Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 88
„Gullöldin er núna“. Eitthvað á þessa leið hljómaði aðalfyrirsögn á for-
síðu tónlistarblaðsins The Word nýlega. Árið 2007 hefur farið nokkuð vel
af stað í poppinu (LCD Soundsystem, Of Montreal, The National, Deer-
hunter, Battles, Björk...) og víst er fjölbreytnin mikil, en mér hefði samt
ekki dottið þessi staðhæfing í hug.
Í framhaldi af þessu rifjaðist upp fyrir mér sú kenning að það gerðist
alltaf eitthvað meiri háttar í poppinu á 10 ára fresti:
1967 - ár tónlistarlegrar nýsköpunar og ódauðlegra meistaraverka: Stg.
Peppers (Beatles), Are You Experienced (Hendrix), Forever Changes
(Love), The Doos, The Velvet Underground & Nico, Cold Sweat (James
Brown), I Never Loved A Man The Way I Love You (Aretha Franklin)...
1977 - uppstokkun og umbylting. Pönkið upp á yfirborðið: Never Mind
The Bollocks (Pistols), The Clash, Marquee Moon (Television), New
Boots & Panties (Ian Dury), Pink Flag (Wire), Lust For Life (Iggy Pop)
og líka tvenna David Bowie, Low og Heroes og Exodus með Bob Mar-
ley...
1987 - hip-hoppið kemst almennilega á kortið og fer á nýtt plan sköp-
unarlega: Yo Bum Rush The Show (Public Enemy), Paid In Full (Eric B
& Rakim), Criminal Minded (Boogie Down Productions)... líka Joushua
Tree (U2), Sign o the Times (Prince), Sister (Sonic Youth)...
1997 – ár kraumandi sköpunargleði. Danstónlistin á fullu: Homework
(Daft Punk), New Forms (Roni Size), Portishead, The Fat of the Land
(Prodigy), Dig Your Own Hole (The Chemical Brothers) og líka OK
Computer (Radiohead), Homogenic (Björk) og Baduizm (Erykah Badu)...
Og nú er semsagt komið að næstu byltingu. 2007...
10 ára kenningin
Ein umtalaðasta plata
ársins til þessa er platan
Mirrored með sveitinni
Battles sem kom út fyrir
stuttu. Steinþór Helgi Arn-
steinsson athugaði hvers
vegna.
Tónlist Battles verður ekki hæg-
lega lýst en við skulum samt reyna.
Sveitin var sett saman árið 2003 af
þeim John Stanier, fyrrverandi
trommara Helmet og Tomahawk,
Ian Williams, sem var áður gítar-
leikari Don Caballero, Dave Kon-
opka úr Lynx og Tyondai Braxton.
Tónlist Battles ber því augljósan
keim af bakgrunni meðlimanna en
þar sem fæstir þekkja væntanlega
til þessara sveita skulum við kafa
aðeins dýpra.
Á ensku er lang einfaldast að
kalla tónlist Battles „math-rock“
sem myndi með beinni þýðingu út-
leggjast stærðfræðirokk á íslensku.
Enn og aftur hljótum við að spyrja:
„Og hvað er nú það?“ Stærðfræði-
rokk er nokkuð flókið fyrirbæri og
fær nafn sitt kannski vegna þess.
Tónlistin virðist óþjál, óreiðukennd
og skrítin en er í raun útpæld, hver
einasti tónn er fyrirfram ákveðinn
og öll samsetning gaumgæfilega
hugsuð. Sem sagt eins og flókin en
farsæl stærðfræðiformúla.
Ef nefna ætti fleiri sveitir sem
koma upp í hugann þegar hlustað
er á Battles skýtur íslenska sveit-
in Apparat Organ Quartet fljótt
upp kollinum. Taktfastir og djúp-
ir hljóðgervlar fá þannig sinn sess
hjá Battles og gera tónlistina oft
á tíðum vel dansvæna. Skýrasta
dæmið er án efa lagið Atlas sem
jafnframt var fyrsta smáskífa
plötunnar. Lagið sem á eftir fylgir,
Ddiamondd, er einnig ærslafullt og
frekar dillivænt.
