Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 4

Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 4
VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD www.hi.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 74 76 0 5/ 07 METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM 6 námsleiðir BA í hagfræði BS í hagfræði BS í fjármálum Umsóknarfestur er til 5. júní. Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr. Styrktu stöðu þína og sæktu um. Rafræn skráning og upplýsingar um námið eru á vef viðskipta- og hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is. BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum BS í reikningshaldi BS í stjórnun og forystu George W. Bush Bandaríkjaforseti fyrirskipaði í gær nýjar efnahagsþvinganir gegn Súdan, í því skyni að þrýsta á Súdanstjórn að grípa til ráðstaf- ana til að stöðva átökin í Darfúr- héraði sem Bandaríkjastjórn hefur fordæmt sem þjóðarmorð. „Ég heiti fólkinu í Darfúr þessu: Bandaríkin munu ekki hafa augun af ástandi sem ögrar samvisku heimsbyggðarinnar,“ sagði Bush. Talsmenn Súdanstjórnar gagn- rýndu aðgerðirnar harkalega, sögðu þær „ósanngjarnar og ótímabærar“ og hvöttu aðrar þjóðir heims til að leiða þær hjá sér. Þvingunaraðgerðirnar beinast gegn ríkisreknum fyrirtækjum sem tengjast olíuiðnaði Súdans, auk þriggja einstaklinga, þar á meðal þekkts forsprakka skæru- liða, sem grunaðir eru um að eiga þátt í ofbeldisverkunum í Darfúr. „Í of langan tíma hafa íbúar Darfúr þjáðst fyrir hendi ríkis- stjórnar sem er meðsek um sprengjuárásir, morð og nauðganir á saklausum borgurum,“ sagði Bandaríkjaforseti. „Ríkisstjórn mín hefur kallað þessar aðgerðir réttu nafni: þjóðarmorð. Það er á ábyrgð heimsbyggðarinnar að binda enda á það.“ Bush var tilbúinn að tilkynna þessar refsiaðgerðir í síðasta mán- uði, en beið með það til að gefa Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, tækifæri til að gera eina atlögu í viðbót að því að finna samningalausn á þessari fjögurra ára gömlu deilu. Á þeim tíma hefur geisað borgarastríð í Darfúr sem kostað hefur yfir 200.000 manns lífið. Auk hinna nýju bandarísku refsi- aðgerða gaf Bush utanríkisráðherr- anum Condoleezzu Rice fyrirmæli um að leggja fram drög að nýrri ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, í því skyni að auka alþjóð- legan þrýsting á Súdanstjórn. „Ég skora á al-Bashir forseta að hætta hindrunaraðgerðum sínum og heimila friðargæslulið- um að halda til Darfúr til að binda enda á ofbeldisölduna sem bein- ist gegn saklausum mönnum, konum og börnum,“ sagði Bush. Omar Al-Bashir Súdanforseti samþykkti í nóvember síðastliðn- um áætlun Sameinuðu þjóðanna um að styrkja í áföngum friðar- gæslulið Afríkusambandsins í Dar- fúr, en í því hafa þjónað um 7.000 hermenn sem lítið hafa ráðið við ástandið. Um helgina ítrekaði al- Bashir aftur á móti andstöðu sína við að sent yrði allt að 22.000 manna sameiginlegt friðargæslulið SÞ og Afríkusambandsins á vettvang. Hann gæti aðeins fallist á að minna lið Afríkusambandsins nyti viss tæknilegs stuðnings frá Samein- uðu þjóðunum. Þrýsta á ríkisstjórn Súdan að stöðva átökin í Darfúr George W. Bush tilkynnti í gær um efnahagsþvinganir gegn Súdan, sem hafa að markmiði að þvinga stjórnvöld til ráðstafana svo stöðva megi átökin í Darfúr og hleypa inn fjölmennara friðargæsluliði. Líklegt er að landeig- endur á Norðausturlandi höfði mál á hendur ríkinu til að hnekkja úrskurðum óbyggðanefndar um Norðausturland. Nefndin féllst á sumar kröfur fjármálaráðherra á svæðinu en hafnaði öðrum. Óbyggðanefnd úrskurðaði í gær í fimm málum á Norðaustur- landi. Ólafur Björnsson, lög- maður fjölmargra landeigenda á svæðinu, sagði eftir að úrskurður- inn féll í Þjóðmenningarhúsinu í gær að hann ætti frekar von á því að þeir landeigendur sem hefðu orðið undir í málinu færu með málið fyrir dóm. Landeig- endurnir hafa sex mánuði til að höfða mál til ógildingar úrskurð- inum. Ólafur benti til að mynda á að jörðin Valþjófsstaður, prestsetur sem áður var stórbýli, yrði eftir úrskurð óbyggðanefndar á stærð við frímerki. Hann sagðist þó ekki ósáttur við úrskurðina í heild, þar væru kostir og gallar. Landeigend- ur hefðu haft betur í hluta og ríkið fengið sínu framgengt að hluta. Þjóðlendukröfur ríkisins voru að stærstum hluta teknar til greina á Fljótsdal og austan Jökulsár á Jökuldal. Norðan og vestan Jökul- ár á Jökuldal voru kröfurnar tekn- ar til greina, en kröfum í Jökulsár- hlíð hafnað. Í landi Vopnafjarðarhrepps var fallist á kröfur ríkisins um þjóð- lendur, nema kröfu á Smjörfjalls- svæði var hafnað. Þjóðlendukröfur vegna Svalbarðs-, Þórshafnar- og Skeggjastaðahrepps voru teknar til greina að hluta, sem og í sunnan- verðum Öxarfjarðarhreppi. Mun færri tígrisdýr lifa villt í náttúru Indlands en áður var talið, og hafa þau þó lengi verið sögð í útrýmingar- hættu. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr nýrri rannsókn eru tígrisdýrin í sumum ríkjum Indlands allt að 65 prósentum færri en sérfræð- ingar höfðu talið. Árið 2001 var áætlað að indversku bengaltígrisdýrin væru um fimm til sjö þúsund, þar af um helmingurinn á Indlandi. Dýraverndarsinnar telja réttara að áætla heildarfjöldann vera nálægt tvö þúsund dýr, eða hugsanlega einungis nokkur hundruð. Nýja rannsóknin á að skera úr um hver rétta talan er. Tígrisdýrunum fækkar stöðugt Þróunarsamvinnustofn- un heldur á fimmtudag ráðstefnu um fjárfestingartækifæri í þróunarlöndum. Ráðstefnan, sem verður á Hótel Sögu, er haldin í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Útflutningsráð og Fiskifélag Íslands. Í fréttatilkynningu segir að á ráðstefnunni verði leitast við að leiða saman þá sem hafa reynslu af starfi í þróunarlöndum og þá sem leita tækifæranna. Auk íslenskra fyrirlesara munu meðal annars Kieran Kelleher frá Alþjóðabankanum og Bernadette Artivor frá Fjárfestingarstofu Namibíu halda erindi. Fjárfestingar í þróunarlöndum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.