Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 62
BLS. 14 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Lýður Guðmundsson (39)
80 milljarðar
Ágúst Guðmundsson (43)
80 milljarðar
VISSIR ÞÚ AÐ....Lýður
ekur eingöngu um á
bílaleigubílum hér á
Íslandi, frá bílaleigunni
Geysi í Reykjanesbæ.
VISSIR ÞÚ AÐ... Ágúst er
með athvarf í fjölbýlishúsi
við Lækjargötu þegar hann
dvelur hér á landi og er
ekki með færri en þrjú
stæði í bílageymslunni.
B akkabræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru samheldnir. Og þeir
virðast vera afar klókir. Þeir byggðu upp
veldi sitt í Bakkavör, pínulitlu fyrirtæki sem
þeir stofnuðu fyrir rúmum tuttugu árum. Í
dag er fyrirtækið leiðandi bæði í framleiðslu
og sölu á ferskum tilbúnum fiskréttum í
Bretlandi. Vöxturinn hefur verið gífurlegur
og það skaðar þá bræður ekki að hafa
verið með í Kaupþingsævintýrinu frá
upphafi. Bankinn hefur stækkað hratt og
virði hlutabréfa Bakkabræðra hækkað
mikið. Í dag eru nær allar eigur þeirra
bræðra í Bakkabraedur Holding sem á
rúmlega 45% hlut í fjárfestingarfélaginu
Exista. Sá hlutur hefur hækkað verulega
undanfarna daga og er nú 174 milljarða
króna virði. Þeir bræður skipta öllu jafnt í
dag líkt og þeir hafa gert frá því að þeir
hófu að stunda viðskipti. Það er líkt með
þeim að þeir vilja láta lítið fyrir sér fara.
Báðir eru þeir sagðir miklir fjölskyldumenn
sem vilja frekar eyða frítíma sínum með
eiginkonum og börnum en í skemmtireisum
um heiminn. Þessir ágætu herramenn
hoppuðu upp um 50 sæti á lista The
Sunday Times yfir ríkustu menn Bretlands
og eru varla hættir.
Jón Ásgeir Jóhannesson (39)
100 milljarðar
Jón Ásgeir er maðurinn á bak við Baugsveldið. Hann er ekki
langskólagenginn en kláraði þó
Verzlunarskólann áður en hann stofnaði
Bónus með Jóhannesi föður sínum árið
1989. Síðan þá hefur uppgangur hans
og fjölskyldu hans verið með hreinustu
ólíkindum. Jón Ásgeir hefur fyrir löngu
skipað sér í hóp með snjöllustu
kaupsýslumönnum landsins og það er
sagt um að hann og Sigurð Einarsson,
starfandi stjórnarformann Kaupþings,
að þeir séu þeir tveir menn sem hafi
gert flesta Íslendinga að margföldum
milljarðamæringum. Jón Ásgeir var
valinn þriðji valdamesti maðurinn í
smásöluheiminum í Bretlandi á dögunum
og segir það til um styrk hans. Jón
Ásgeir elskar hreinlega bíla og safnar
þeim eins og margir aðrir safna DVD-
diskum. Hann er sérstaklega hrifinn af
Range Rover-bifreiðum og á í það
minnsta þrjár hér á landi auk þess sem
sést hefur til hans á slíkum bílum bæði í
Bretlandi og í Danmörku. Nýjasta
viðbótin í Range Rover-flotann er hvít, af
dýrustu gerð. Og hann kann að njóta
lífsins. Frægt er orðið þegar hann og
Ingibjörg Pálmadóttir sambýliskona hans
keyptu tvær rándýrar íbúðir á besta
stað í New York fyrir milljarð.
Björgólfur Guðmundsson (66)
105 milljarðar
B jörgólfur eldri er dæmi um mann sem skrapaði botninn eftir Hafskipsmálið en reis síðan úr öskustónni. Og þvílík upprisa. Lítil gosdrykkjaframleiðsluvél
varð að 40 milljörðum í Rússlandi og síðan hefur leiðin eingöngu legið upp á
við. Allt sem hann og sonur hans hafa snert hefur orðið að gulli, í tilfelli föðurins
þó sérstaklega Landsbankinn þar sem hlutur þeirra sem keyptur var á 10,7
milljarða hefur vaxið upp í 170 milljarða á tæpum fimm árum. Björgólfi hefur
tekist það sem fáum öðrum hefur tekist. Hann er moldríkur, veit í rauninni ekki
aura sinna tal, en er samt sem áður afar vinsæll. Hann hefur sennilega eytt
meiri tíma á undanförnum árum í að styrkja gott málefni heldur en að reka
Landsbankann og nýtur mikilla vinsælda fyrir vikið. Hann er með ólæknandi
fótboltadellu og eftir að hafa stutt við bakið á sínum mönnum í KR í nokkur ár lét
hann það eftir sér að kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham fyrir 14 milljarða
seint á síðasta ári. Þótt lokatakmarkið sé auðvitað að græða á þessum kaupum
er félagið fyrst og fremst áhugamál hjá Björgólfi. Að vísu kannski svolítið dýrt
áhugamál en ef þú spilar ekki golf og átt 100 milljarða þá skipta nokkrir
milljarðar til eða frá engu máli. Í það minnsta á meðan það er gaman.
Björgólfur Thor Björgólfsson (40)
315 milljarðar
B jörgólfur Thor er langríkasti Íslendingurinn. Þessi fertugi
kaupsýslumaður, sem hélt upp á
afmælið sitt á Jamaíka, á skútuna The
Parsifal og einkaþotu upp á milljarð,
hefur efnast hratt á undanförnum árum.
Hann fór til að mynda upp um rúm
hundrað sæti á milli ára á lista
bandaríska fjármálatímaritsins Forbes
yfir ríkustu menn heims og situr þar í
249. sæti. Á sama tíma stökk hann
upp um sjö sæti, úr 30. sæti í það 23.,
á lista The Sunday Times yfir ríkustu
menn Bretlands. Á báðum listunum
voru eignir hans metnar rétt yfir 250
milljarða. Í dag er hann hins vegar
búinn að bæta verulega við sig. Eftir að
hann seldi 85% hlut sinn í búlgarska
fjarskiptafyrirtækinu BTC með 60
milljarða króna hagnaði nema hreinar
eignir hans um 315 milljörðum.
Björgólfur Thor lagði grunninn að
ríkidæmi sínu í Rússlandi á tíunda
áratug síðustu aldar. Gosdrykkja- og
bjórframleiðsla undir merkjum Bravo í
St. Pétursborg skilaði honum, Björgólfi
föður hans og Magnúsi Þorsteinssyni
um 40 milljörðum árið 2002 þegar
Heineken keypi verksmiðjur þeirra og
vörumerki.
Þegar heim var komið keyptu feðgarnir
rúmlega 45% hlut í Landsbankanum
fyrir 11 milljarða, sem verða að teljast
ansi góð kaup þegar haft er í huga að
nú fimm árum seinna er hlutur þeirra
metinn á rúmlega 160 milljarða.
Feðgarnir eiga einnig stóran hlut í
fjárfestingarbankanum Straumi-
Burðarási en vegur hans hefur vaxið
mikið á undanförnum árum.
Lyfjabransinn hefur líka reynst
Björgólfi gjöfull. Hann keypti hlut í
búlgarska lyfjafyrirtækinu Balkan-
pharma árið 1999 sem og hinu
íslenska Pharmaco. Þessi tvö
fyrirtæki ásamt Delta runnu síðan
saman í Actavis, sem er eitt af
stærstu samheitalyfjafyrirtækjum
heims. Björgólfur Thor á nú rétt
tæplega 35% hlut í fyrirtækinu sem
metinn er á 102 milljarða og hefur
lýst yfir áhuga sínum á því að gera
öðrum hluthöfum yfirtökutilboð.
Og hafi lyfjabransinn verið Björgólfi
góður þá er það þó í fjarskiptaheimin-
um sem hann hefur grætt mest af
öllu. Hann eignaðist 85% hlut í
búlgarska símafyrirtækinu BTC og
seldi hann með 60 milljarða króna
hagnaði ekki alls fyrir löngu. Í fyrra
seldi hann hlut sinn í tékkneska
símafyrirtækinu CRa með 50 milljarða
króna hagnaði. Hann á auk þess hluti
í fjarskiptafyrirtækjunum Elisa í
Finnlandi, Netia og P4 í Póllandi og
Forthnet í Grikklandi.
Miðað við ganginn á Björgólfi Thor
hingað til má búast við því að hann sé
ekki hættur. Hvar sem hann stígur
niður fæti breytist grjót í gull. Eina
spurningin sem spurt er að nú er
hversu lengi hann verður að eignast
500 milljarða?
R Í K U S T U Í S L E N D I N G A R N I R