Fréttablaðið - 25.05.2007, Page 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Gengur bara
betur næst
Á Litla-Hrauni er rekin
verslun fyrir fanga. Af-
greiðslutími verslunarinn-
ar fer eftir útivistartíma
vistmanna. Vöruúrvalið þar
er ágætt en kjötmeti er vin-
sælasta varan.
„Verslunin er oftast kölluð Rimla-
kjör. Maður verður nú að hafa
húmor fyrir hlutunum,“ segir
Sölvi Helgason, verslunar- og
rekstrarstjóri í Rimlakjöri, versl-
un sem rekin er fyrir fanga á Litla-
Hrauni. „Verslunin er búin að vera
þarna lengi. Það var löngu búið að
finna upp hjólið áður en ég kom
til,“ segir Sölvi sem tók við rekstr-
inum fyrir um sjö árum.
Verslunin Rimlakjör er opin
þrjá daga vikunnar, mánudaga,
fimmtudaga og föstudaga, í um
tvo tíma í senn. „Það fer eftir úti-
vist fanganna hvenær er opið,“
útskýrir Sölvi. „Búðin er opnuð
fyrst klukkan hálf tvö þegar úti-
vist hefst fyrir fanga sem eru ekki
í vinnu en svo loka ég í þrjú korter
þegar það er innivera hjá öllum.
Ég opna síðan aftur klukkan hálf
fjögur þegar fangar sem hafa
vinnu fara í útivist og hef opið til
4.25.
Aukaopnanir eru þó af og til á
sumrin, og þá til klukkan fimm.
„Fangarnir fá aukaútivist á sumr-
in og þá hef ég kannski opið leng-
ur einn og einn dag. En það fer allt
eftir veðri. Fangarnir nenna ekki
að hlaupa úti í rigningu.“
Sölvi segir að starfið í Rimla-
kjöri sé töluvert frábrugðnara
öðrum vinnum en hann rekur einn-
ig veisluþjónustuna Sælkera-
vinnsluna á Suðurlandi. „Þetta er
öðruvísi starf. Þarna sér maður
margan persónuleikann en yfir
höfuð eru þetta mjög góðir aðilar.
Það er enginn slæmur,“ segir Sölvi
sem fylgir einföldum reglum í
samskiptum sínum við fangana.
„Ég hef lagt upp með að koma
fram við náungann eins og ég vil
að hann komi fram við mig. Sýndu
kurteisi og þú færð hana til
baka.“
Á boðstólum í Rimlakjöri eru
hefðbundnar vörur á borð við
tóbak, gos, ávaxtasafa sem og
ýmiss konar matvörur. „Ætli
kjúklingabringur og nautahakk
séu ekki vinsælustu vörurnar hjá
mér,“ segir Sölvi en mörgum föng-
um er frjálst að elda sinn eigin
kvöldmat. „Þeir fá heitan mat í
hádeginu en súpu eða léttan mat á
kvöldin. Þeir vilja því stundum fá
sér kjúkling, kjöt eða tortilla.
Saddur fangi er ánægður fangi. Þá
fæ ég stundum sérbeiðnir, til
dæmis um jól, og hef meðal ann-
ars reynt að útvega þeim nauta-
lundir, héra, kengúrukjöt eða
strút,“ segir Sölvi og bætir við að
stundum gæti tískustrauma í vöru-
vali fanganna. „Þetta kemur svona
í bylgjum, nýjar maníur sem detta
inn.“
Kjúklingabringur og nautahakk
vinsælustu vörurnar í Rimlakjöri
Margrét Bóasdóttir, formaður Þjóðhátíðarsjóðs,
veitti í gær 46 verkefnum styrki úr Þjóðhátíðarsjóði
og var þetta í þrítugasta skipti sem úthlutað er úr
sjóðnum.
Nú bárust 150 umsóknir um samtals 168,3 milljón-
ir króna í sjóðinn. Ekki var hægt að styrkja öll verk-
efnin, en verkefnin sem voru styrkt í þetta sinn
fengu alls um tuttugu milljónir í misháum styrkj-
um.
Hæstu styrkirnir voru upp á eina milljón, og hlutu
fimm verkefni slíka styrki. Þau verkefni voru; Sjó-
mannasafnið á Hellissandi vegna bátahúss og við-
gerðar áttæringa, Saga forlag fyrir útgáfu Íslend-
ingasagna á Norðurlandamálum, Árnastofnun fyrir
gagnagrunn um þjóðlög Bjarna Þorsteinssonar,
Námsefnisvefurinn Katla fyrir námsefni til að auka
orðaforða ungra innflytjenda og Háskólinn á Hólum
vegna áframhaldandi fornleifarannsókna við Kolku-
ós.
Þjóðhátíðarsjóði er ætlað að veita styrki til stofn-
ana og annarra aðila sem vinna að varðveislu
íslensks lands og menningar.
Styrkir úr Þjóðhátíðarsjóði eru auglýstir til
umsóknar um áramót og er umsóknarfrestur venju-
lega til loka febrúarmánaðar.
Tuttugu milljónum úthlutað
Ótrygg drulla Tengdafeðgar á þingi
Nýir félagar falla inn í Bylturnar