Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 96
FH vann sinn þriðja leik
í röð á Íslandsmótinu með góðum
4-0 sigri á HK. Heimamenn voru
með mikla yfirburði í leiknum, á
öllum sviðum knattspyrnunnar.
FH byrjaði leikinn með besta
móti. Eftir aðeins þriggja mínútna
leik fékk Matthías Guðmundsson
sendingu frá miðjum vellinum og
tók á sprettinn. Hann stakk varn-
armenn HK af og skilaði boltanum
örugglega í netið. Þetta var einnig
fyrsta markið sem HK fær á sig í
efstu deild.
Heimamenn héldu áfram að
keyra upp hraðann og freistuðu
þess að rúlla einfaldlega yfir gest-
ina á upphafsmínútunum. En HK-
menn létu ekki segjast og héldu
ró sinni. Þeir áttu meira að segja
stöku sókn sem voru líklegar til að
skapa hættu við mark FH.
Arnar Gunnlaugsson fékk svo
frábært tækifæri til að koma FH
tveimur mörkum yfir á 31. mínútu.
Hann fékk boltann á besta stað,
í miðjum teignum, frá Tryggva
Guðmundssyni en skot hans var
slakt og Gunnleifur varði vel.
Leikurinn róaðist eftir þetta en
FH byrjaði aftur af krafti í seinni
hálfleik. Þeir skoruðu sitt annað
mark aftur eftir þriggja mínútna
leik en í þetta sinn var Tryggvi að
verki.
Arnar fékk boltann og keyrði
á vörn HK. Ásgrímur Albertsson
var svo óheppinn að detta og Gunn-
leifur missti jafnvægið í kjölfarið.
Arnar kom svo boltanum fyrir þar
sem Tryggvi ýtti honum í markið.
HK fékk svo gott færi á 60. mín-
útu er boltinn barst til Jóns Þor-
gríms sem var einn og óvaldaður
í teignum. Guðmundur Sævarsson
náði þó að komast í veg fyrir skot
hans á síðustu stundu.
Arnar rak svo smiðshöggið á 80.
mínútu er hann fékk boltann frá
Davíð Þór eftir góðan sprett Guð-
mundar.
Hann skilaði boltanum í markið
og það gerði einnig Tryggvi tveim-
ur mínútum síðar. Hann skrúfaði
boltann í netið frá vítateigslín-
unni, hreinlega óverjandi.
FH sýndi mikla skynsemi og yf-
irvegun í sínum leik, sérstaklega
í síðari hálfleik. Þeir forðuðust
að sækja hratt, léku boltanum vel
á milli sín og byggðu upp góðar
sóknir. Það skilaði sér með tveim-
ur góðum mörkum undir lok leiks-
ins. Varnarleikur FH var einnig
gríðarlega sterkur.
HK-ingar mættu ofjörlum
sínum, það var greinilegt. Þeir
gerðu vel í upphafi leiks en eftir
því sem á leið og þeir þreyttust
dró verulega úr sóknarkrafti liðs-
ins. Vörnin var einnig óstyrk, sér-
staklega í síðari hálfleik.
Íslandsmeistarar FH sýndu mátt sinn og megin gegn nýliðum HK á Kaplakrikavelli í gær og unnu öruggan
sigur, 4-0. Gestirnir úr Kópavogi voru hreinlega jarðaðir í síðari hálfleik er FH fór á kostum.
Fylkir vann baráttusigur
á Víkingum, 1-0, á Víkingsvelli í
gær við vart boðlegar aðstæður.
Fjögurra stiga hiti og þúfóttur og
gulur völlurinn.
Fylkismenn sóttu með strekk-
ingsvind í bakið í fyrri hálfleik
en langar sendingar þeirra fram
völlinn voru ekki líklegar til ár-
angurs. Gestirnir ógnuðu marki
Víkinga með langskotum í fyrri
hálfleik og náðu þeir ekki að nýta
sér meðvindinn að neinu viti.
Fjölmargir áhorfendur á Vík-
ingsvellinum þurftu að bíða þar
til á 21. mínútu eftir fyrsta fær-
inu. Magnús Magnússon, mark-
vörður Víkinga, varði þá góða
aukaspyrnu Peter Gravesen af
20 metra færi í horn. Víkingar
reyndu að láta boltann ganga
eftir jörðinni þrátt fyrir mishæð-
ótt grasið og áttu þeir í miklum
erfiðleikum með að finna göt á
vörn Fylkis.
