Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 86
Esbjörn Svensson Trio er marg-
verðlaunað sænskt djasstríó sem
kemur fram á vegum Listahátíðar
í Reykjavík á Nasa föstudags- og
laugardagskvöld. Tuesday Wond-
erland er þeirra tíunda og nýjasta
plata, en tríóið sem er skipað píanó-
leikaranum Esbjörn Svensson,
bassaleikaranum Dan Berglund og
trommuleikaranum Magnúsi Östr-
öm er búið að vera starfandi í 13 ár
og hefur smám saman verið að auka
vinsældir sínar utan heimalandsins.
Í dag er E.S.T. sennilega heitasta
djasshljómsveit Evrópu.
Það sem setur mestan svip á tón-
list E.S.T. er hvað hún er opin og lif-
andi. Þeir hljóma stundum eins og
frekar hefðbundið píanó djasstríó,
en sveigja svo fyrr en varir af leið,
stundum með mjög afgerandi hætti.
Fyrsta lagið á Tuesday Wonderland,
Faiding Maid Preludium er gott
dæmi um þetta. Það hefst á mjög
fallegum píanóleik sem gæti gefið
fyrirheit um huggulega og notalega
djassplötu til að láta malla í bak-
grunninum, en eftir tæpa mínútu
breytist lagið fyrirvaralaust í há-
vært rokkdjamm sem minnir helst
á Sigur Rós. Styrkur plötunnar ligg-
ur í því hvað hún er fjölbreytt. Hún
er í senn melódísk og agressíf.
Þetta eru auðvitað líka frábærir
hljóðfæraleikarar. Það er unun að
hlusta á píanóleik Esbjörns bæði í
léttleikandi köflunum og þessum
kraftmeiri og hljóðin sem Dan nær
að búa til með bassanum eru lyginni
líkust. Krafturinn sem E.S.T. tekst
að framkalla bara með píanói, bassa
og trommusetti er á köflum ótrú-
legur og það verður mjög spenn-
andi að heyra þá spila á tónleikun-
um á Nasa.
Á heildina litið er Tuesday Wond-
erland fersk og lifandi djassplata.
Opin og lifandi djassplata
Myndlistarkonan Harpa Árnadóttir opnar sýningu í Anima Gallerí,
Ingólfsstræti kl. 17 í dag. Sýningin ber heitið „Síðasta vorið“.
Í tilkynningu um sýninguna kemur fram að málverkin séu eins
konar ljóð í vatnslit um mörk hins innra og ytra í eilífð og andrá. Sökn-
uð, gróandann og hið hverfula.
Verkin á sýningunni eru flest unnin á þessu ári.
Harpa Árnadóttir er
menntuð frá Háskóla Ís-
lands, Myndlista- og Hand-
íðaskóla Íslands og Listahá-
skólanum Valand í Gauta-
borg, þar sem hún bjó og
starfaði um langa hríð.
Harpa hefur tekið þátt í
fjölmörgum sýningum hér
heima og erlendis. Þetta er
nítjánda einkasýning henn-
ar. Verk hennar eru í eigu
safna hérlendis og ytra,
meðal annars Moderna
Museet í Stokkhólmi og
Listasafns Íslands.
Sýningin stendur til 9.
júní.
Hið hverfula og vorið
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
GULLHÁTÍÐ Á
GAUKI Á STÖNG
23. - 27. maí
Fös: Sixties
kl. 21 - 04
Lau: Jet Black Joe
kl. 21 - 03
Velkomin heim!
Léttöl
Margverðlaunaður
stór Egils Gull á
kr. 390 - öll kvöld.