Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 44
BLS. 12 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Ása Karen Ásgeirsdóttir (64)
50 milljarðar
Á sa Karen er ríkasta kona
landsins. Hún er
fyrrverandi eiginkona
Jóhannesar í Bónus
og móðir Jóns
Ásgeirs og Kristínar.
Hún hefur séð um
uppgjörin hjá Bónus
frá upphafi og gerir
enn.
Pálmi Haraldsson (47)
40 milljarðar
P álmi á meirihluta í Fons, sem hefur verið áberandi í viðskiptalífinu. Fjárfestingar
erlendis hafa skilað gífurlegum hagnaði fyrir
þennan hógværa og snjalla viðskiptamann.
Jóhannes Jónsson (64)
50 milljarðar
Jóhannes, sem er einatt kenndur við Bónus, byrjaði með eina milljón og eina Bónusbúð
árið 1989. Síðan þá hefur töluvert mikið vatn
runnið til sjávar. Grunnurinn sem Jóhannes lagði
í fyrir átján árum er orðinn að risastóru
alþjóðlegu fyrirtæki, Baugur Group, sem teygir
anga sína bæði til Bretlands og Danmerkur.
Jóhannes getur nú leyft sér að njóta afraksturs
ævistarfsins enda er rekstur Baugs í fyrirtaks
höndum sonar hans, Jóns Ásgeirs.
Magnús Kristinsson (56)
40 milljarðar
M agnús malar bara gull þessa dagana. Hann seldi hlutabréf sín í Straumi-
Burðarási í fyrra með gríðarlegum hagnaði.
Hann heldur heimili bæði í Reykjavík og Eyjum.
Steingrímur Wernersson (41)
42,5 milljarðar
S teingrímur, sem er lyfjafræðingur að mennt, hefur ekki farið varhluta af frábæru gengi
fjárfestingarfélagsins Milestone að undanförnu.
Peningarnir rúlla hreinlega inn á reikninginn.
Hannes Smárason (39)
42,5 milljarðar
H annes er sá sem efnast hraðast af þeim sem eru á þessum lista. Hann varð ekki
þátttakandi í viðskiptalífinu af neinni alvöru fyrr
en síðla árs 2003 þegar hann keypti hlut í
Flugleiðum. Síðan þá hefur vöxtur félagsins,
sem nú heitir FL Group, verið ævintýri líkastur.
Hann þykir með snjallari mönnum í íslensku
viðskiptalífi og afskaplega djarfur og snöggur
og hugsa. Hannes elskar líka bíla eins og sjá
má á myndinni hér fyrir neðan.
Jón Helgi Guðmundsson (60)
45 milljarðar
Jón Helgi byggði upp veldi sitt í Byko og er í raun eini samkeppnisaðilinn við Baug í
smásölu í gegnum Kaupás. Hann er umsvifa-
mikill í Lettlandi og þá sérstaklega í timbur-
framleiðslu, sem hefur fært honum mikinn auð.
VISSIR ÞÚ AÐ... Jóhannes heldur heimili bæði á Seltjarnarnesi og á
Akureyri. Reyndar stendur hann í stórræðum á Akureyri þar sem hann
er að byggja eitt stærsta hús bæjarins.
VISSIR ÞÚ AÐ... Ása Karen á
íbúð á sömu hæð og athafna-
maðurinn Sindri Sindrason í
Skuggahverfinu. Svo skemmti-
lega vill til að sonur hans og
alnafni er talsmaður Jóns
Ásgeirs sonar Ásu Karenar.
Karl Wernersson (44)
65 milljarðar
H afi einhver efast um hæfni Karls sem kaupsýslu-manns þá hefur þetta ár fært sönnur fyrir því
að hann er eitursnjall í viðskiptum. Hann er heilinn á
bak við fjölskyldufyrirtækið Milestone sem hefur
vaxið hratt og skilað miklum hagnaði. Helstu eignir
Milestone eru Sjóvá, sænski tryggingabankinn Invik
og hlutir í Actavis og Glitni.
VISSIR ÞÚ AÐ... Karl á kraftmesta
Hummer landsins, með 650 hestöfl
undir húddinu.
Ólafur Ólafsson (50)
60 milljarðar
Ó lafur hafði örugglega efni á því að fá Elton John til að spila í fimmtugsafmælinu sínu í
janúar. Búnaðarbankahlutur hans frá árinu
2002 hefur vaxið gífurlega Hann er með
þyrluflugmannspróf og á þyrlu sjálfur sem hann
flýgur oft.
R Í K U S T U Í S L E N D I N G A R N I R
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
Smáralind
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
Miðhraun 11, Garðabæ
AKUREYRI:
Glerárgata 32
Hin sívinsæla Rán er komin í sumarútgáfu
Við kynnum Rán Light, léttan barnafatnað
sem er vatnsheldur, ófóðraður og andar vel.
Rán light byggir á Rán fatnaðinum sem var svo vinsæll hjá okkur í vetur.
Verð:
Jakki 5.500
Buxur 3.700
Fæst í gráu,
appelsínugulu
og svörtu.