Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 46
hús&heimili
Það er óhætt að fullyrða að naum-
hyggjan hafi runnið sitt skeið á
enda í bili. Þegar hafa línurnar
að hausttískunni í innanstokks-
munum verið lagðar og það sem
koma skal næstu misserin er litir
og mynstur, gull og glingur. Gyllt
og silfruð veggfóður eru byrjuð
að seljast upp og fleira má glóa.
Þessir fallegu púðar og gardín-
ur fást hjá The House of Fraser í
Bretlandi. Speglaborð og húsgögn
eru til í góðu úrvali hjá Lauru
Ashley og greinar af gullregni er
hægt að tína í görðum sem státa af
slíkum trjám. - mhg
Gyllt og
fjólublátt haust
Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín
Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Aug-
lýsingar: Ámundi Ámundsson S.5175724 og Ásta Bjartmarsdóttir S. 5175724 Útlitshönnuður:
Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. Forsíðumynd: Anton Brink
TÖFF TÖSKUR
Tote bag kallast þær á ensku þessar
einföldu og ódýru töskur sem okkur
þykja svo endalaust smart. Til hvers
að rogast með ljótan plastpoka
þegar hægt er að setja innkaupin,
sunddótið, möppurnar eða hvað sem
er í flotta tösku. Þær fást annað slagið
í Tiger, alltaf á Amazon.com og inni á
milli í hinum og þessum verslunum.
- mhg
„Safapressan er mikið þarfaþing.
Það var alger snilld þegar við hjón-
in keyptum hana í vetur,“ segir
Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona
og útskýrir hvers vegna. „Okkur
fannst báðum svo gott að fá okkur
heilsusafa eftir ræktina. Það var
orðið svolítið kostnaðarsamt og
okkur fannst því skynsamlegra
að fjárfesta í svona græju, sem er
nú svosem ekki dýr,“ segir Hrefna
og lýsir kostum Philips-safapress-
unnar. „Hún er rosalega góð, það
þarf ekki að afhýða neitt og allt
fer beint ofan í, nema kannski app-
elsínubörkurinn,“ segir Hrefna en
sú safablanda sem vinsælust er á
heimilinu er appelsínu-, epla-, gul-
róta- og engifersafi. Uppskriftin
er fengin að láni úr safabarnum
í ræktinni, útskýrir Hrefna, sem
hefur prófað sig áfram með ýmsar
safablöndur. „Ég reyndi að troða
jarðarberjum í hana en það var
ekki að gera sig,“ segir Hrefna
og hlær. Þó að uppáhaldshlutur
Hrefnu komi úr eldhúsinu viður-
kennir hún að hún kunni lítið að
elda. „Ég er hins vegar mögnuð í
uppvaskinu,“ segir hún hlæjandi.
Hrefna og maður hennar Ingvi
Jökull reyna að komast minnst
þrisvar í viku í ræktina. „Ég reyni
að byrja daginn á því að fara í
ræktina, það er svo gott áður en
maður fer að hoppa og hía allan
daginn í Skoppu og Skrítlu,“ segir
Hrefna glaðlega en hún og hinn
hluti dúósins, Linda Ásgeirsdóttir,
hafa gefið út geisladisk með lögum
þeirra Skoppu og Skrítlu. „Þetta
er búið að vera eitt stórt ævintýri
og sífellt að vinda upp á sig,“ segir
Hrefna en þær Linda hafa verið
með verkefnið á prjónunum í þrjú
ár. Hún er beðin að lýsa hugmynd-
inni í nokkrum orðum. „Skoppa og
Skrítla snúast um náungakærleik
og svo langar þær að kæta hjörtu
allra barna. Kynna fyrir þeim
lífið á þessum fyrstu árum í sinni
fallegustu mynd. Það kemur nóg
af öllu hinu seinna.“
solveig@frettabladid.is
Skrítla fær sér safa
Hrefna Hallgrímsdóttir, annar helmingur dúósins Skoppu og Skrítlu,
útbýr dýrindis safa í uppáhaldsheimilistæki sínu.
Hrefna Hallgrímsdóttir með uppáhaldshlutinn á heimilinu, sem þessa dagana er forláta safapressa. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Vörn gegn brunaslysum frá Danfoss
Termix One tengigrind til hitunar á neysluvatni
Stillanlegt hitastig neysluvatns
Stórminnkar slysahættu af völdum heita neysluvatnsins
Jafn þrýstingur á heitu og köldu neysluvatni, lengir líftíma blöndunartækja
Léttari þrif, enginn kísill á flísum og hreinlætistækjum
Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður
Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður
Auðveld í uppsetningu
Snyrtileg hlíf fylgir
•
•
•
•
•
•
•
• www.stillumhitann.is
25. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR2