Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 1
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
Kaupir Keops | Ole Vagner,
stofnandi danska fasteignafélags-
ins Keops, samþykkti í vikunni til-
boð Pálma Haraldssonar í nær allt
hlutafé hans í félaginu upp á 24
danskar krónur á hlut.
Skoða kaup | Stjórnendur Alfes-
ca skoða nú stór fyrirtækjakaup á
þessu ári. Fyrirtækið er í Evrópu
og með álíka mikla veltu og Alfes-
ca á síðasta ári, 600 milljónir evra,
jafnvirði 50 milljarða króna.
Ábyrgar fjárfestingar | Samein-
aði lífeyrissjóðurinn hefur ákveð-
ið að taka upp reglur Sameinuðu
þjóðanna sem fela í sér að tekið er
tillit til umhverfislegra og félags-
legra þátta við fjárfestingar.
Ræða sameiningu | Viðræður
eru hafnar milli stjórnarformanna
Byrs og Sparisjóðs Kópavogs um
sameiningu sparisjóðanna. Byr er
annar stærsti sparisjóður landsins
en SPK sá fimmti stærsti.
Barátta framundan | Bandaríska
kauphöllin Nasdaq hefur lagt
fram 3,7 milljarða yfirtökutilboð
í OMX-kauphallasamstæðuna. Þá
er kauphöllin í Dubai einnig sögð
ætla að bjóða í OMX.
Betra ár | HB Grandi var rekinn
með 2,4 milljarða króna hagnaði á
fyrsta ársfjórðungi sem er mikill
viðsnúningur frá fyrra ári þegar
tap félagsins nam 1.337 milljón-
um króna.
Hagar hagnast | Fyrirtækið
Hagar, sem meðal annars rekur
Bónus, Hagkaup og fleiri verslan-
ir, skilaði hagnaði upp á 417 millj-
ónir króna á síðasta rekstrarári,
sem stóð frá mars í fyrra til loka
febrúar í ár.
Selja Atlanta | Eimskipafélag Ís-
lands ætlar að selja Air Atlanta
hf. og aðrar flugrekstrartengdar
eignir félagsins. ABN Amro Bank
og Hannesi Hilmarssyni, forstjóra
Air Atlanta hf., hefur verið falið
að sjá um söluna.
Búllan og Sægreifinn
Hrósað af
Washington Post
14
Útrýming fátæktar
Ómöguleg án
einkageirans
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Niðurhal á netinu
Á sér
margar hliðar
8-9
Sími 511 1234 • www.gudjono.is
Fyrstir með
Svaninn
www.trackwell .com
Tíma- og verkskráning
fyrir starfsmenn og tæki
FORÐASTÝRING
Century Aluminum Company, móðurfélag Norður-
áls, hefur farið fram á skráningu á First North Ice-
land-hlutabréfalistann. Félagið er skráð á Nasdaq-
markaðinn bandaríska og verður fyrsta skráða fyr-
irtækið í Bandaríkjunum til að fá skráningu hér.
Í undirbúningi er að auka hlutafé Century
Aluminum um fjórðung og hefst útboðsferli bréf-
anna formlega í dag. Í tilkynningu kemur fram að
söluandvirði hlutanna geti numið allt að 28 millj-
örðum króna miðað við núverandi markaðsverð
og verður stofnana- og fagfjárfestum hér boðið að
taka þátt. Útboðið fer fram á sama tíma hér og í
Bandaríkjunum og stendur út næstu viku. Í fram-
haldinu verður félagið skráð á markaðinn hér.
Umsjón með útboðinu hér er í höndum Kaup-
þings og Landsbankans, en fyrir tveimur árum
önnuðust bankarnir 365 milljóna dala fjármögn-
un vegna stækkunar og endurfjármögnunar álvers
Norðuráls á Grundartanga. Afrakstur útboðsins nú
á að mestu að nota til fjármögnunar á nýju álveri í
Helguvík, en reiknað er með að framkvæmdir geti
hafist þar í byrjun næsta árs.
Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, segir að
hentugast hafi verið að byrja á því að skrá Century
Aluminum á First North-markaðinn en í framhald-
inu sé stefnt á skráningu á aðallista Kauphallarinn-
ar. Þá segir hann erfitt að spá fyrir um þátttökuna
í útboðinu hér, enda lítið um almennar fjárfesting-
ar í orkuiðnaði til þessa. Hann segir skráninguna
hér hins vegar í samræmi við þá stefnu Century
Aluminum að treysta böndin við íslenskt samfélag.
Umsjónaraðilar útboðs Century Aluminum á al-
þjóðavísu eru Credit Suisse Securities (í Banda-
ríkjunum) og Morgan Stanley, en Kaupþing banki
og Landsbanki Íslands sjá um framkvæmdina hér á
landi. Meðal seljenda bréfanna í Bandaríkjunum er
Kaupþing Securities Inc. í New York. - óká
Norðurál í Kauphöllina
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hf. Eimskipafélagið hefur samið um kaup á fjórðungi
hlutafjár í kanadíska félaginu Versacold Income Fund
og leggur fram yfirtökutilboð í allt fyrirtækið upp á 67
milljarða króna, fyrir hönd dótturfélags. Gangi kaup-
in eftir verður Eimskip langstærsta kæli- og frysti-
geymslufyrirtæki heims með starfsemi í 35 löndum í
fimm heimsálfum.
Áætluð velta Eimskips mun fara úr 100 milljörðum
króna í 150 milljarða á næsta ári og rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir (EBITDA) fer hátt í sautján milljarða
króna á næsta ári.
Tilboð Eimskips gildir í 35 daga en alls þurfa eig-
endur tvo þriðju hluta hlutafjár að samþykkja það.
Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins,
leggur á það áherslu að yfirtakan sé gerð í góðri sátt
við hluthafa og stjórnendur félagsins, ólíkt því sem
gerðist við kaupin á Atlas Cold Storage, öðru kanad-
ísku frysti- og kæligeymslufyrirtæki í fyrra. „Þetta
er kölluð vinveitt yfirtaka, það er að segja að stjórn-
in mælir með því við hluthafana að þessu tilboði sé
tekið og bankinn [UBS] sem vinnur fyrir þá mælir
með því líka.“
Versacold er 3. stærsta fyrirtæki Norður-Ameríku
á sínu sviði og rekur um 72 frystigeymslur í Kanada,
Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Argentínu.
Versacold hefur vaxið hratt eins og Eimskip og tók
yfir tvö félög á árunum 2003 og 2005. Velta félagsins
var þrefalt meiri í fyrra en árið áður. Viðskiptavinir
eru fjórða þúsund og starfsmenn 4.500 talsins. „Þetta
er mjög heilbrigður rekstur og gott fyrirtæki,“ segir
forstjórinn Baldur Guðnason.
Markaðsstaða Eimskips verður einstök ef yfirtakan
heppnast en ekkert fyrirtæki keppir við það á heims-
vísu. Eimskip verður með þétt net 180 frysti- og kæli-
geymsla í fimm heimsálfum auk hefðbundinnar flutn-
inga- og skipastarfsemi. „Það er aukin eftirspurn
eftir flutningum á frysti- og kælivörum og menn eru
að færa þetta frá einum markaði til annars,“ bend-
ir Baldur á.
Baldur sér mikil tækifæri með Atlas og Versacold.
Versacold er sterkt á svæðum í Norður-Ameríku þar
sem Atlas er veikt og öfugt. Viðskiptavinahópurinn
í Norður-Ameríku breikkar og ný tækifæri í öðrum
heimsálfum skapast, til dæmis í Suður-Ameríku og
Eyjaálfu. „Samanlagt verður þetta eitt af tveimur
stærstu félögum í Norður-Ameríku hvað varðar mark-
aðshlutdeild.“
Kaupin hafa verið fjármögnuð að fullu með fjár-
magni frá Eimskip og lánsfé frá Royal Bank of Canada
og KingSett. Baldur býst við að áttaíu prósent kaup-
verðs verði fengið að láni en reiknar með að félag-
ið greiði skuldir hratt niður með eignasölu, til dæmis
með því að leysa að hluta upp eignir Versacold og af
Eimskip stærst sinnar
tegundar í heiminum
Hf. Eimskipafélagið stefnir að yfirtöku á Versacold, þriðja
stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki N-Ameríku.
Gnúpur fjárfestingafélag er orð-
inn sautjándi stærsti hluthafinn í
Straumi-Burðarási Fjárfestinga-
banka með 0,77 prósenta hlut.
Í ljósi sögunnar þá eru þetta at-
hyglisverð kaup, enda fara þeir
Þórður Már Jóhannesson, Magnús
Kristinsson og Kristinn Björns-
son fyrir Gnúpi. Þeir og Björ-
gólfur Thor Björgólfsson, stjórn-
arformaður Straums-Burðaráss,
elduðu grátt silfur saman í átök-
unum um Straum í fyrrasumar
eins og margir muna. - eþa
Gnúpur kaupir
í Straumi
Samkvæmt niðurstöðum ný-
legrar málstofu Seðlabanka Ís-
lands er viðskiptahalli síðasta
árs minni þegar verðbreytingar
verðbréfa eru taldar með þátta-
tekjum.
Vegna þessa segir greiningar-
deild Glitnis að vera kunni að
gengi krónunnar þurfi ekki að
lækka jafnmikið og ráð hafi verið
fyrir gert til að koma hagkerf-
inu í ytra jafnvægi. „Munurinn
skýrir þó ekki nema hér um bil
fimmtung viðskiptahallans 2006
og er ljóst að ytra ójafnvægi hag-
kerfisins á síðasta ári var eftir
sem áður mikið,“ segir í umfjöll-
un Glitnis. - óká
Halli ofmetinn
um fimmtung
Kristlaug María Sigurðardóttirrithöfundur féll fyrir gamallikirkju í vinnuferð um Tallinn.
„Ég fór til Tallinn til að kynna mérnýjungar í teiknimyndagerð fyrir íslenska sjónvarpsþáttaseríu ogkvikmynd um Ávaxtakörfuna sem ég er að vinna að og verður sýnd á næsta ári,“ segir Kristlaug MaríaSigurðardóttir rithöfundur.Kristlaug hafði aldrei heimsóttborgina áður og notaði því tæki-færið til að skoða sig um þegartækifæri gafst. „Ég tók einn túr-istadag og gekk u b
„Kirkjan heitir Alexander Nevskydómkirkjan og er merkileg fyrirmargra hluta sakir, meðal annarsþá staðreynd að Rússar ákváðu aðhlífa gamla hluta hennar þegar þeir sprengdu Tallinn í tætlur í seinniheimsstyrjöldinni. Hefði kirkjunn-ar ekki notið við væri gamli bær-inn því líklegast ekki til í dag.“Kristlaug mælir hikstalaust meðað fólk kíki í kirkjuna eigi það leiðum Tallinn og fari þá helst í messu, sem er um sexleytið. „Ég fór í kirkj-una um það leyti og fannst upplif-unin mögnuð. Þarna þuldiur b
Fagmenntaðir kayak kennararog leiðsögumenn
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLAHeimagisting á besta stað í bænum.Býður alla Íslendinga velkomna.Geymið auglýsinguna.www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
„Nú er komin upp sú
sorglega staða að útgerðirnar neita
að styrkja sjómennina til að halda
sjómannadaginn hátíðlegan,“ segir
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, en engin
hátíðarhöld verða á Akureyri í
tengslum við sjómannadaginn á
sunnudaginn. Sjómannadagurinn
hefur verið haldinn hátíðlegur í
bænum síðan árið 1939 og sam-
kvæmt Konráði er þetta í fyrsta
skiptið sem á því verður breyting.
„Auðvitað halda sjómenn og
fjölskyldur þeirra daginn hátíð-
legan en það er sorglegt þegar
útgerðirnar í einum stærsta
útgerðarbæ landsins sjá sér ekki
fært um að styrkja sjómennina
okkar um það lítilræði sem þarf til
að halda daginn hátíðlegan.
Útgerðirnar eru hins vegar að
styrkja hátíðir í öðrum bæjar-
félögum,“ segir Konráð.
Sjómannafélag Eyjafjarðar mun
funda um málið en Konráð segir
engin tök á að koma dagskrá
saman tímanlega. „En nú er botn-
inum náð og hann er góður til að
spyrna sér upp.“
Neita að styrkja sjómennina
Lærði teiknimynda-
gerð í Tallinn
NEXT-BÆKLINGURINN
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
26
79
/
IG
07
Þú færð
IG-veiðivörur
á næstu
Þjónustustöð
Nýsköpun er dráttar-
klár framtíðarinnar
íslenskur iðnaður
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007
nn.is
Gunnar Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, segir
koma til greina að hætta sam-
starfi um rekstur Strætó bs. Þessa
skoðun lét hann í ljós á stjórnar-
fundi Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu sem bæjar-
stjórar nágrannasveitarfélaganna
sátu í þessum mánuði. Segist hann
hafa viðrað þá hugmynd að minni
sveitarfélögin rækju sameigin-
lega strætólínu sem næði frá
Hafnarfirði til Reykjavíkur. Það
væri svo í verkahring hvers
bæjarfélags fyrir sig að koma
farþegum í þá strætólínu. Gangi
þetta eftir verður samstarfi um
rekstur Strætó bs. í núverandi
mynd hætt.
Gunnar segir að auðvitað sé
ákjósanlegast að bæjarfélögin
standi saman að þessum rekstri.
„Hins vegar kemur þetta til greina
þegar menn ganga ekki í takt.
Sívaxandi halli hefur verið á
rekstri Strætó undanfarin ár. Talað
hefur verið um að hagræða í
rekstrinum og minnka niður-
greiðslur. Á sama tíma eru samt
uppi kröfur um að allt verði frítt.
Það liggur í augum uppi að ekki er
hægt að gera hvort tveggja í einu,“
segir bæjarstjórinn.
Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi,
segir marga líta þannig á að illa
hafi verið haldið á málefnum
Strætó undanfarna mánuði og ár.
Stjórn fyrirtækisins hafi verið
handahófskennd. Ákvarðanir
sem varði reksturinn séu teknar
í hinum og þessum sveitarfélög-
um en ekki á vettvangi Strætós
sjálfs.
Undir þetta tekur Gunnar Birgis-
son og fleiri sveitarstjórnarmenn
sem Fréttablaðið ræddi við í gær.
Í apríl hafi til dæmis Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri tilkynnt
að frítt yrði fyrir alla námsmenn í
Strætó frá næsta hausti. Þá hafi
borgaryfirvöld ákveðið rétt eftir
síðustu sveitastjórnarkosningar
að kosta leið
Strætós upp í
Hádegismóa.
Þegar á reyndi
hafi það komið í
hlut allra sveit-
arfélaganna að
greiða fyrir pól-
itíska ákvörðun
eins sveitarfé-
lags.
Gunnar krafð-
ist þess á stjórn-
arfundi Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu 7. maí síðast-
liðinn að málefni Strætó yrðu
rædd. Þar gagnrýndi hann meðal
annars Vilhjálm borgarstjóra fyrir
það hvernig haldið væri á málum
varðandi rekstur fyrirtækisins.
Tóku allir forystumenn í Samtök-
um sveitarfélaga þátt í þessum
umræðum á stjórnarfundinum og
sýndist sitt hverjum.
„Ef við stöndum ekki saman
þurfa menn að athuga sína stöðu,“
segir Gunnar en vill ekki tjá sig
um umræður á stjórnarfundum
Samtaka sveitarfélaga, sem séu
trúnaðarmál.
Jónmundur Guðmarsson vill
ekki heldur tjá sig um það sem
rætt var á stjórnarfundinum 7.
maí. Hann segist lengi hafa verið
þeirrar skoðunar að óstjórn hafi
verið á fjármálum Strætó og er
ósáttur við nýja skiptingu kostn-
aðar sem tekin var upp um síð-
ustu áramót. Gjöld sveitarfélag-
anna vegna Strætó hafi hækkað
verulega án þess að meiri þjón-
usta kæmi fyrir. Á sama tíma
fækkaði notendum almennings-
samgangna á Seltjarnarnesi.
„Út frá okkar sjónarmiði má
færa ýmislegt til betri vegar,“
segir Jónmundur.
Samstarf um
Strætó í hættu
Bæjarstjóri Kópavogs er ósáttur við stjórn Strætó.
Sveitarstjórnarmenn ósáttir við kostnaðarskiptingu.
Hugmynd að skipta upp sameiginlegum rekstri.