Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 97

Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 97
B&L Breiðablik og Keflavík gerðu 2-2 jafntefli í Kópavoginum í gær í fjörugum leik. Blikar byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og komust verðskuld- að yfir á 9. mínútu. Boltinn barst þá til Kristjáns Óla Sigurðssonar eftir að Nenad Zivanovic og Olgeir Sigurgeirsson höfðu betur í bar- áttu um boltann við varnarmenn Keflavíkur. Kristján Óli skaut viðstöðulausu skoti fyrir utan teig sem söng í netinu, óverjandi fyrir Ómar Jóhannsson, markvörð Keflavíkur. Á 35. mínútu komst Keflavík ná- lægt því að jafna er Branislav Mil- icevic þrumaði knettinum í þver- slána af vinstri kantinum með ut- anfótarskoti. Meiri ró færðist yfir leikmenn eftir þetta og héldu Blikar eins marks forskoti í hálfleik. Lið Keflavíkur kom grimmt til leiks í síðari hálfleik og ógnaði marki Blika í tvígang á upphafs- mínútum hálfleiksins. Á 68. mínútu dró svo til tíð- inda. Blikar fengu þá ódýra víta- spyrnu eftir að Steinþór féll fim- lega í teignum, að því er virtist útaf engu. Arnar Grétarsson tók spyrnuna en Ómar Jóhannsson varði skot hans. En leikmenn Keflavíkur hættu ekki. Marco Kotilainen tók auka- spyrnu á 76. mínútu rétt fyrir utan teig. Boltinn fór beint á mitt mark- ið en fyrir kjánalegan misskiln- ing Hjörvars og Kristjáns Óla fór boltinn í netið, þrátt fyrir að skot- ið virtist hættulítið. Skömmu síðar bjargaði Hjörvar Blikum með því að verja í tvígang frábærlega, fyrst skot Þórarins Kristjánsson- ar og svo skalla Baldurs. Þrátt fyrir þunga sókn Kefla- víkur, komust baráttuglaðir Blik- ar yfir með góðu marki Magnúsar Páls Gunnarssonar. Hann skallaði knöttinn fallega neðst í markhorn- ið eftir góða sendingu frá Arnóri Sveini Gunnarssyni. Keflavík sneri vörn í sókn og jafnaði leikinn eftir nær sam- fellda sóknarlotu í fimm mínútur. Guðjóni Árna Antoníussyni tókst þá að stýra boltanum með hælnum í markhornið, laust skot sem var lengi á leiðinni í netið án þess að nokkur kæmi vörnum við. Þar við sat þrátt fyrir mikla baráttu leik- manna beggja liða fram á síðustu mínútu. Blikar enn án sigurs Valsmenn ætla að fylgja FH-ingum eftir í toppbaráttu Landsbankadeildar karla eftir 2-1 sigur á KR í Laugardalnum í gær. Helgi Sigurðsson átti mjög góðan leik í liði Valsmanna og skoraði bæði mörkin, sitt í hvorum hálf- leiknum. Rúnar Kristinsson, sem kom inn á í hálfleik og lék sinn fyrsta leik fyrir KR síðan 1994, mátti alveg eins og síðasta leik sínum fyrir þrettán árum sætta sig við tap fyrir Val. Rúnar sýndi nokkra góða takta en var augljós- lega ekki alveg í takt við rest- ina af liðinu. KR-ingar spiluðu þó mun meiri fótbolta eftir að „kóng- urinn“ var kominn á miðjuna en traust vörn Valsmanna gaf ekki mörg færi á sér. Það var yfir miklu að gleðjast í Laugardalnum í gær, það var ekki nóg með að íslenski boltinn end- urheimti Rúnar Kristinsson þá buðu lið Valsmanna og KR-ingar upp á stórskemmtilegan og lifandi knattspyrnuleik. Guðmundur Reynir Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti Grétars Hjartarsonar eftir að Grétar og Björgólfur höfðu stung- ið varnarmenn Valsmanna af. Langbesti maður fyrri hálfleiks- ins, Helgi Sigurðsson, fann loksins leiðina í KR-markið þegar hann lagði boltann fyrir sig og skoraði glæsilega eftir að Atli Sveinn Þór- arinsson hafði skallað aukaspyrnu Guðmundur Benediktssonar inn í teiginn til hans. Helgi Sigurðsson var sískap- andi í sókninni en félagar hans fóru ítrekað illa með úrvalsfæri. Valsmenn áttu að vera komn- ir með þægilegt forskot í hálf- leik ef marka má öll þessi góðu færi. Teitur Þórðarson átti hins vegar ás uppi í erminni í nýjasta leikmanni í vesturbænum. Rúnar Kristinsson kom inn á í hálfleik og tók stöðu Péturs Marteinssonar aftarlega á miðjunni en þess í stað fór Pétur aftur í miðvörðinn. KR-ingar voru allt of bitlausir í lokin og Teitur skipti þeim Atla Jóhannssyni og Jóhanni Þórhalls- syni alltof seint inn á. Rúnar Kristinsson var ósáttur við niðurstöðu leiksins í viðtali við Guðjón Guðmundsson á Sýn eftir leik. „Þetta gekk svo sem allt í lagi en við fengum á okkur mark í seinni hálfleik og töpuðum. Við verðum að bæta leik okkar næst og reyna að gera betur. Það er allt- af pressa í Vesturbænum og KR- ingar vilja vinna alla leiki. Það breytist ekkert þó svo að við séum búnir að tapa tveimur og gera eitt jafntefli,“ sagði Rúnar. Willum Þór Þórsson hældi leik- mönnum beggja liða eftir leik. „Ég vil hrósa leikmönnum fyrir frábæran leik við erfiðar aðstæð- ur. Þetta var frábær leikur,“ sagði Willum. „Við gerðum okkur verr fyrir með því að nýta ekki færin í fyrri hálfleik en við erum með sterkt lið og breiðan hóp sem skil- aði sér í sigri í dag. Þetta var frá- bær dagur fyrir Valsmenn.“ Endurkoma Rúnars Kristinssonar breytti engu fyrir KR-liðið í gær sem tapaði gegn Val, 2-1. Helgi Sigurðsson sá um að sökkva KR-liðinu að þessu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.