Á plötunni er hins vegar líka
að finna lög sem eru langt frá því
gerð til þess að lífga upp á hlut-
ina. Rainbow fer til dæmis vel með
að æra óstöðugan og Bad Trails er
ekki lag sem maður smellir á fón-
inn yfir notalegri kvöldstund með
kertaljósum og bók við hönd.
En hér eru fleiri hlutir í gangi.
Við finnum 21. aldar útgáfuna af
Marc Bolan, frekar mikið af prog-
rokki (Gentle Giant og ELP), ör-
litla skvettu af Animal Collective
og greinileg áhrif frá raf-likemb-
éum Konono N° 1. Besta lýsingin
er vafalaust: „Metalsveit að spila
Steve Reich.“
Umfram allt er Battles þó ein al-
sérstæðasta sveit sem komið hefur
fram á þessari öld. Á yfirborðinu
er tónlist Battles yfirþyrmandi
og uggvænleg en að baki henni
eru einföld riff sem er endurtek-
in í sífellu, dynjandi og taktfastur
trommusláttur, grípandi bassalín-
ur og undarleg en skemmtileg raf-
hljóð af ýmsu tagi. Furðulegastur
er samt líklegast söngurinn sem
er á tímum skrípalegur en annars
staðar drungalegur eftir afmynd-
un ýmissa effektatækja. „Við erum
ekkert meira instrumental-hljóm-
sveit frekar en rokkhljómsveit
með engan aðalsöngvara,“ sagði
„söngvari Battles“ í nýlegu viðtali
við Pitchfork-vefsíðuna.
Gagnrýnendur hafa líka keppst við
að hampa Battles en Mirrored fékk
næsthæstu meðaleinkunn ársins
á heimasíðunni metacritic.com
sem tekur saman einkunnagjafir
helstu miðla. Þannig hefur platan
fengið fullt hús stiga hjá Guardian
og Stylus Magazine, níu af tíu hjá
Drowned in Sound, Urb og Altern-
ative Press og átta af tíu hjá NME,
BBC Collective og All Music.
„Við einfaldlega prófum öðru-
vísi hluti og gerum það sem okkur
langar til, sem er svalandi,“ sagði
Tyondai rétt áður en platan kom
út. „Þetta er upplífgandi formúla
til þess að hafa innan sveitarinn-
ar, þar sem ekkert hefur farið of
mikið afvega.”
Örvar Þóreyjarson Smára-
son, liðsmaður múm, birtist
einhentur í Kastljósinu á dög-
unum þegar hann spilaði á
munnhörpu í lagi Skakkam-
anage, OFC´s, af plötunni Lab
of Love.
Hann segir að einungis hafi
verið um karakter að ræða sem
honum datt í hug að skapa fyrir
þáttinn. „Þetta var einhentur
blús-munnhörpuleikari. Stór
hluti af karakternum var þegar stubburinn
af hendinni fer á flug þegar munnhörpusól-
óið fer af stað,“ segir Örvar um atriðið. „Mig
langaði að gera eitthvað skemmtilegt því það
er ekki oft sem maður kemur í sjónvarpið.“
Örvar segist ekki hafa fengið margar fyr-
irspurnir út af handarmissinum eftir þátt-
inn. „Ég held að einhverju fólki í Sjónvarp-
inu hafi brugðið þegar það
sá mig og ég held að Svav-
ar [Pétur Eysteinsson úr
Skakkamanage] hafi logið
því að ég hafi lent í þreski-
vél,“ segir hann og hlær.
Býst hann ekki við því
að endurtaka leikinn í
bráð. „Kannski ef blúsinn
kemur yfir mig, ef Vinir
Dóra hringja í mig.“
Fram undan hjá
Skakkamanage eru tónleikar á Primavera-
hátíðinni í Barcelona 2. júní. Hlakkar Örvar
mikið til og bíður einnig spenntur eftir því
að sjá Sonic Youth sem mun á hátíðinni
flytja plötuna Daydream Nation í heild sinni.
Fjórða hljóðversplata múm er síðan vænt-
anleg 24. september en hún var að hluta til
tekin upp á Ísafirði.
Einhentur blúsari
SKRÁÐU ÞIG
NÚNA!
Þeir sem skrá sig fyrir
17. júní fá 10.000
Glitnispunkta strax!
Kynntu þér málið á www.glitnir.is,
í næsta útibúi eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1