Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 35
Opnir kynningarfundir verða haldnir þriðjudaginn 12. júní nk. Kynnt verður mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík og jafnframt breytingar á aðalskipulagi í Reykjanesbæ og Garði. Kynningarfundir í Reykjanesbæ og Garði Dagskrá 1. Kynning á breytingum á aðalskipulagi Garðs og Reykjanesbæjar 2. Mögulegar lagnaleiðir og jarðstrengur frá Fitjum 3. Kynning á fyrirhuguðu álveri í Helguvík 4. Kynning á mati á umhverfisáhrifum vegna álvers í Helguvík 5. Ábendingar, athugasemdir, fyrirspurnir og svör. Til máls taka m.a. fulltrúar atvinnulífsins á Suðurnesjum og Sólar á Suðurnesjum 6. Samantekt fundarstjóra Reykjanesbær: Flughótel, Hafnargötu 57. kl. 17:30 – 19:15 Garður: Byggðasafn Garðskaga, Skagabraut 100. kl. 20:00 – 21:45 Mat á umhverfisáhrifum vegna álvers í Helguvík og breytingar á aðalskipulagi Í tengslum við fundina munu sérfræðingar frá verkfræðistofunni HRV vera á staðnum 12. júní frá kl. 17:00-22:00 og svara fyrirspurnum. Sýning tengd fundunum mun verða opin á fundarstöðum til 28. júní. Tuttugu og fimm tíma dansleikhús- hátíð ÍD og LR gefur ekki tilefni til bjartsýni um framtíð íslenska dans- ins: yfirlýsing um stofnun og sýn- ing á fyrsta verkefni Dansleikhuss Borgarleikhússins virðist spurn- ing um form. Slíkt samstarf hefur til þessa þrifist ágætlega án nýrra heita, nýrra umbúða. Ef marka má þær hugmyndir sem valdar voru til hrávinnslu þetta árið – þær voru sex – eru mörk dansleikhússins og venjubundinna dansa enn afar óljós. Verkin voru flest hefðbundin dans- verk, textavinnsla í lágmarki og grunnurinn allur dansmegin. Verk- efnin eru enda skyndimatur. Eftir tveggja ára fjarveru blasti líka við að áhorfendum á þessu staka sýn- ingarkvöldi fer fækkandi. Jafnvel fólk í dans- og leikgeiranum lætur sig vanta og stuðningsliðum hefur fækkað í þessari keppni. Þýski gagnrýnandinn sem leiddi dómnefnd fagnaði því í inngangi sínum að hér væri fjölbreytni meiri en í tískunni í Berlín þar sem tugir flokka apa tísku hver eftir öðrum og allt verður eins. Það var rétt: hér var fjölbreytni í útliti og þemum dansverka. Þau báru flest þann galla að vera ekki skýr hug- mynd heldur þróuð og því mörg án skýrra lykta. Höfundarnir höfðu semsagt ekki í kollinum skýrar lyktir. Margt var blanda, sundur- gerð ríkti, er þörfin fyrir verkin þetta eina kvöld meiri en viljinn til að þróa verkin á frumstigi t.d. með dramatúrgískri vinnu? Kynnir kvöldsins var Bergur Þór Ingólfsson leikari og var raunar áttunda dansverkið í kynningum sínum: kvöldið minnti á köflum á afmæli hjá sýnisjúkum krakka sem verður að koma öllum sínum atrið- um að. En Bergur bar aðra kepp- endur ofurliði af því hann vann sitt verk allt út frá einföldum og skýr- um hugmyndum. Sápa Steinunnar Ketilsdóttur og sigurverkið, Blink of an Eye, eftir hóp leikara, dans- ara, tónskáld og myndlistarmann, voru skýrustu hugmyndirnar. Blink vann á vönduðum frágangi í alla staði og sterkri nánd og kunnáttu þeirra Camerons Corbett og Bryn- hildar Guðjónsdóttur. Stóra verk kvöldsins var Þvílík gleði eftir Mörtu Nordal og Peter Anderson: eina verkið sem náði máli – í raun þótt þar vantaði per- sónusköpun illilega í hjónabands/ sambúðarsögum sem lágu til grund- vallar. Lítið hefði þurft til. Það sást til dæmis skýrt hjá Víði Guðmunds- syni sem var lakastur dansara en skóp skýra persónu og hélt henni. Verður þetta verk á verkefnaskrá LR og ÍD á komandi vetri? Verður það þróað og unnið áfram? Fá aðrir áhugamenn um dans en þessir rúm- lega þrjúhundruð sem þarna sátu að sjá það, skattborgarar, helstu styrktaraðilar flokka hússins? Eða er þessi fjárfesting flokkanna bara innanhússgrín? Í íslenska dansheiminum eru að takast á minni hópar sem standa við jaðar skólanna og Íslenski dans- flokkurinn. Engin brúarsmíð virð- ist vera þarna á milli. ÍD hefur enda mestan metnað að sýna verk sín er- lendis. Nýleg endurráðning Katrín- ar Hall þar á bæ gefur ekki fyrirheit um framför í danslífinu. Þegar upp verður staðið eftir þann fimm ára samning hefur Katrín leitt ÍD í sex- tán ár og sest þá á bekk með Guð- laugi Rósenkrans og Stefáni Bald- urssyni sem þaulsetnasti ráðamað- ur í íslensku menningarlífi. Þráseta í slíkum störfum er hættuleg lista- lífinu eins og sagan hefur sannað. Ef litið er til slakrar aðsóknar að íslenskum listdansi og þess að fá- liðun er viðvarandi vandi, nýsmíði verka stopult áhugamál, hingað- koma erlendra dansflokka fátíð, er ekki ástæða til að líta með bjart- sýni til framtíðar í listdansi. Dans- leikhúskeppnin hefur enda engu skilað: verkin eru ekki endurflutt, þau eru andvana fædd ef þeim er ekki ætlað framhaldslíf. LR og ÍD verða að hugsa þessa hugmynd upp á nýtt. Nú verður að reyna eitthvað nýtt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.