Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 8
Hver er nýr formaður Fram-
sóknarflokksins?
Hverjir eru tengdafeðgarnir
sem setjast nú á þing?
Hver skoraði bæði mörk AC
Milan þegar liðið bar sigurorð
af Liverpool og varð Evrópu-
meistari?
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í
fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, en þeir mega þó aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Leita skal til
læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða
versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á
brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan,
Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
PRÓFAÐU NICOTINELL NIKÓTÍNTYGGIGÚMMÍIÐ.
SAMA GÓÐA BRAGÐIÐ, NÚ Í NÝJUM PAKKNINGUM.
FÆST MEÐ ÁVAXTA-, MINTU-, LAKKRÍS- OG NIKÓTÍNBRAGÐI.
NJÓTTU LÍFSINS ÁN SÍGARETTUNNAR
www.hi.isÍSL
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
75
87
0
5/
07
LÍFEINDAFRÆÐI
LÆKNADEILD
Umsóknarfrestur um nám við Háskóla Íslands
veturinn 2007–2008 er til 5. júní.
Sjá nánar á www.hi.is
Viltu verða lífeindafræðingur?
Þú getur orðið það í Háskóla Íslands
Lífeindafræðingar hljóta menntun sína í Geisla- og lífeindafræðiskor
Læknadeildar Háskóla Íslands. Lífeindafræðingar starfa á rannsókna-
stofum heilbrigðistofnana og annars staðar þar sem rannsóknir í líf-
og læknavísindum eru stundaðar. Lífeindafræði er fjölbreytt grein
sem gefur mikla möguleika á spennandi störfum og framhaldsmenntun
víða um heim. Sjá nánar á www.laeknadeild.hi.is
Naumur meirihluti 32
þingmanna af 63 er vart starf-
hæfur meirihluti lengur, að mati
Guðna Th. Jóhannessonar, sagn-
fræðings og lektors við Háskólann
í Reykjavík. Hann segir óstýriláta
þingmenn og fjarvistir þingmanna
meirihlutans helstu ástæðurnar
fyrir því að stjórnmálaleiðtogar
forðist nú að mynda stjórnir með
eins manns meirihluta.
Guðni fjallaði um stjórnarskipt-
in í gær í sögulegu ljósi í fyrir-
lestri á vegum Félags stjórnmála-
fræðinga í Háskóla Íslands í gær.
Hann talaði meðal annars um
aðdraganda samstarfs Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar, en um
tíma virtist sem Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsóknarflokkur næðu að
halda stjórnarsamstarfinu áfram
með eins þingmanns meirihluta.
„Þótt það sé auðvitað enn þannig,
tæknilega séð, að ríkisstjórn geti
setið með 32 þingmenn, þá hafa
ráðamenn komist að þeirri niður-
stöðu núna þrjú skipti í röð að það
dugi ekki í raun,“ sagði Guðni eftir
fyrirlesturinn.
Hann segir hættuna við svo
tæpan meirihluta þá að einstakir
þingmenn geti verið óstýrlilátir,
og í raun haldið stjórnarsamstarf-
inu í gíslingu. Svo sé það einnig
vandamál að þingmenn séu svo
mikið á ferð og flugi að erfitt geti
reynst að skipuleggja atkvæða-
greiðslur á Alþingi þannig að
meirihlutinn hafi örugglega fleiri
þingmenn í salnum en stjórnar-
andstaðan.
„Niðurstaðan er sú að þótt ein-
hverjir tveir flokkar nái 32 manna
meirihluta í framtíðinni þá sé það
afar ólíklegt að menn telji það
vænlegan fyrsta kost. Menn kom-
ust að þeirri niðurstöðu, líkt og
núna, að eins manns meirihluti sé
afar ótraustur, og leita skuli allra
annarra leiða fyrst, áður en menn
sættast á þá niðurstöðu,“ segir
Guðni.
Eins manns
meirihluti er
of ótraustur
Óstýrilátir þingmenn og vandi við atkvæðagreiðsl-
ur vegna fjarvista þingmanna gerir það að verkum
að ríkisstjórnir með eins manns meirihluta heyra
líklega sögunni til. Eins manns meirihluti er of
ótraustur segir Guðni Th. Jóhannesson.
Hæstiréttur hefur mild-
að dóm yfir rúmlega þrítugum
manni, Adam Baranowski, sem
þröngvaði þrettán ára gamalli
stúlku til kynferðismaka við sig í
janúar 2005. Héraðsdómur Suður-
lands dæmdi manninn í átján mán-
aða óskilorðsbundið fangelsi í
desember, en Hæstiréttur hefur
mildað dóminn í fimmtán mánuði.
Misnotkunin átti sér stað í her-
bergi á gistiheimili, þar sem stúlk-
an horfði á sjónvarpið ásamt kær-
asta sínum, vini hans og þeim
dæmda. Þegar þau voru skilin
eftir ein í herberginu hélt maður-
inn að henni sterku áfengi og fékk
hana til að drekka það þannig að
hún fann fyrir ölvunaráhrifum.
Hann hóf þá að klæða hana úr föt-
unum og hækkaði í sjónvarpinu til
að ekki heyrðist í henni.
Stúlkan reyndi að komast undan
en hann hélt henni niðri, kyssti
hana á munninn, brjóst og kyn-
færi, setti fingur upp í leggöng
hennar og lét hana snerta getnað-
arlim sinn. Maðurinn neitaði sök.
Hann var einnig sakfelldur fyrir
að hafa veitt stúlkunni áfengi, þar
sem hún var undir lögaldri. Þá var
hann dæmdur til að greiða stúlk-
unni 700 þúsund krónur í miska-
bætur, en héraðsdómur dæmdi
hann til greiðslu 900 þúsund
króna.
Málið dæmdu Gunnlaugur Cla-
essen, Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason, Hrafn Bragason og
Markús Sigurbjörnsson.
Fjögurra ára
drengur ók á tvo bíla á höfuðborg-
arsvæðinu á þriðjudaginn.
Móðir drengsins hafði skroppið
frá og skilið hann einan eftir í
bílnum sem var í gangi á bílastæði.
Á meðan móðirin var í burtu
fiktaði barnið í búnaði bílsins með
þeim afleiðingum að hann rann af
stað og rakst á tvo kyrrstæða bíla.
Drenginn sakaði ekki og skemmdir
á bílunum voru minni háttar.
Guðbrandur Sigurðsson,
aðalvarðstjóri umferðardeildar,
segir að lögreglan verði oft vör við
að börn séu skilin eftir í bílum í
gangi, en slíkt sé oftast gert í hugs-
unarleysi.
Fjögurra ára
ók á tvo bíla