Seinni hálfleikur hófst með
látum. David Hannah skallaði í
stöng á marki Víkinga eftir góða
aukaspyrnu Gravesen frá hægri.
Víkingar hreinsuðu í kjölfarið í
burtu frá marki sínu og brunuðu
í sókn. Upp úr henni fékk Jökull
Elísarbetarson boltann rétt fyrir
utan vítateig en skot hans fór rétt
yfir mark Fylkis.
Sóknartilburðir liðanna í seinni
hálfleik voru betri en í fyrri hálf-
leik og á 66. mínútu brutu Fylk-
ismenn ísinn. Halldór Hilmis-
son átti góða fyrirgjöf frá vinstri
beint á kollinn á Val Fannari
Gíslasyni sem skallaði boltann í
netið frá markteignum.
Litlu mátti muna að Víkingar
jöfnuðu úr síðustu spyrnu leiksins
þegar Fjalar Þorgeirsson varði
frábært skot Gunnars Kristj-
ánssonar beint úr aukaspyrnu
í stöngina og þaðan í horn. Ekki
gafst tími til að taka hornið og 1-0
sigur Fylkis því staðreynd.
Valur Fannar Gíslason átti
fínan leik í baráttunni á miðjunni
hjá Fylki auk þess að skora sigur-
markið.
„Það er lítið hægt að gera við
þessar aðstæður en að berjast.
Veðurfarið á Íslandi er ekki boð-
legt og eru vellirnir eftir því. Það
er ekki hægt að spila eftir jörð-
inni því maður veit ekkert hvert
boltinn fer á þýfóttum vellinum.
Annars er stígandi í þessu hjá
okkur. Við leggjum upp með að
halda hreinu og það hefur gengið
í tveimur leikjum af þrem,“ sagði
glaðbeittur Valur Fannar í leiks-
lok.
Baráttusigur hjá Fylkismönnum í Víkinni
ÍA og Fram skildu jöfn,
2-2, á Akranesvelli í gær. Vindur-
inn á Akranesi gerði báðum liðum
erfitt fyrir og háloftaspyrnurnar
sem bæði lið reyndu skiluðu engu.
Fátt var um fína drætti til að byrja
með en Skagamenn fengu besta
færi fyrri hálfleiks eftir glæsi-
lega sókn þar sem Framarar náðu
að bjarga í horn á síðustu stundu.
Upp úr henni komst ÍA yfir
þegar Árni Thor Guðmundsson
ýtti boltanum yfir línuna af stuttu
færi eftir að Hannes Þ. Halldórs-
son markmaður hafði slegið horn-
ið út. Framarar fengu nokkur færi
sem þeim tókst ekki að nýta en
knattspyrna liðanna var ekkert
augnayndi.
Það blésu ferskir vindar um
lið Fram eftir tvöfalda skiptingu
í hálfleik og blásið var til sóknar
af hálfu Safamýrarpilta. Þeir upp-
skáru jöfnunarmark eftir fárán-
leg mistök af hálfu Skagamanna
þegar slök sending þeirra rataði
ekki alla leið til Páls Gísla mark-
manns sem kominn var í lautar-
ferð langleiðina niður á Langasand
og eftir sendingu frá Reto renndi
Jónas Grani boltanum í markið.
Guðjón Þórðarson gerði tvær
breytingar á liði ÍA og eftir að
hafa verið inni á vellinum í rúma
mínútu skoraði varamaðurinn
Gísli Freyr Brynjarsson þegar
Hannes missti skot hans klaufa-
lega inn. Framarar bættu enn í
sóknina og eftir harða skothríð að
marki Skagamanna náðu þeir að
jafna þegar Ingvar Ólason skoraði
með fínu skoti og 2-2 jafntefli nið-
urstaðan.
„Ég er sáttur við eitt stig en mig
langaði í þau öll þrjú. Við reynd-
um að vekja menn í hálfleiknum
og það veitti ekki af. Menn voru
steinsofandi allan fyrri hálfleik-
inn. Skagamenn voru bara miklu
grimmari en við. Það var allt
önnur barátta í seinni hálfleik og
við sýndum mikinn karakter í að
koma til baka aftur,“ sagði Ólafur
Þórðarson, þjálfari Fram.
Framarar vöknuðu í síðari hálfleik