeirra er litil bleikjutjörn, um
fjórtán hundruð fermetrar, sem
Jónas bóndi Jakobsson setti i
tvö til þrjú hundruö bleikjuseiöi
fyrir fáum misserum, en hefur
ekki enn timt aö veiöa úr. Þar
mun seiöunum hafa veriö gefiö
eitthvaö.
í Fagradal hafa einnig veriö
geröar þrjár fisktjarnir sam-
siöa á bökkum Kerlingardalsár,
alls um einn hektari aö flatar-
máli, og mun i ráöi aö setja i
þær sjóbirtingsseiöi. Þessar
tjarnir eru sameign þriggja
manna, og er einn þeirra Þórir
N. Kjartansson I Vik I Mýrdal
ásamt fleiri mönnum, sem
rekur litla klak- og eldisstöö,
einkar haglega úr garöi geröa, i
gömlu rafstöövarhúsi rétt ofan
viö þorpiö, og fær i hana heitt
vatn úr borholu og afl frá vatns-
túrbinu.
Allt er þetta smátt i sniöum
enn sem komiö er, en hefur þá
lika þann kost, aö enginn reisir
sér huröarás um öxl, þótt ekki
gangi allt fyllilega aö óskum.
Liklegt er einnig, aö menn þurfi
aö þreifa sig nokkuö áfram, og
er þaö góö undirstaöa, ef seinna
veröur I meira ráöizt.
Sennilegt, er, aö miklu fleiri
fylgi I slóöina á næstu árum, ef
þessar tilraunir bændanna, sem
á vaöiö hafa riöiö, þykja gefa þá
raun, aö til einhvers sé aö vinna,
og þaö þótt ekki væri annaö en
fá silung á á matboröið heima
fyrir.
Klak- og eldisstööin I gamla rafstöövarhúsinu I Vlk, eign Þóris N. Kjartanssonar og félaga hans.
1 dyragættinni Ævar Jóhannesson, einn eigendanna. Ljósmynd: Einar Hannesson.
Litil bleikjutjörn, um fjórtán hundruö fermetrar, aö Fagradal i Mýrdal. Ljórmynd: Einar Hannesson