Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 66
BLS. 18 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Bjarni
Guðjónsson
„Strákalegur og sætur.“
„Góður fótboltamaður, myndarlegur,
metnaðargjarn og alltaf gman að fylgjast
með honum á vellinum.“
„Strákslegt útlit í bland við karlmann-
legt. Kynþokkinn liggur í fjölskyldugen-
unum rétt eins og hjá Stefánssonum.“
ÁLITSGJAFAR: Linda Pétursdóttir, fyrrverandi alheimsfegurðardrottning, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir athafnakona, Unnur Pálmarsdóttir líkamsræktardrottning, Íris Kristinsdóttir söngkona,
Kristín Ruth Jónsdóttir útvarpskona, Soffía Sveinsdóttir veðurfræðingur, Hildur Magnúsdóttir HARA, Sirrý Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri, Hjaltey Sigurðardóttir söngkona, Harpa Melsted
handboltakona, Dagný Skarphéðinsdóttir, grafískur hönnuður
Þ etta kemur mjög á óvart,“ segir Björgólfur Takefusa, 27 ára knattspyrnumaður, sem samkvæmt álitsgjöfum Sirkuss er kyn-þokkafyllsti knattspyrnumaður landsins. Björgólfur, sem
keppir í Landsbankadeildinni með KR, segist ekki keppa í fótbolta
fyrir titla af þessu tagi en viðurkennir að hafa gaman af. „Ég veit
ekki hvaða konur voru álitsgjafar en þar sem íslenskar konur eru
þekktar fyrir fegurð tek ég þessu sem miklu hrósi og er þakklátur,“
segir hann. Spurður um hina karlmennina sem einnig komust
ofarlega á listann yfir þá kynþokkafyllstu segir hann um flottan hóp
að ræða. „Þeir eru allir voðalega sætir og ég hef gaman af því að
sigra þá í þessu jafnt sem boltanum.“ Björgólfur, sem starfar sem
lánasérfræðingur í Landsbankanum, er ánægður með að sumarið
sé loksins komið. „Ég er spenntur yfir að boltinn sé byrjaður. Þótt
byrjunin hafi ekki verið góð er nóg eftir til að bæta það sem betur
má fara,“ segir kynþokkafyllsti knattspyrnumaður landsins sem,
ótrúlegt en satt, er á lausu. indiana@frettabladid.is
ÞESSIR VORU LÍKA NEFNDIR:
Reynir Leósson „Klárlega flottastur á vellinum.“
Matthías Guðmundsson „Sem Hafnfirðingur verð ég að sjálfsögðu að velja
einn úr FH, hann er eins og ferskur sunnanvindur, ber það með sér hvað hann er
hress og skemmtilegur sem er eitt mest kynæsandi við karlmenn. Öruggur með
sig en tekur sig ekki of hátíðlega, fullkomin blanda.“
Valur Fannar Gíslason „Fæturnir... úffff.“
Pétur Marteinssson „Breytist ekkert, karlmannlegur og kynþokkafullur.“
Atli Jóhannson „Flottur þó hann sé Eyjapeyi, ferskur og efnilegur ungur
drengur.“
Grétar Ólafur Hjartarson „Mjög töff týpa, alltaf flottur jafnt innan vallar sem
utan og þá sérstaklega flottur í tauinu, svo skemmir ekki fyrir að hann er líka
alveg ferlega góður í fótbolta.“
Kjartan Sturluson „Hann er iðulega loðinn og úfinn, eins og frummaður,
hrikalega sexý!“
Haukur Ingi Guðnason „Virkar pínu hrokafullur en hefur fallegar varir og
ómótstæðileg augu. Svo er hann góð fyrirmynd fyrir ungu kynslóðina ásamt
kærustunni sinni.“
Ágúst Gylfason „Góð fyrirmynd, myndarlegur og alltaf hress og skemmtilegur.
Gaman að fylgjast með honum í sumar.“
Olgeir Sigurgeirsson „Einfaldlega sá langflottasti, jafnvel þótt leitað væri út
fyrir landsteinana. Smart strákur og afar flottur.“
Óðinn Árnason „Flottur strákur úr Grindavík og jafnvel þröngi Fram-búningurinn
klæðir hann sérstaklega vel. Virkilega myndarlegur strákur með einstaklega
falleg augu.“
Helgi Sigurðsson „Alveg að gera sig í stuttbuxunum úff, eitthvað svo „clean“
og flott týpa.“
Björgólfur Takefusa
„Sætur og skemmtilegur spilari.“
„Hans mesti sjarmi er feimnin, hvað hann lætur fara lítið fyrir sér þrátt
fyrir mikla velgengni.“
„Hann hefur einhverja dásamlega ró yfir sér, sjarmerandi hógværð sem
allar konur elska. Fyrir utan að vera algjörlega gordjöss í útliti hefur
hann þennan þokka sem tryllir konur.“
„Skemmtilegur karakter, myndarlegur, metnaðarfullur og
góður fótboltamaður. Hann er alltaf flottur og klæðaburður
hans er töff.“
„Mér finnst hann „hrotta“ krútt og langar alltaf til að knúsa
hann þegar ég sé hann, usssssssssss bara sætur sko.
Fallegustu augu í deildinni.“
„Hefði valið hann númer eitt, tvö og þrjú hefðu reglurnar
leyft. Hrikalega myndarlegur og flottur í alla staði.“
SIRKUS LEITAÐI TIL FJÖLDA MÁLSMETANDI KVENNA Í LEIT AÐ KYNÞOKKAFYLLSTA KNATTSPYRNUMANNIN-
UM SEM SPILAR Á ÍSLANDI. MARGIR VORU NEFNDIR EN EINN ÞEIRRA STENDUR UPP ÚR.
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA KYN ÞOKKA-
FYLLSTUR KNATTSPYRNUMANNA
Eggert
Stefánsson
„Þó svo að bræður hans Ólafur og
Jón Arnór séu frægari íþrótta-
menn, þá er hann mun fallegri og
kynþokkafyllri en þeir báðir til
samans.“
„Bróðir Óla Stefáns og Jón Arnórs,
þarf að segja meira? Kynþokkinn
uppmálaður.“
„Það bókstaflega lekur
af honum kynþokk-
inn, þeir gerast
ekki mikið
flottari í
boltanum.“
Gunnar Einarsson
„Gunni er þessi draumamaður hverrar konu, fyrir utan að
vera með þetta fallega strákslega útlit þá er hann dún-
mjúkur að innan og góðmennskan uppmáluð. Eitt það
allra kynþokkafyllsta er góðmennska og göfuglyndi, það
hefur Gunnar Einarsson hreint og tært.“
„Góðlegur og myndarlegur. Virkar skemmtilegur og
fyndinn. Flottur gaur!“
Fjalar Þorgeirsson
„Mikill sjarmör og helvíti flottur kroppur, enda er hann ekki
einkaþjáfari fyrir ekki neitt. Það væri sko margt leiðinlegra
en að fara í einkatíma til svona fola.“
„Hávaxinn og flottur foli.“
„Svaaaðalegur töffari... enough said!“