Fréttablaðið - 30.05.2007, Síða 28
MARKAÐURINN 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
slendingar eru fljótir að hugsa og
taka ákvarðanir. Þeir skella sér í hlut-
ina. En hraðinn getur komið niður
á skipulagningu vöruhúsa,“ segir
Tommy Högberg, forstjóri og aðaleig-
andi sænsku verkfræðistofunnar ProLog,
sem sérhæfir sig í bestun, þróun og skil-
virkni í birgðastýringu vöruhúsa. Hann
segir mörg fyrirtæki hér á landi aftar-
lega á merinni hvað birgðastýringu varð-
ar. En þótt yfirleitt sé ágætlega að verki
staðið megi alltaf gera betur. Tommy, sem
var staddur hér á landi á dögunum í tilefni
útibús ProLog, segir nóg að gera enda hafi
fyrirtækið ákveðið að sérhæfa sig ein-
göngu í birgðastýringu vöruhúsa.
Tommy Högberg, sem hefur um þrjá-
tíu ára reynslu á sínu sviði, er þekktur
í þessum fræðum í heimalandi sínu og
hefur hann verið nefndur konungur best-
unar í skandinavískum tímaritum. Hann
á langan feril að baki, er fæddur í Borås
í Svíþjóð, sem skiptir höfuðmáli, að hans
sögn. Bærinn er þekktur fyrir vefnaðar-
framleiðslu og iðnað hvers konar. Að sögn
Tommys hefur iðnaðurinn kallað á skil-
virka birgðastýringu í vöruhúsum og
stendur bærinn framarlega á því sviði. Og
ekki spillir fyrir að Svíar eru gefnir fyrir
vörulista hvers konar, sem aftur krefst
þess að nauðsynlegt er að byggja upp góð
vöruhús til að geyma allar þær vörur sem
boðið er upp á í listunum.
Að sögn Tommys skiptir skipulagning
vöruhúsa miklu máli. Best sé að hafa
vörur sem seljist vel fremst í vöruhús-
inu en þær sem síður seljist aftar. Þetta
er hins vegar nokkuð sem margir flaska
á, að hans sögn.
Tommy segir það ekki skipta minna
máli að kunna að gera marga hluti í einu
þegar náð sé í vörur í vöruhús í stað þess
að ná í einstaka hlut. Ólíkt því sem ætla
mætti gera það margir og þurfa því að
fara margar ferðir fram og aftur í vöru-
húsum sínum. Til þess að spara ferðirn-
ar koma einfaldir hlutir sér vel, svo sem
litlir rafmagnsbílar með kerrum svo hægt
sé að stafla vörum upp. Góður hugbúnað-
ur fyrir birgðastýringu er ekki síður mik-
ilvægur. Tommy mælir ekki með einum
ákveðnum hugbúnaði fyrir birgðastýr-
ingu vöruhúsa heldur greinir hann í hvert
og eitt skipti hvaða búnaður og hjálpartól
nýtist best við hinar ýmsu aðstæður.
Góð birgðastýring skilar sér í hraðari
og skilvirkari afgreiðslu og getur spar-
að fyrirtækjum milljónir króna, að sögn
Tommys, sem segist ekki taka að sér vöru-
hús sem séu svo illa skipulögð að breyt-
ingin á þeim skili ekki undir 20 prósenta
betri hagræðingu.
Tommy segir þekkingu Íslendinga á
mikilvægi birgðastýringar oftar en ekki
af skornum skammti. Það sjáist skýr-
ast þegar komið sé inn í vöruhús. Ástæð-
an liggur í hraðanum, að mati Tommys.
„Það hefur verið mikill uppgangur í efna-
hagslífinu á Íslandi. Það er meðal ann-
ars að þakka því að Íslendingar eru fljót-
ir að ákveða sig. Þeir láta vaða og fara í
ný verkefni,“ segir hann og bætir við að
í hraðanum gleymist oft að huga að öllum
þáttum, þar á meðal birgðastýringu, sem
oftast mæti afgangi. Tommy neitar því
ekki að þrátt fyrir allt mættu Svíar þó
læra snerpuna af Íslendingum því heima-
fyrir gangi allt mun hægar fyrir sig.
Tommy segir fyrirtæki geta hagnast
mjög á góðri birgðastýringu. Stjórnend-
ur fyrirtækja, ekki síst hér, vilji hins
vegar seint viðurkenna að þeir þurfi á
birgðastýringu að halda. Helsta ástæð-
an fyrir því er sú að þeir líta á kostnað-
inn við aðstoð manna á borð við Tommy
Högberg sem útgjöld sem óljóst sé hvort
skili sér til baka. „Kostnaðurinn er auð-
vitað nokkur í upphafi,“ segir hann. „En
þegar stjórnendur fara að sjá hagræðingu
upp á 20 til 40 prósent á ári þá sjá þeir
ekki eftir honum,“ segir Tommy Högberg
og brosir.
Mikið verk fyrir höndum á Íslandi
Hraði íslensks atvinnulífs hefur skilað sér í slæmri birgðastýringu. Þetta segir Tommy Högberg, forstjóri sænsku verkfræði-
stofunnar ProLog, sem sérhæfir sig í birgðastýringu vöruhúsa, í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson.
B&L • Grjóthálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 575 1200 • www.landrover.is
NÝR LAND ROVER
FREELANDER 2 SPORT
TIL Í ALLT
INNIFALIÐ Í NÝJUM FREELANDER 2 SPORT: Leðurinnrétting, hiti í sætum, rafmagn í framsætum, leðurstýri, sjálfvirk loftkæling fyr-
ir ökumann og farþega, aðgerðarstýri með skriðstillir, regnskynjari, 755 ltr farangursrými, CD spilari, 6 þrepa sjálfskipting, Terrain
Response™ aldrifskerfi, 5 stjörnur frá NCAP, 7 loftpúðar ,aftengjanlegur loftpúði fyrir farþegasæti og 17” álfelgur. Turbo Dísel 2,2
ltr vél 160 hö með 400 Nm tog, eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 8.5 ltr/100 km.
Þriggja ára ábyrgð. Verð kr. 4.540.000
NÝR FREELANDER 2 SPORT kr. 4.540.000