Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 52
Myndlistarkonan og nátthrafninn
Inga Dóra Guðmundsdóttir hefur
komið sér upp úr vinnustofu á
heimili sínu í miðbænum. Þar situr
hún stundum fram eftir nóttu við
kertaljós og vinnur úr hugmynd-
um, sem eru stundum svo ágengar
að þær halda fyrir henni vöku.
Vinnustofa Ingu Dóru er ekki
stór, eitt skrifborð og nánasta um-
hverfi. Grafísk verk, teikningar,
málverk og ljósmyndir eftir hana
hanga uppi á veggjum, sum full-
kláruð, önnur í vinnslu. Andrúms-
loftið er einstaklega gott í þessu
litla rými, enda telur listakonan
það lykilatriði í allri listsköpun. „Í
raun er ósköp auðvelt að framkalla
það,“ segir hún hress í bragði.
„Maður kveikir bara á kertum og
setur tónlist í spilarann. Svo er
bara að vinda sér í verkið og sjá
hvað kemur út úr því.“
Verk Ingu Dóru er nokkuð ólík
og því misjafnt hvort hún vinn-
ur þau á vinnustofunni eða bregði
sér út fyrir hús til að viða að sér
efni. „Það er háð tækninni sem ég
beiti,“ útskýrir hún. „Málverkin
vinn ég náttúrulega í stúdíóinu en
ég fer út til að ljósmynda, og við
það víkka landamæri vinnustof-
unnar. Það er einmitt svo heillandi
við listina að maður veit sjaldan
hvaða stefnu hún tekur næst. Eitt
er þó víst, maður verður að bregð-
ast við þegar kallið berst.“
Inga Dóra segir hugmyndirn-
Vinnustofan á sér
engin landamæri
Myndlistarkonan Inga Dóra Guðmundsdóttir útbjó vinnustofu heima hjá sér.
Listakonan að störfum. Inga Dóra segist alveg geta gleymt sér þegar hún er að vinna
og stundum viti hún ekki hvað tímanum líður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Listakonan beitir alls
kyns tækjum og tólum við
listsköpunina; penslum,
striga, ljósmyndavélum og
tölvuforritum.
Þessi landslagsmynd, Ísland, er dæmi um þau grafísku verk sem Inga Dóra er að önnum kafin við að vinna. Hún segist gjarnan
nota íslenskt landslag í verk sín.
Gott andrúmsloft er
að mati Ingu Dóru lykil-
þáttur í allri listsköpun.
Hún segir kertaljós og
góða tónlist yfirleitt það
sem til þarf.
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
Góður alhliða áburður.
Hentar vel í öll blómabeð, fyrir
matjurtir, skrautrunna og tré.
Inniheldur öll helstu næringar-
og snefilefni.
Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar-
tímann frá maí fram í miðjan júlí
www.aburdur.is
Gott í garðinn
Fæst í öllum helstu garðyrkju- og byggingavöruverslunum landsins
25. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR