Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 36
Lokaþáttaröðin af Soprano-fjöl-
skyldunni var sýnd í Bandaríkjun-
um í gærkvöldi. Þættirnir verða
ekki sýndir hér á landi fyrr en í
byrjun október. Til að hita upp
fyrir hana hefur RÚV endur-
sýningar á síðustu þáttaröð um
miðjan júlí.
James Gandolfini, sem leik-
ur mafíuforingjan Tony Soprano,
saknar þess ekkert að kveðja per-
sónuna í hinsta sinn. „Mér var sagt
að þetta yrði erfitt fyrir mig en
mér finnst það ekki. Það er mjög
róandi fyrir mig að horfa fram á
veginn og prófa nýja hluti,“ sagði
Gandolfini. „Þessi persóna hefur
verið með mér svo lengi að það er
ákveðinn léttir að sleppa af henni
takinu.“
Hann segir að álagið hafi verið
mikið á sér við upptökurnar á
þáttunum og það hafi sýnt sig.
„Að vera þreyttur hjálpaði mér á
ákveðinn hátt. Ef persónan hefði
átt að líta vel út og vera myndar-
leg og hamingjusöm hefði vinnu-
álagið ekki hjálpað til. En það
hjálpaði mér mikið. Ég gat verið
úrillur og þreyttur og litið eins illa
út og ég vildi,“ sagði hann.
Veðbankar voru uppteknir við að
taka við veðmálum um hver myndi
deyja í lokaþættinum. Var stuðull-
inn tveir á móti einum um að Tony
Soprano sjálfur myndi fá það hlut-
skipti en einn á móti þremur um
að hann héldi lífi. „Fólk veðjar um
allt milli himins og jarðar,“ sagði
eigandi veðbankans bodog.com.
„Margir vilja veðja um hver deyi
af náttúrulegum orsökum og hver
verði drepinn.“
Endalok Sopranos
Útvarpsstöðin
Rás 2 ætlar að
gefa heppnum
hlustendum sínum
átta pakka í tilefni
af Hróarskeldu-
hátíðinni í Dan-
mörku sem verður
haldin í byrjun
júlí. Í hverjum
pakka verða tveir
miðar á hátíð-
ina, bolir og fleira
tengt hátíðinni.
Tveir af þeim átta sem vinna pakk-
ana fá tvo flugmiða hvor frá Ice-
land Express.
Hægt er að
taka þátt í leikn-
um á www.
ruv.is/popp-
land þar sem
þarf að svara
þremur krossa-
spurningum.
Dregnir verða
út vinningshaf-
ar dagana 15.,
22. og 29. júní.
Rás 2 sendir
síðan beint frá
Hróarskelduhátíðinni, þar sem
koma m.a. fram Björk, Beastie
Boys og Red Hot Chili Peppers.
Býður á Hróarskeldu
Hljómsveitin Amiina fær
fimm stjörnur í breska dag-
blaðinu The Guardian fyrir
tónleika sína í Glasgow
á dögunum. Fyrsta plata
sveitarinnar, Kurr, kemur
út hérlendis í dag.
Greinarhöfundur The Guardian
segir að tónleikarnir í Glasgow
hafi verið mjög hljóðlátir og meira
að segja hafi einn barþjónnin þurft
að bera olíu á eina klósetthurðina
vegna hávaðans sem hún fram-
kallaði. „Amiina spilar skrítna,
fallega og viðkvæma tónlist sem
fær hlustandann til að vera afar
varkár,“ segir í greininni. „Í lok
tónleikanna virtist andrúmsloft-
ið þannig að áhorfendum liði eins
og þeir hefðu notið forréttinda
með því að vera viðstaddir. Það er
sjaldgæf og yndisleg tilhugsun og
fólk verður bara að sjá Amiinu til
að trúa þessu.“
Fyrsta breiðskífa Amiina, Kurr,
kemur út hérlendis í dag en hinn
18. júní kemur hún út í Evr-
ópu og degi síðar í Bandaríkjun-
um. Smekkleysa gefur plötuna út
hér heima en þýska fyrirtækið
Ever Records, sem er undir hatti
elektróníska útgáfufyrirtækisins
K7, gefur hana út erlendis.
„Við náðum rosagóðum samningi.
Við fáum að halda rosalega miklu
ákvarðanafrelsi og við getum
gefið út mikið af tónlistinni okkar
sjálfar, þannig að við ráðum okkur
mikið sjálfar,“ segir María Huld
Markan úr Amiinu. Bætir hún því
við að góðu dómarnir í bresku fjöl-
miðlunum hafi verið mjög ánægju-
legir. „Það er punkturinn yfir i-
ið að fá svona góða dóma, því það
getur verið erfitt að fá bresku
pressuna með sér. Við erum allar
rosalega ánægðar með það.“
María segist vera afar ánægð með
nýju plötuna. „Hún er reyndar
löngu, löngu tilbúin en við erum
rosalega ánægðar með hvernig til
tókst. Það var smá kúnst að setja
hana saman og láta hana hljóma
þannig að þetta ætti vel saman á
einni plötu. Hún er svolítið eins og
ferðalag frá fyrsta laginu til þess
síðasta.“
Amiina er hætt við að spila á tón-
listarhátíðum í sumar. Ástæðurnar
eru tvær að sögn Maríu Huld-
ar. „Það er einfaldlega mjög erf-
itt að spila á „festivölum“ því við
erum með þannig „set up“. Það
er líka rosalega langt síðan við
fengum hvíld, þannig að við sögð-
um bara pass við öllum festivölum
í sumar.“ Sveitin ætlar þess í stað
að fara í tónleikaferð til Evrópu og
Bandaríkjanna í september og til
Ástralíu, Nýja-Sjálands og Japans
í framhaldinu. Það eru því spenn-
andi tímar fram undan hjá þessari
hæfileikaríku hljómsveit.
Útgáfutónleikar Amiinu vegna
plötunnar hér heima verða haldnir
í Iðnó hinn 21. júní.
Richie Sambora,
aðalgítarleikari
hljómsveitar-
innar Bon Jovi,
hefur skráð sig
inn á meðferðar-
stofnun þar sem
hann hyggst ná
tökum á áfengis-
og eiturlyfja-
fíkn sinni. Mikið
hefur gengið
á í lífi Sambora að undanförnu.
Ekki er langt síðan hann skildi við
eiginkonu sína til nokkurra ára,
leikkonuna Heather Locklear, og
þá entist samband hans við Den-
ise Richards ekki í nema nokkrar
vikur eftir það. Til að bæta gráu
ofan á svart lést faðir Sambora í
millitíðinni. Eftir öll áföllin virð-
ist sem rokkarinn hafi ákveðið að
leita huggunar í flöskunni.
Kominn
í meðferð
Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu
kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr.106.600
Hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Þurrkari T223
Verð frá kr. 78.540