Fréttablaðið - 30.05.2007, Qupperneq 62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Já, nú var önnur stórkanóna að
ganga til liðs við Uppheima. Ég
var að semja við Böðvar Guð-
mundsson rithöfund um útgáfu á
næsta skáldverki hans sem heitir
Sögur úr þýðunni,“ segir Kristján
Kristjánsson útgefandi hins litla
en mjög svo vaxandi forlags Upp-
heima sem á varnarþing á Akra-
nesi.
Stórtíðindi í bókmenntageiran-
um eru að Böðvar Guðmundsson
sé að senda frá sér nýtt skáldverk
en árið 1997 hlaut hann íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir Lífs-
ins tré sem var framhald Híbýla
vindanna: Bækur sem fjalla um
ferðir Íslendinga vestur um haf og
nutu þær mikilla vinsælda og röt-
uðu á svið Borgarleikhússins. En
þá vekur einnig athygli að Böðvar
skuli kjósa Uppheima til að búa
næsta verk sitt til prentunar en nú
virðist kvarnast mjög úr fríðum
hópi rithöfunda Eddu útgáfu, en
þar var Böðvar áður. Og þeir finna
sér stað hjá Kristjáni uppi á Skaga
margir hverjir. Þannig gekk Gyrð-
ir Elíasson nýverið til liðs við Upp-
heima en áður hafa skrifað undir
samninga við Kristján þeir Ævar
Örn Jósepsson, Bjarni Bjarna-
son og Ari Trausti Guðmundsson.
Á skömmum tíma hafa því fimm
höfundar Eddu gengið til liðs við
Uppheima og virðist blasa við að
komið sé rót á höfunda þar á bæ.
Kristján kann aðspurður engar
sérstakar skýringar á því hvers
vegna þessir ágætu rithöfundar
hafa gengið á mála hjá sér.
„Ekki spyrja mig að því. Ætli
ég taki ekki bara vel á móti
mönnum? Það er það eina sem
mér dettur í hug.”
Uppheimar eru þegar farn-
ir að undirbúa að krafti út-
gáfu sína fyrir næstu jóla-
bókavertíð. Ný skáldsaga eftir
Ara Trausta er væntanleg,
forvitnilegt verk að sögn
Kristjáns, þar sem hann í
skáldskaparformi glím-
ir við sögu fjölskyldu
sinnar. Nýtt skáldverk
eftir Bjarna Bjarnason
er væntanlegt svo eitt-
hvað sé nefnt, auk þýð-
inga. Eiríkur Örn
Norðdahl þýðir nú
sem mest hann má
ljóð eftir Allen Gins-
berg, Eiríkur Örn
þýðir einnig þekkt-
asta verk skáldkon-
unnar Joanne Harris, Chocolat, og
til stendur að gefa út á næsta ári
nýjustu bók hennar: The Lollipop
Shoes. Það er svo ekki minni spá-
maður en Jón Kalmann sem þýðir
Loftskeytamann Hamsuns. Hvað
er að gerast?
„Það sem er að gerast er að út-
gáfan mín er að taka sér afger-
andi stöðu í að gefa út íslenskar
bókmenntir og vandaðar þýðing-
ar. Ævar Örn með bók? Það er ekki
ljóst á þessari stundu. Gæti orðið.
En ég þori ekkert að segja til um
það fyrr en í ágúst,” segir Kristj-
án.
„Ég er bara tímalaus hvað
útlitið varðar. Móðir mín sáluga
sagði mér um fermingu að ég
yrði sköllóttur um fertugt ef ég
klippti mig ekki, ég varð 55 ára
í sumar og er enn svona. Ég er
meira að segja með síðara hár
í dag.“
„Það hefur sýnt sig að honum var
lagður einhver annar standard að
lifa samkvæmt en öðrum kepp-
endum,“ segir Vilhjálmur Bergs,
lögmaður Ólafs Geirs Jónssonar.
