Fréttablaðið - 30.05.2007, Page 21
Kristín Jónsdóttir gengur
stundum undir nafninu Parísar-
daman en hún hefur búið í
París til fjölda ára. Hún býður
upp á gönguferðir með leiðsögn
um borgina fyrir íslenska ferða-
menn og tekur að sér að skipu-
leggja nánast hvað sem er.
Kristín hefur síðustu ár verið
með skipulagðar gönguferðir
fyrir Íslendinga um París, en hún
hefur búið í borginni til fjölda
ára og þekkir hana vel. „Ég hef
lengi verið mjög áhugasöm um
París og dugleg að lesa mér til,“
segir hún.
Kristín talar reiprennandi
frönsku en hún byrjaði að læra
hana strax í menntaskóla. „Frá því
að ég man eftir mér þráði ég að
kunna frönsku og fara til Frakk-
lands svo ég leitaði mikið eftir
franskri menningu og tónlist löngu
áður en ég varð eitthvað fullorð-
in. Mér fannst alltaf að ég ætti að
fara til Parísar en ég get í rauninni
ekkert útskýrt af hverju. Eftir
stúdentspróf kom ég svo hingað
sem au pair til fransk-líbanskrar
fjölskyldu og hef verið hér meira
og minna síðan,“ segir hún.
Hægt er að velja á milli göngu-
ferða með Kristínu um nokkur
ólík hverfi í París. „Ég er náttúr-
lega með tvö elstu hverfin, Lat-
ínuhverfið og Mýrina, þar sem
er auðvelt að sýna París fortíð-
arinnar. Latínuhverfið er svo-
lítið svona nítjándu aldar hverfi
á meðan Mýrin er meira sautj-
ándu aldar hverfi. Ég er líka með
gönguferðir um Montmartre sem
er skemmtilegt listamannahverfi
frá aldamótunum nítjánhundruð.
Þar má sjá París í því rómantíska
ljósi sem hún er sýnd í myndinni
Amelie en sú mynd var tekin upp
í þessu hverfi auk margra fleiri
mynda. Svo er ég náttúrlega með
Bellevilletúrinn sem er bara
allt, allt annað. Hann sýnir París
kannski mest eins og hún er í dag
en handbækur um París vísa fólki
ekki þangað, nema kannski í Père
Lachaise-kirkjugarðinn. Ég mæli
með því að fólk byrji ferðina á
að koma í túr því það er miklu
skemmtilegra að skoða París upp
á eigin spýtur þegar maður hefur
fengið smá leiðsögn.“
Auk þess að ganga um borgina
með íslenska ferðamenn tekur
Kristín að sér að skipuleggja ým-
islegt annað ef óskað er eftir því.
„Ég geri í raun og veru allt sem
fólk biður mig um, innan allra
velsæmismarka,“ segir hún og
hlær. „Sumir hópar vilja fá skipu-
lagða dagskrá frá a til ö alla daga
og þá sé ég bara um allt, finn
veitingastaði, kaupi miða á söfn
og svo framvegis.“
Hóparnir sem Kristín hefur
verið að taka á móti hafa verið
margs konar að hennar sögn. „Ég
hef fengið hópa af öllum stærð-
um og gerðum og aldri. Allt frá
menntaskólanemum upp í gamal-
menni sem eru loksins að koma
til Parísar. Þetta hefur gengið
vonum framar því ég vissi náttúr-
lega ekkert hvað ég var að fara út
í þegar ég byrjaði og gerði mér
enga grein fyrir því hvort þetta
myndi ganga. En flestir eru mjög
ánægðir og ég virðist hafa skapað
mér góðan orðstír,“ segir Kristín
ánægð.
Frekari upplýsingar um
Kristínu, gönguferðirnar, hótel,
veitingahús og fleira má finna á
heimasíðu hennar, www.parisar-
daman.com. Einnig má geta þess
að Íslendingar í Frakklandi geta
sett smáauglýsingar inn á síðuna,
hvort sem þeir eru að leita eftir
húsnæði, barnapössun eða ein-
hverju öðru.
Í fylgd með Parísardömu
Iceland Express flýgur nú
beint til Parísar.
París er einn af fimm nýjum
áfangastöðum sem bæst hafa við
hjá Iceland Express auk Basel,
Billund, Eindhoven og Oslóar.
Flogið verður til Parísar tvisvar til
þrisvar sinnum í viku frá 15. maí til
31. ágúst, til Basel alla laugardaga
frá 1. júní til 31. ágúst, til Billund
tvisvar í viku frá 1. júní til 14. sept-
ember, til Eindhoven tvisvar í viku
frá 1. júní til 31. ágúst og til Osló-
ar tvisvar í viku frá 15. maí til 31.
ágúst.
Í París er margt hægt að gera,
hvort sem er að þræða fataverslan-
ir í þessari háborg tískunnar, upp-
lifa franska menningu og bygging-
arlist í söfnum og kirkjum, gæla við
bragðlaukana með franskri matar-
gerðarlist eða bara sitja á notalegu
kaffihúsi með glas af rauðvíni og
njóta þess að fylgjast með fjöl-
breyttu mannlífinu.
Paris, ć est la vie!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A