Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 80
STAR WARS FRUMSÝND
„Ég varð eins og aðrir hér undr-
andi á þessari niðurstöðu, ég
horfði á þetta og þótti atriði
okkar takast afbragðs vel. Miðað
við spár um gott gengi kom þetta
verulega á óvart og olli miklum
vonbrigðum á mínu heimili, eins
og annars staðar.“
Hundrað ár eru liðin síðan Kleppur
var stofnaður á Íslandi og í tilefni af
því verður efnt til hátíðarhalda dagana
25. til 27. maí. Ráðstefna um geðheil-
brigðismál á Íslandi og spítalann verð-
ur á meðal dagskrárliða. Óttar Guð-
mundsson geðlæknir flytur erindið
„Kleppur í hundrað ár“ á ráðstefnunni,
en að hans sögn hafa geðheilbrigðis-
mál tekið miklum framförum hérlend-
is frá upphafi 20. aldar, ekki síst fyrir
tilstilli Klepps.
„Aðstæður geðsjúkra á Íslandi voru
hörmulegar,“ segir Óttar. „Þess eru
dæmi að geðsjúkir hafi verið bundn-
ir niður og vistaðir í skemmum úti á
landi. Oft var um að ræða sveitalimi,
sem voru boðnir upp á fátækraupp-
boðum og enduðu hjá lægstbjóðend-
um. Meðferðin olli því að nokkrir að-
ilar tóku sig saman og vöktu athygli á
málinu í dagblöðum og í kjölfar skrif-
anna jókst krafan um að geðsjúkrahús
yrði byggt. Loks var orðið við henni
árið 1907.“
Að sögn Óttars voru málefni geð-
sjúkra að minnsta kosti fimmtíu árum
á eftir hérlendis miðað við nágranna-
löndin í upphafi 20. aldar. Voru margar
ástæður fyrir því. Meðal annars hafi
uppbygging samfélagsins verið langt á
eftir nágrannalöndum hvað heilbrigð-
isþjónustu varðar og geðheilbrigðis-
mál engin undantekning frá því.
„Þetta breyttist allt saman með til-
komu Klepps, sem var upphaflega
byggður fyrir fimmtíu sjúklinga ásamt
húsnæði fyrir yfirlækninn, fjölskyldu
hans og starfsfólk spítalans,“ útskýr-
ir Óttar. „Hins vegar leið ekki á löngu
þar til spítalinn hafði sprengt utan af
sér og sjötíu sjúklingar höfðu fyllt
þau fimmtíu pláss sem þegar stóðu til
boða. Því var ákveðið að byggja annað
hús fyrir hundrað sjúklinga árið 1920
og tók tæp tíu ár að koma því upp. Það
er sú stórbygging sem hýsir stofnun-
ina í dag.“
Óttar segir plássleysi hafa komið
fljótlega upp og hafi það einkennt alla
sögu spítalans. „Sjúklingarnir voru
stundum á bilinu átta til tólf manns í
stórum sal og þegar mest lét voru 320
sjúklingar á Kleppslóðinni. Þannig að
oft voru gríðarleg þrengsli.“
Á þeim hundrað árum sem nú eru
liðin frá stofnun Klepps, hefur rekstr-
arstefnan gjörbreyst að sögn Óttars,
frá því að vera heimili yfir í endur-
hæfingardeild. „Áður tíðkaðist að fólk
byggi á Kleppi í fjölmörg ár. Versta
dæmið er sjálfsagt fyrsti sjúklingur-
inn, sem lá inni í fjörutíu og átta ár!
Nú er innlögn neyðarúrræði og að-
eins tímabundin. Við viljum að fólk
fari aftur út í samfélagið og fái heima-
hjúkrun ef með þarf. Segja mætti að
verið sé að færa geðlækningar aftur
út í samfélagið. þannig að málin eru
komin í hálfgerðan hring.“
Hjartans þakkir sendum við öllum vinum
og vandamönnum fyrir auðsýnda samúð
og vináttu vegna fráfalls elskulegrar móður
okkar, ömmu og langömmu,
Önnu Nikulásdóttur
Ólafur Reynir Sigurjónsson Brynhildur Aðalsteinsdóttir
María Knútsdóttir Alf Bengtsson
Tómas J. Knútsson Magga Hrönn Kjartansdóttir
Björn I. Knútsson Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Agnes Guðný Haraldsdóttir
Engihjalla 17, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 22. maí á Landakoti. Jarðsungið verð-
ur frá Hjallakirkju föstudaginn 1. júní kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Gigtarfélagið
eða Astma- og ofnæmisfélagið
Ólafur Bjarki Ragnarsson
Sigríður Ólafsdóttir Pétur Már Pétursson
Ragnar Ólafsson Hólmfríður Jóna Guðmundsdóttir
Kristinn Ólafur Ólafsson Helga Þórisdóttir
Haraldur Ólafsson
Helgi Ólafsson Wanpen Srima Ólafsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Friðrik Jónsson
frá Bolungarvík,
sem andaðist 20. maí verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju 29. maí kl. 11.00.
Guðrún Anna Ingimundardóttir
og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðný Jóhannsdóttir
hússtjórnarkennari, Hraunbrún 21,
Hafnarfirði,
andaðist á kvennadeild Landspítalans miðvikudaginn
23. maí.
Berent Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Berentsson Auður Björgvinsdóttir
Jóhanna Berentsdóttir Dagur Jónsson
Hólmfríður Berentsdóttir
Jóhann Berentsson
og barnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, sonur minn,
bróðir okkar og mágur,
Jón Gauti Jónsson
andaðist á Landspítalanum 22. maí. Útför hans fer fram
frá Neskirkju í Reykjavík föstudaginn 1. júní kl 11.
Jarðsett verður í Skútustaðakirkjugarði í Mývatnssveit
að lokinni minningarathöfn laugardaginn 2.júní.
Helga Pálína Brynjólfsdóttir
Eiríkur Gauti Jónsson
Jón Ásgeir Gautason
Guðmundur Karl Gautason
Ragnhildur Jónsdóttir
Geirfinnur Jónsson Hlíf Sigurjónsdóttir
Sólveig Anna Jónsdóttir Edward Frederiksen
Herdís Anna Jónsdóttir Steef van Oosterhout
FÆDDUST ÞENNAN DAG