Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 22
fréttir og fróðleikur
Tryggir friðsamlega notkun kjarnorkunnar
Bóta- og tryggingasvik
eru staðreynd á Íslandi og
auðgunarbrot starfsmanna
í heilbrigðiskerfinu eru það
einnig. Fyrir vikið mæta
lífeyrisþegar og öryrkjar
tortryggni í samfélaginu og
því bitna svikin á þeim sem
síst skyldi. Tryggingastofn-
un ríkisins gekkst í vikunni
fyrir alþjóðlegri ráðstefnu
þar sem þess var freistað að
svara spurningunni hvort
misnotkun ógni velferðar-
kerfinu í heild sinni.
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins (TR),
segir að alþjóðleg ráðstefna um
bóta- og tryggingasvik marki upp-
haf baráttu stofnunarinnar gegn
slíkum svikum hér á landi. Þar er
horft til reynslu Evrópuþjóða sem
á undanförnum árum hafa lagt
aukna áherslu á eftirlit með góðum
árangri. Að mati forstjóra TR er
engin ástæða til að halda að trygg-
ingasvik og auðgunarbrot heil-
brigðisstarfsmanna séu minni hér
á landi en í nágrannalöndum en
umfang slíkra svika hér á landi er
óþekkt. Í Evrópu hefur hins vegar
komið í ljós að svikin eru margfalt
umfangsmeiri en talið var og að
tryggingasvikarar láta einskis
ófreistað í viðleitni sinni að svíkja
út fé. Dæmi sanna að Ísland er
engin undantekning hvað það
varðar.
Skipulögð svikastarfsemi er við-
kvæmt mál. Sú hætta er alltaf til
staðar að einstök dæmi um bóta-
og tryggingasvik séu yfirfærð á
hópa fólks eða heilbrigðisstéttir í
heild sinni. Því leggja starfsmenn
TR á það ríka áherslu að umræðan
um þessi mál hérlendis endurspegli
þá staðreynd að svikin eru bundin
við fámennan hóp. Eitt megin-
markmið TR er að verja heiður
þeirra sem sannarlega þurfa á
aðstoð að halda, því vitað er að
öryrkjar og lífeyrisþegar þurfa að
sitja undir neikvæðri umræðu og
tortryggni. Það sama á við um
heilbrigðisstéttir sem eru tor-
tryggðar að ósekju vegna fram-
ferðis einstakra manna úr þeirra
röðum.
Gunnar Þ. Andersen, forstöðu-
maður eftirlits TR, leggur á þetta
ríka áherslu en í erindi sínu á ráð-
stefnunni tiltók hann dæmi um
mjög gróf brot íslenskra heil-
brigðisstarfsmanna. Þar nefndi
hann tannlækni sem sendi yfir
hundrað reikninga til stofnunar-
innar vegna meðferðar á nær
tannlausum sjúklingi og annað um
tannlækni þar sem meira en helm-
ingur þeirra reikninga sem hann
sendi inn á margra ára tímabili
var tilhæfulaus. Einnig hafa lækn-
ar og sjúkraþjálfarar reynt að fá
greiðslu fyrir rannsóknir á látnum
einstaklingum. Umrædd svik
virða heldur engin landamæri og
því hafa Íslendingar fengið að
kynnast. TR hefur fengið falsaða
sjúkrareikninga senda frá útlönd-
um. Annað vaxandi vandamál í
Evrópu eru svik þar sem reynt er
að fá greiddar bætur fyrir ein-
staklinga sem ekki eru til. Slíkt
hefur ekki komið upp hér á landi
svo vitað sé en mýmörg dæmi eru
um slíkt í Noregi og Svíþjóð.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins, hélt
erindi þar sem hann tók sem dæmi
að ef svik hérlendis eru eins
umfangsmikil og í mörgum Evr-
ópulöndum, sem hann taldi ekki
ólíklegt, þá jafngildir sú upphæð
því sem varið er árlega til sam-
göngumála eða reksturs Háskóla
Íslands á hverju ári. Gífurlegir
hagsmunir eru því augljóslega því
fylgjandi að koma böndum á svik-
in, ef sannað verður að þau séu
jafn umfangsmikil og grunur leik-
ur á. Til almannatrygginga teljast
lífeyris-, sjúkra- og slysatrygging-
ar og þegar haft er í huga að
útgjöld TR á árinu 2006 námu um
75 milljörðum króna þá sýnir
reynsla annarra þjóða að bóta- og
tryggingasvik hérlendis nema að
líkindum hundruðum milljóna
króna á hverju ári.
Í erindum erlendra gestafyrirles-
ara á ráðstefnu TR kom berlega í
ljós að bóta- og tryggingasvik eru
litin svo alvarlegum augum að talið
er að kerfisbundin svik grafi undan
tiltrú almennings á velferðarkerf-
inu og vilja til að standa undir
kostnaði vegna þess. Opin umræða
fer fram um vandann í Noregi og
Svíþjóð en þessu er öðruvísi farið
hérlendis og í Finnlandi. Norðmenn
og Svíar tala um þjófnað en við og
frændur okkar Finnar um sjálfs-
bjargarviðleitni, eins og einn fyrir-
lesari orðaði það.
Hugarfarsbreyting er nauðsyn-
leg, segir forstjóri TR og fer fram
á auknar heimildir til eftirlits.
Aðrir telja óraunhæft að setja á
fót „tryggingalögreglu“ hér á
landi því kostnaður við eftirlit sé
líklegur til að verða meiri en end-
urheimtur glataðra fjármuna. Svo
er sá hópur sennilega fjölmenn-
astur sem kallar eftir einföldun á
regluverki opinberrar stjórnsýslu
og að réttindi og skyldur borgar-
anna séu ræddar í samhengi.
Svik geta ógnað velferðarkerfinu
Greining er
lykillinn
Rekstrarvörur
1982–200725ára
R
V
62
31
Expertinn frá Dreumex
– engin vettlingatök við óhreinindin
Expert frá Dreumex
Áhrifaríkt handþvottakrem
Virkar vel á smurningu,
hráolíu, bremsuvökva,
sement og önnur óhreinindi.
Fáanlegt í handhægum
2,7 ltr. brúsa með dælu.
Örkorn í stað
leysiefna
Húðvænt og
rakagefandi
Kynningarverð
1.230 kr.