Fréttablaðið - 11.06.2007, Page 1
7 milljón eintök seld
FER SIGURFÖR UM HEIMINN
ELLEFU VERSALNIR OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Svarar allt að hundr-
að símtölum á dag
Fær fimm stjörnur
í Guardian
Helga Lára Pálsdóttir, þjónustufulltrúi Voda-fone, tekur á móti hundrað samtölum á anna-sömum degi.
„Við fáum þúsund til fimmtán hundruð símtöl í þjón-ustuverið daglega. Eftirminnilegast er maðurinn semkomst ekki á þráðlausa netið uppi í sumarbústað ogmaðurinn sem vildi fá okkur til að kveikja á síma konusinnar sem var stödd uppi á hálendinu,“ segir HelgaLára Pálsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Vodafone. Húnsegir þó flestar spurningar snúast um frelsisnotkun,reikninga og stillingar fyrir GSM og GPRS. Þjónustufulltrúarnir kynnast allri flóru mannlífsinsað sögn Helgu Láru. Langflestir eru viðkunnanlegir en nokkuð samtaka á erfiðum degi. „Íslendingar fara í skap saman. Við finnum fyrirþví að suma daga eru allir í góðu skapi og enn aðraeru allir móðgaðir. Þetta tengist helst útborgunar-degi og veðrinu. Síðan virðast fólk líka vera pirraðra í
kringum fullt tungl,“ segir Helga Lára og segir fólkiðsem brosir í gegnum símann vera helsta kostinn við starfið.
„Það er ofsalega gaman þegar maður fær tækifæritil að gefa af sér. Þá grípur maður gæsina og bros-ir með fólki,“ segir Helga Lára, sem meira að segjahefur bakað fyrir viðskiptavin.„Við vorum með smáhnökra á reikningi hjá einumviðskiptavini. Hann efaðist um að þetta yrði í lagi enþá lofaði ég honum súkkulaðiköku ef þetta myndi ekkilagast. Næsta mánuð var þetta enn í ólagi og þá vissiég að hann myndi stríða mér það sem eftir væri. Svoég bakaði bara kökuna og færði honum, eins og ég hafði lofað,“ segir Helga Lára hlæjandi.Viðskiptavinurinn var að vonum ánægður og sendiHelgu Láru þakkarbréf. „Hann var alltaf svo ofsalegakurteis og skemmtilegur að ég hafði bara gaman afþessu. Ég held samt að ég eigi eftir að hugsa mig umáður en ég lofa fleiri kökum upp í ermina á mér,“ segirHelga Lára brosandi.
Opnunartími : mánudagurinn 11.júni til föstudagsins 15 júní frá kl.11-18
frábært tilboð af sokkabuxum og nærfötum.
50 % afsl. af öllum vörum,
Lyngási 11 Garðabæ
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Mánudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
36%
77%
2%
Gullskreytt sverð
Napóleons Bónaparte, sem hann
notaði í herför á Norður-Ítalíu árið
1800, var í gær selt á uppboði í
Frakklandi fyrir 4,8 milljónir evra,
sem samsvarar 408 milljónum
króna.
Sverðið kvað vera það síðasta
sem Napóleon átti og er enn í
höndum einkaaðila. Nafn kaupand-
ans var ekki gefið upp. Seljendur
sverðsins voru nokkrir afkomend-
ur Napóleons.
Sverðið var lýst þjóðargersemi
Frakka árið 1978, en samkvæmt
lögum þar að lútandi er heimilt að
selja gripinn erlendum kaupanda,
að því gefnu að hann sé minnst
fimm mánuði á ári í Frakklandi.
Sverð Napóleons
á 400 milljónir
Kjósendur í Frakklandi
virtust ætla að veita Nicolas
Sarkozy forseta ótvírætt umboð til
að hrinda í framkvæmd efnahags-
umbótaáformum sínum, með því
að veita hinum hófsama hægri-
flokki hans, UMP, stórt forskot á
keppinautana til vinstri í kosning-
um til þjóðþingsins í gær.
Þegar flest atkvæði höfðu verið
talin var UMP-flokkur Sarkozy
með 40 prósent atkvæða en Sósíal-
istaflokkurinn aðeins 25 prósent.
Jaðarflokkar til vinstri og hægri
töpuðu fylgi.
