Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 4
Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar tók við völdum í gær á ríkisráðs-
fundi á Bessastöðum. Fyrr um daginn sat
fráfarandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks sinn síðasta ríkisráðsfund á
Bessastöðum. Ákveðið hefur verið að Alþingi
komi saman fimmtudaginn 31. maí.
Sjö ráðherrar af tólf hurfu í gær úr embætti,
en fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokks halda
áfram í sínum ráðuneytum. Aðeins einn
ráðherra Sjálfstæðisflokks, Sturla Böðvarsson,
lætur af ráðherraembætti. Hann verður forseti
Alþingis þegar þing kemur saman.
Ráðherrar í fráfarandi ríkisstjórn snæddu
ásamt mökum hádegisverð í boði forseta
Íslands á Bessastöðum að loknum fyrri
ríkisráðsfundi dagsins. Fráfarandi ráðherrar
Framsóknarflokksins mættu svo nýjum
ráðherrum Samfylkingarinnar í dyrunum á
Bessastöðum þegar samfylkingarfólk var á leið
til síðari ríkisráðsfundarins.
Að loknum ríkisráðsfundinum héldu nýbakað-
ir ráðherrar í ráðuneyti sín, þar sem þeir hittu
fráfarandi ráðherra og tóku við lyklavöldum í
ráðuneytunum.
Ný ríkisstjórn tekin við
Stjórnarskipti urðu á landinu í gær þegar stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók við af stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks. Nýir ráðherrar tóku við lyklum að ráðuneytum sínum seinnipart dags.
Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm héraðsdóms í máli
Öryrkjabandalagsins á hendur
íslenska ríkinu og sýknaði ríkið.
Öryrkjabandalagið hafði krafist
viðurkenningar á samkomulagi við
ríkið um tvöföldun grunnörorkulíf-
eyris þeirra sem metnir eru 75
prósent öryrkjar eða meira.
Þá krafðist Öryrkjabandalagið
viðurkenningar á því að íslenska
ríkinu bæri að greiða sérhverjum
öryrkja nánar tilgreindar skaða-
bætur í samræmi við ofangreinda
kröfu. Í dómi Hæstaréttar kom
fram að ekki þótti sannað að
Öryrkjabandalagið hefði komist að
slíku samkomulagi við ríkið.
Ríkið sýknað í
hæstarétti
Um þriðji hver kynferðisbrotamaður
sem kemur við sögu Barnahúss er undir átján ára
aldri, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstjóra
Barnaverndarstofu.
Í ársskýrslu Stígamóta segir að tölur um
gerendur sýni að það sé næsta algengt að ungir
piltar beiti sér yngri börn kynferðisofbeldi. Árið
2006 voru 59 af 365 gerendum sem skráðir voru
hjá Stígamótum yngri en átján ára. Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir vert að benda
á að ekki sé um saklausa leiki barna að ræða
heldur ógnandi og meiðandi ofbeldi. Tveir piltanna
hafi verið sagðir sekir um nauðgun.
Bragi segist hafa orðið var við fjölgun meðal
ungra gerenda á síðustu árum. Hann telur ekki
ólíklegt að vaxandi klámvæðing kunni að vera
hluti af skýringunni. „Barnaverndarstofa hefur á
undanförnum árum lagt fram tillögur til félags-
málaráðherra um meðferð fyrir unga gerendur en
því miður hafa þær ekki náð fram að ganga. Við
höfum fylgst mjög grannt með þessari þróun og
teljum að nú sé svo komið að allt að þrjátíu ungir
einstaklingar þurfi á meðferð að halda á ári vegna
kynferðisbrota sem þeir hafa gerst sekir um,“
segir Bragi Guðbrandsson.
Tveggja hreyfla einkaflugvél
á leið frá Grænlandi hlekktist á í
lendingu og hafnaði utan flug-
brautar á Reykjavíkurflugvelli á
miðvikudagskvöld. Tveir
flugmenn, sem voru einir um
borð, sluppu ómeiddir.
„Þegar vélin gerði sig líklega til
lendingar sá ég að annar hreyfill-
inn var stopp,“ segir Þórir
Steinarsson, varðstjóri hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
sem varð vitni að atvikinu.
Við lendingu brotnaði annað
afturhjólið og því lagðist flugvél-
in á hliðina og beygði þar með út
af brautinni.
Þorkell Ágústsson hjá Rann-
sóknarnefnd flugslysa segir
atvikið flokkað sem flugslys.
Aðalhjól gaf sig
í lendingu