Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 8
Hvað var urriðinn sem
Börkur Birgisson veiddi á stöng
í Þingvallavatni mörg pund?
Hvað heitir formaður
íslensku sendinefndarinnar á
fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins?
Hvað er lið KR í Lands-
bankadeild karla búið að vinna
marga leiki í sumar?
Yfirheyrslur yfir
fjórum einstaklingum, sem allir
tengjast Baugi Group, vegna ætl-
aðra skattalagabrota hafa staðið
yfir hjá efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra undanfarna daga
og eru nú langt komnar.
Skattrannsóknarstjóri kærði
fjóra einstaklinga og þrjú fyrir-
tæki, sem öll tengjast Baugi á einn
eða annan hátt, til ríkislögreglu-
stjóra í nóvember 2004.
Í bréfi sem Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs
Group, sendi ríkislögreglustjóra
og fjölmiðlum í október 2006
kemur fram að hann sjálfur sé
meðal þeirra sem liggi undir
rannsókn. Rannsóknin beinist
einnig að Baugi Group og Fjár-
festingafélaginu Gaumi, fjöl-
skyldufyrirtækis Jóns Ásgeirs.
Málið er tvískipt. Ríkislög-
reglustjóri rannsakar meint
skattalagabrot en yfirskatta-
nefnd hefur til meðferðar álita-
efni um skattskyldu vegna
meintra brota, segir Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrota hjá ríkislögreglu-
stjóra.
Hann segir hugsanlegt að
ákvörðun yfirskattanefndar geti
haft áhrif á meðferð skattamáls-
ins. Verið sé að skoða hvort hægt
verði að ljúka málinu hjá efna-
hagsbrotadeild óháð yfirskatta-
nefnd, eða hvort bíða þurfi niður-
stöðu nefndarinnar.
Meðferð Baugsmálsins í hér-
aðsdómi í febrúar og mars varð
til þess að fresta þurfti yfir-
heyrslum, segir Helgi, erfitt geti
verið að finna tíma fyrir yfir-
heyrslur sem henti öllum.
Yfirheyrslur sagðar vera langt komnar
Aðsókn útlendinga í
íslenskunám hjá Mími-símenntun
hefur aldrei verið meiri. Árið 2006
sóttu 1.550 nemendur íslensku-
nám hjá Mími og kennslustundum
fjölgaði um 115 prósent frá árinu
áður. Þetta er meðal þess sem
kynnt var á ársfundi Mímis í gær.
Hulda Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mímis, segir að
íslenskukennslan hafi vaxið mikið.
„Það er tvennt sem kemur til. Í
fyrsta lagi hefur útlendingum
fjölgað og hins vegar fengum við
nú í fyrsta skipti styrk frá ríkinu
og gátum því lækkað gjöldin um
helming,“ segir Hulda.
Í nóvember á síðasta ári ákvað
ríkisstjórnin að verja 100 milljón-
um til íslenskukennslu fyrir
útlendinga árið 2007. Öllum þeim
peningum hefur nú verið varið.
Hulda segir mikilvægt að tryggja
framtíð íslenskukennslunnar og
koma kennslunni í fastari skorður
svo auðveldara sé að skipuleggja
fram í tímann. Hún er bjartsýn á
að tekið verði til í þessum mála-
flokki og bendir á að í stefnuyfir-
lýsingu Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks sé boðað átak í
íslenskukennslu fyrir útlendinga.
Mímir er stærsti fagaðilinn á
sviði íslenskukennslu en þar er
einnig boðið upp á fjölmörg önnur
námskeið. Í vetur hafa fjölmargar
erlendar konur sem starfa við
umönnun á öldrunarstofnunum
stundað nám á félagsliðabrú sem
er nám á framhaldsskólastigi, sér-
sniðið fyrir útlendinga í þessum
störfum.
Fyrrverandi
gjaldkeri starfsmannafélags
Norðuráls hefur játað að hafa
dregið sér á aðra milljón króna úr
sjóðum félagsins. Skessuhorn.is
segir frá þessu.
Gjaldkerinn gat ekki framvísað
neinum reikningum á aðalfundi
félagsins 4. maí og við athugun á
bankayfirliti félagsins komu í ljós
grunsamlegar færslur sem ekki
fengust skýrðar.
Maðurinn er hættur störfum
hjá Norðuráli. Málið hefur verið
afhent lögfræðingum til eftir-
fylgni, en fram kemur í tilkynn-
ingu frá félaginu að fjárhags-
staða þess sé enn traust.
Játar fjárdrátt
úr félagssjóði
Nafni Höfða-
hrepps verður breytt í Skaga-
strönd eftir eina þéttbýliskjarna
sveitarfélagsins.
Kosið var um þetta í nýafstöðn-
um alþingiskosningum. Í boði var
annars vegar að hafa Höfða-
hreppsnafnið áfram eða breyta
því í sveitarfélagið Skagaströnd.
Tæp 74 prósent þeirra sem
greiddu atkvæði reyndust hlynnt
nafnbreytingunni.
Höfðahreppur
að Skagaströnd