Kjörsókn var minni en nokkru
sinni áður í þingkosningum í land-
inu; á bilinu 60-61 prósent. Var það
helst rakið til skorts á spennu
vegna þess að kjósendur áttu
almennt von á að hægriflokkarnir
ynnu örugglega, frá því Sarkozy
vann sósíalistann Segolène Royal í
úrslitaumferð forsetakosninganna
fyrir mánuði. Meginspurningin var
sú hversu stórt tap vinstriflokk-
anna yrði.
Hægrimenn eru nú í kjörstöðu
fyrir síðari umferð þingkosning-
anna næsta sunnudag og munu að
öllum líkindum geta aukið enn á
hreinan meirihluta sinn í þinginu,
þar sem 577 fulltrúar eiga sæti.
Öruggur sigur hægrimanna
Ný útgáfa
Sverrissögu
Þjónustuíbúðir fyrir
aldraða á Markarreit við Suður-
landsveg kosta allt að 500 þúsund
krónur á fermetrann. Dýrasta
íbúðin er 139 fermetrar að stærð og
kostar tæplega 68 milljónir. Sam-
bærilegar íbúðir kosta annars
staðar um og yfir tuttugu milljónir
króna.
Haraldur Líndal Haraldsson,
framkvæmdastjóri Nýsis þróunar-
félags sem á sjálfseignarfélagið
Mörkina, segir að Mörkin hafi tekið
yfir byggingaréttinn á Markarreit í
fyrra og greitt borginni 300
milljónir króna aukalega fyrir hann.
Þá hafi upphaflega verið farið af
stað með dýra byggingu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri hefur sagt að slíkar
framkvæmdir eigi ekki að skila
arði. Haraldur segir framkvæmd-
ina ekki skila afgangi því að ýmis-
legt hafi farið úrskeiðis. „Við þurft-
um meðal annars að borga aukalega
fyrir byggingaréttinn,“ segir hann.
„Mikið er lagt í bygginguna og
margt öðruvísi en við hefðum kosið.
Ýmis vandamál þýða aukinn
kostnað,“ segir hann og nefnir sem
dæmi að kostnaður vegna hjúkrunar-
heimilisins hafi fallið á þetta verk-
efni. Samkomulag sé um að heil-
brigðisráðuneytið borgi 65 milljónir
króna vegna þess. „Það hefur síðan
neitað að greiða.“
Haraldur bendir á að 300 milljón-
irnar nemi 10 prósentum af verði
íbúðanna; 6,8 milljónum af íbúð sem
kostar 68 milljónir. Hann telur að
Mörkin sitji ekki við sama borð og
aðrir þar sem hún þurfi að greiða
svo mikið fyrir byggingaréttinn.
„Þetta er auðvitað hátt verð og
hlýtur að liggja í lóðaverðinu,“ segir
Jórunn Frímannsdóttir borgarfull-
trúi. „Borgaryfirvöld reyna að gæta
þess að stofnanir og einkafyrirtæki
fái ekki úthlutað lóðum og geti
grætt á því.“
„Þetta er skelfilega hátt verð og
alls ekki fýsilegt,“ segir Helgi
Hjálmsson, formaður Landssam-
bands eldri borgara.
Fermetraverðið er
500 þúsund krónur
Þjónustuíbúðir fyrir aldraðra á Markarreit kosta upp undir 500 þúsund krónur
á fermetrann. Borgarstjóri segir slíkar framkvæmdir ekki eiga að skila arði.
Landhelgisgæsla og björg-
unarsveitir leituðu í gærkvöld að
tveimur erlendum kajakræðurum;
karli og konu. Þau lögðu af stað frá
Garðskaga á laugardagsmorgun,
ætluðu að þvera Faxaflóann og
koma í land á Snæfellsnesi. Það
hefur aldrei verið gert áður.
Landhelgisgæslan hafði um
miðjan dag í gær samband við báta
á Faxaflóa og bað þá um að svipast
um eftir fólkinu. Þegar það bar
ekki árangur hófst umfangsmikil
leit. Á annað hundrað björgunar-
sveitarmenn leituðu frá Garðskaga
að Snæfellsnesi á láði og legi. Þyrla
Landhelgisgæslunnar tók þátt í
leitinni. Aðstæður á Faxaflóa voru
góðar.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gærkvöld var fólkið ófundið.
Leituðu tveggja
kajakræðara