Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 34
Áhugafólk um íslenskar fornsögur kætist nú því ný útgáfa Sverrissögu er komin út. Fimmtíu ár eru liðin frá síðustu útgáfu ritsins, sem er einstakt í sinni röð. Sverrissaga er þrítugasta bindið í viðamikilli útgáfu Hins íslenska fornritafélags á textum miðalda sem hófst með útgáfu Sigurð- ar Nordal á Egilssögu 1933. Síð- ast kom sagan út árið 1950 en að sögn Þórðar Inga Guðjónssonar, íslenskufræðings og annars rit- stjóra ritraðar Fornritafélagsins, hefur alla tíð vantað handhæga út- gáfu sögunnar fyrir fræðimenn og almenning. Sagan hefur því verið ókunn mörgum lesendum en nú er gerð bragabót þar á. Í bókinni eru enn fremur ítarlegar skýring- ar og inngangur auk korta og ann- ars ítarefnis til glöggvunar fyrir lesendur. Sverrissaga er brautryðjenda- verk í ritun veraldlegra konungs- sagna en ævisaga Sverris Sigurðar- sonar Noregskonugs er elsta saga sinnar tegundar sem varðveitt er í heild. Sverrir þessi var uppi á tólftu öld, ólst upp í Færeyjum en braust síðar til valda í Noregi. Sögusmiðurinn er talinn vera Ís- lendingur, Karl ábóti Jónsson, en honum eru eignaðar litríkar per- sónulýsingar hetjunnar sem þykja með þeim blæbrigðaríkustu í forn- um sögum. Þórður Ingi segir að nútímalesend- ur finni mögulega talsverðan sam- hljóm með ævi Sverris en boðskap- ur sögu hans sé að setja markið hátt og hvika hvergi frá því marki. „Sverrir var bara prestlingur frá Færeyjum. Hann ólst þar upp til tuttugu og fjögurra ára aldurs en þá hafði hann af því spurnir að hann væri launsonur Sigurðar munns Noregskonungs,“ útskýr- ir Þórður. Svo fer að Sverrir siglir og gerir tilkall til kongungsdæm- isins, kemst í kynni við skæru- liða þess tíma – Birkibeina í Nor- egi – og lendir í ýmsu útistandi en í bókinni eru fjölmargar magnað- ar bardagalýsingar. „Uppgangur Sverris var með ólíkindum, hann vinnur þarna hverja orrustuna á fætur annarri og á endanum fellir hann þáver- andi Noregskonung, Magnús Er- lingsson,“ útskýrir Þórður Ingi. „Það eru ekki síst þessar mörgu orrustur og frásagnir af her- kænsku Sverris sem einkenna bók- ina heldur eru þar skráðar ræður hans, sem margar eru býsna mer- gjaðar.“ Ekki skemmir að orðfæri höfundarins er einkar fallegt og Þórður áréttar að því sé rit þetta einnig mikilvægt þjóðtungunni. Þórður Ingi segir nú óumdeilan- legt að sagan sé eignuð Íslendingi. „Það kemur fram í formála sög- unnar að upphaf hennar sé ritað af Karli ábóta Jónssyni, en fræði- menn hafa deilt um hversu mikið hann eigi í sögunni.“ Kenning Þor- leifs Haukssonar, sem annaðist þessa útgáfu sögunnar og ritar inngang hennar og skýringar, er sú að Karl hafi ritað hana alla. „Varðveisla þessara sagna er hins vegar afar flókin og Sverris- saga er til í mörgum handritum. Við höfum engan frumtexta undir höndum svo það er púsluspil og raun fræðimanna að komast sem næst upphaflegu sögunni en Þor- leifur rekur varðveislu sögunnar i formála sínum.“ Sverrissaga er fyrirtaks heim- ild um valdabrölt og pólitík þessa tíma og Þórður Ingi bendir á að það hafi haft mikið að segja að ritari hennar, sem augljóslega stóð söguefni sínu nær, hafi verið Íslendingur en ekki heimamaður. „Sagan dregur taum Sverris en gerir það afar fínlega því á yfir- borðinu er líkt og frásögnin sé hlutlaus. Það er örugglega margt til í því að Íslendingur hafi verið fenginn til þessa verks því við- komandi stæði fjarri atburðar- rásinni í Noregi og væri því trú- verðugri fyrir vikið.“ Lesendum þótti snemma mikið til Sverrissögu koma og segir Þórður Ingi að aðrir konungs- sagnaritarar hafi látið staðar numið í skrifum sínum þar sem valdasaga Sverris hefst. Ljóst er að Hið íslenska forn- ritafélag er í mikill sókn en á stundum hefur útgáfa þess verið býsna stopul að sögn Þórðar. Nú er í bígerð ný útgáfa á konungs- sagnasafnritinu Morkinskinnu sem fyrirhuguð er haustið 2008 auk viðamikillar útgáfu Sturl- ungu og sögu Hákonar Hákonar- sonar svo eitthvað sé nefnt. H im in n o g h a f / S ÍA Taktu þátt! Þú sendir SMS BT BTF á númerið 1900. Þú færð spurningu. Þú svarar með því að senda SMS skeytið BT A, B eða C á númerið 1900. hver vinnur! 10. Aðalvinningur! FSC Amilo Pi Core2 Vista fartölva SMSLEIKURTak tu þátt! Geggjaðir aukavinningar! Vídeospilari, Sony myndavél, Panasonic tökuvél, Apple iPod Nano/blár, HP Photosmart, GSM símar, Bíómiðar fyrir 2 á THE INVISIBLE og LAST MIMZY,PSP tölvur,Gjafabréf á Tónlist.is,PS2 tölvur, Kippur af Gosi og enn meira af DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.