Fyrirtaka var í gær í sérstæðu
máli en Ólafur Geir höfðar skaða-
bótamál á hendur Arnari Laufdal
Ólafssyni og Fegurðarsamkeppni
Íslands vegna þess að hann var
árið 2005 sviptur titlinum Herra
Íslands. Kröfur sem gerðar eru
af hálfu Ólafs eru tvær milljónir
með vöxtum. Fyrirtakan í gær var
sú fyrsta, en þá hittu aðilar
málsins dómarann þann sem
fengið hefur málið á sitt
borð. Ólíklegt er að málið
verði flutt fyrir réttarhlé
sem stendur lungann úr
sumrinu.
Að sögn Vilhjálms er
málið með mestu ólíkind-
um og svo virðist sem aðstand-
endur hafi einfaldlega verið ósátt-
ir við að Ólafur Geir hafi sigrað
og fyrsta tækifærið notað til að
svipta Ólaf Geir titlinum. Hann
segir það að mörgu leyti sambæri-
legt við ólögmæta uppsögn sem
fylgdu meiðandi ummæli. Titillinn
var tekinn af honum á ólög-
mætan hátt að menn vilja
meina og síðan fylgdu því
órökstuddar dylgjur:
„Að hann hafi ekki
staðið undir væntingum
og gefið í skyn að hann
væri dópisti og
fyllibytta. En þetta
er bara strákur um tvítugt sem er
til fyrirmyndar, reykir ekki, er í
íþróttum og hefur unnið til verð-
launa í skák. Það er í góðu lagi
með þennan dreng og með ólík-
indum hvernig hefur verið farið
með hann. En málið er tilraun til
að rétta hans hlut og fá einhvern
hluta mannorðs hans til baka,”
segir Vilhjálmur.
Titillinn metinn á tvær milljónir
X-Factor þáttaröðin verður með
breyttu sniði í haust. Að þessu
sinni munu þjóðþekktir einstakl-
ingar berjast um þennan titil sem
hinn færeyski Jógvan hampaði
fyrr á þessu ári. Pálmi Guð-
mundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, stað-
festi þetta í samtali við
Fréttablaðið en vildi að
öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
Undirbúning-
ur fyrir þátt-
inn hefur
staðið yfir
í dágóðan
tíma og
hyggjast
Stöðv-
ar 2 menn fara á stúfana á næst-
unni til að leita að hentugum þátt-
takendum. Ekki liggur fyrir hvort
hin þriggja manna dómnefnd,
þau Einar Bárðarson, Páll Óskar
Hjálmtýsson og Q4U-Ellý verði
með aftur en það þykir þó lík-
legra heldur en hitt.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var ekki vilji
til þess innan sjónvarps-
stöðvarinnar að fara á stúf-
ana og leita að næstu vonar-
stjörnu Íslands með tilheyr-
andi kostnaði. Töldu þeir
meðal annars að hæfileikabrunn-
urinn hefði verið tæmdur í bili.
Stöð 2 hefur nú staðið fyrir þrem-
ur Idol-keppnum og einni X-Fact-
or þáttaröð og hefur gengi sigur-
vegaranna verið rysjótt þótt menn
bindi vonir við að Jógvan nái við-
líka vinsældum og
Hildur Vala.
X-Factor: Battle of
the Stars, eins og
þátturinn heitir
á frummálinu,
naut gríðar-
legra vinsælda
í heimalandi
sínu, Bretlandi,
en þar voru
tekjurnar af
símaatkvæða-
greiðslunni notaðar til að styrkja
góð málefni. Þættirnir eru byggð-
ir upp á svipaðan hátt og X-Factor
og fá dómararnir úthlutað sínum
hóp. Simon Cowell, hugmynda-
smiðurinn á bakvið X-Factor, blés
þáttaröðina hins
vegar af í fyrra og
sagðist ekki ætla
gera aðra slíka.
Frægir berjast í næsta X-Factor
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is