Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 68
BLS. 20 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Þ etta er búið að vera strembið þó skemmtilegt og ég er alveg tilbúin að fá smá frí núna
loksins þegar fer að koma að því,“
segir Eva Sólan, sem útskrifast með
BS í viðskiptalögfræði frá Viðskipta-
háskólanum á Bifröst í sumar. Eva
tók námið á aðeins tveimur árum og
er því búin að vera að læra á sumrin
líka. „Ég hef því ekkert verið að vinna
á sumrin nema í þulunni því það
hefur verið nóg að gera í skólanum,“
segir hún brosandi og bætir við að
henni hafi gengið mjög vel. „Námið á
Bifröst er mjög skemmtilegt og
byggist bæði upp á einstaklingsvinnu
og samvinnu en kennslan sjálf er í
formi fyrirlestra og við höfum einnig
fengið góða reynslu í að standa upp
og tala fyrir framan fólk,“ segir hún en
viðurkennir að það hafi ekki verið
mikið mál fyrir hana enda vön að
kynna sjónvarpsdagskrána fyrir
alþjóð. Eva er frá Reykjavík og hafði
ekki áður prófað að búa úti í sveit.
„Mér finnst mjög gott að vera hér í
rólegheitunum enda engin truflun.
Hér eru allir að vinna að sínu og ekki
mikill tími afgangs. Ég vissi ekki
hvernig sveitin ætti við mig en
rólegheitin fara vel í mig. Ég vissi ekki
að ég væri svona sveitó,“ segir hún
hlæjandi en bætir við að hún keyri til
Reykjavíkur að minnsta kosti aðra
hverja helgi.
Þulan eins og saumaklúbbur
Eva var að setjast aftur á skólabekk
eftir tíu ára fjarveru. Hún segist
virkilega hafa þurft að setja sig í
stellingar og læra aftur að læra. „Ég
lærði leikgerðahönnun í Englandi á
sínum tíma en einn daginn kom að
því að ég vildi fara að sjá hærri tölur
á launaseðlinum. Þulustarfið hefur
alltaf verið aukastarf. Flestar okkar
eru með háskólapróf og vinna þetta
með annari vinnu eða námi. Þetta
hefur verið góður tími. Það ríkir
góður andi á RÚV og að fara í
vinnuna hefur stundum verið eins og
að fara í saumaklúbbinn,“ segir Eva.
„Vonandi fæ ég það góða vinnu að ég
þarf ekki lengur að taka aukavinnu,“
segir hún en Eva er þó ekki hætt að
læra. „Ég ætla að halda áfram og taka
næst master í lögfræði á Bifröst sem
einnig er heilsársnám. Síðan finn ég
mér vonandi starf sem lögfræðingur í
framtíðinni.“ Eva tók part af náminu í
Shanghai og segir þá lífsreynslu
ógleymanlega. „Mer finnst gífurlegur
kostur að skólinn skuli bjóða upp á
jafn mikið úrval af skiptinámi og
raun er, enda öllum hollt að víkka
sjóndeildarhringinn af og til.“
Aldur skiptir ekki máli
Eva er ekki búin að skipuleggja
sumarfríið sitt en ætlar að skella sér
í útskriftarferð með skólafélögum
sínum. „Félagsskapurinn hér á
Bifröst er frábær og mjög fjölbreytt-
ur. Hér eru krakkar sem eru
nýkomnir úr menntaskóla og aðrir
sem hafa verið úti á atvinnumark-
aðnum. Í fyrstu leitaði ég til þeirra
sem voru á mínum aldri en smám
saman lærði ég að aðrir hefðu líka
margt til málanna að leggja. Aldur
skiptir ekki máli heldur persónan og
hvernig fólki tekst að vinna saman.
Ég er búin að eignast góða vini
hérna og af þeim eru einstaklingar
sem ég hélt að ég ætti enga samleið
með og hefði sennilega aldrei kynnst
nema við þessar aðstæður. Ég ætlaði
mér reyndar ekkert sérstaklega að
kynnast fólkinu hérna, stefndi bara
á að taka námið á tveimur árum og
byrja svo að vinna. Þetta var
eitthvað sem ég ætlaði að rimpa af
en svo hef ég kynnst fullt af góðu
fólki,“ segir hún en gefur ekki upp
hvort ástin sé í loftinu. Aðspurð
hvað draumaprinsinn verði að hafa
segir hún að hann verði að hafa
báða fætur á jörðinni. „Í stuttu máli
er draumaprinsinn skemmtilegur,
vel gefinn og vandaður, já og
auðvitað dýravinur,“ segir hún
brosandi. Þegar að því kemur að
hún kveðji þulustarfið segist hún
ekki eiga eftir að sakna athyglinnar.
„Líf mitt snýst ekki um að vera þekkt
persóna og ég réði mig ekki þetta
starf vegna þess. Ég var að starfa á
RÚV sem sminka og þulustarfið kom
sér vel á þeim tíma. Ég hef viljað
halda mig út af fyrir mig og leita
ekki í athyglina og athyglin hefur
minnkað mikið eftir því sem fleiri
komast að í sjónvarpi. Hvað það
varðar mun ég hverfa sátt af
skjánum þegar þar að kemur.“
indiana@frettabladid.is
EVA SÓLAN ER AÐ ÚTSKRIFAST FRÁ VIÐSKIPTAHÁSKÓLANUM Á BIFRÖST. EVA ER BORGARBARN EN SEGIR
RÓLEGHEITIN Í SVEITINNI EIGA VEL VIÐ SIG. HÚN SÉ ALLAVEGA SVEITALEGRI EN HÚN HAFI HALDIÐ.
STEFNIR Á LÖGFRÆÐINA Eva er ekki hætt að læra heldur ætlar að taka master í
lögfræði og stefnir á að starfa sem lögfræðingur.
KVEÐUR SÁTT AF SKJÁNUM
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGI 86-94, S: 511-2007