Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 18
Kvennakór Hornafjarðar fagnar tíu ára af- mæli á árinu með pompi og prakt. Hann syngur í Háteigskirkju í kvöld, heldur í vikuferð til Hamborgar á morgun og í haust er vegleg árshátíð á döfinni. Afmælisárið byrjaði reyndar með útgáfu almanaks í anda frönsku póstkortanna sem vinsæl voru í kringum aldamótin 1900. Útgáf- an var til fjáröflunar og þar eru myndir af kór- konum misjafnlega fá- klæddum. Áslaug Íris Vals- dóttir, ljósmóðir á Höfn, er formaður kórsins og hún var spurð út í starfsem- ina. „Kvennakór Hornafjarðar er öfl- ugur kór og búinn að stimpla sig inn sem slíkur. Við höfum verið flestar í kring- um fjörutíu en þetta er kvennakór og alltaf einhverjar í barneignar- fríi og öðrum leyfum eitt og eitt ár. Ákveðinn kjarni er þó búinn að vera með alveg frá stofnun.“ Áslaug kveðst hafa gengið til liðs við kórinn 2001. „Ég er búin að vera með síðan ég flutti til Hornafjarðar og það er búið að vera mjög skemmtilegt. Ég hugsa að ég hefði ekki unað eins vel á staðnum ef ég hefði ekki haft sönginn og þann ágæta félagsskap sem fylgir honum,“ segir hún. Nú er afmælisferð til Þýskalands að bresta á og þátttakendur í henni eru á þriðja tug- inn. „Við fljúgum til Kaupmannahafnar og keyrum þaðan til nágrennis Ham- borgar. Við munum bæði syngja á götuhornum og verða með eina tónleika í kirkju ásamt stórum þýskum kór. Það er auðvitað meiningin að slá í gegn,“ segir Áslaug hlæjandi og er sannfærð um að fram- undan sé mikið ævin- týri. Stjórnandi kvenna- kórsins er Svavar Sig- urðsson, organisti og skólastjóri Tónlistar- skóla Djúpavogs. Hann þarf að keyra hundrað kílómetra hvora leið á æfingar og Áslaug segir hvassviðri og grjót- hrun stundum hafa hamlað för hans í vetur. Tekur þó fram að tónleikar kórsins í Háteigskirkju í kvöld séu vel æfðir, flottir og fjölbreyttir. „Dagskráin er létt og skemmtileg og flestir ættu að finna þar eitthvað sem þeim líkar,“ segir hún að lokum. Áhorfendur létust á Le Mans Ritað var undir samstarfssamning milli Landsnets og Stofnunar Sæmundar fróða á dögunum. Hlutverk Landsnets er að sinna raforkuflutningi og kerfisstjórnun. Stofn- un Sæmundar fróða er ætlað að leiða saman vísindamenn úr mörgum greinum til að leysa vandamál sem varða hin ýmsu svið sjálfbærrar þróunar. Samningurinn nýi getur tekið til ýmiss konar verkefna. Til dæmis stendur til að rannsaka mismunandi valkosti við orku- flutninga en með aukningu á raforkufram- leiðslu á Íslandi eykst umfang flutnings- kerfa og því nauðsynlegt að finna hvaða leiðir henta best til flutningsins. Einnig þarf að huga að áhrifum orku- mannvirkja á umhverfið sem hafa í för með sér bein og óbein áhrif. Til beinna áhrifa má telja jarðrask, mengun og áhrif segul- sviða sem geta haft áhrif á afkomu lífríkis í nágrenni við mannvirkin. Óbein áhrif eru til dæmis sjónmengun af völdum mann- virkjanna. Þau áhrif hafa lítið verið rann- sökuð hér á landi en aukin vakning hefur orðið fyrir slíkum óbeinum áhrifum. Þá þarf að rannsaka efnahagsleg áhrif hinna mismunandi valkosta, kostnað og áhrif á gjaldskrá fyrirtækisins. Fyrsta samstarfsverkefni Landsnets og Stofnun Sæmundar fróða mun taka á þess- um þáttum með samvinnu verkfræðinga, hagfræðinga og líffræðinga Háskóla Íslands undir stjórn Stofnunar Sæmundar fróða og í samvinnu við sérfræðinga Landsnets. Landsnet og Stofnun Sæ- mundar fróða í samstarf AFMÆLI „Eina leiðin til að flytja fréttir í sjónvarpi er að vera ekki hræddur við þær.“ Stofnuð hafa verið Samtök list- og hönn- unarkennara á fram- haldsstigi. Í frétta- tilkynningu frá hinu nýstofnaða félagi kemur fram að mikil þörf sé á slíkum samtökum, meðal annars til umsagnar og stefnumótunar á námskrám, til að auka faglega um- ræðu, sjá um endur- menntun og námskeið. Einnig til að auka kennslu í þessum greinum. Vefur samtakanna http://vefir.multimedia.is/hlynur/ slhk/á að auðvelda félagsmönnum að nálgast ýmsar upp- lýsingar. Anna Snædís Sigmarsdótir er formaður samtakanna nýju. List og hönnun á framhaldsstigi Fallegir legsteinar á góðu verði Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Haukur Einarsson vélfræðingur, Jöklafold 4, Grafarvogi, lést á Landspítalanum Hringbraut miðvikudaginn 30. maí. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju í dag mánudaginn 11. júní kl. 13.00. Guðrún Kristjánsdóttir Jóna Helga Hauksdóttir Inga Guðný Hauksdóttir Bernharð Antoniussen Einar Birgir Hauksson Kristín Óskarsdóttir Edda Kristín Hauksdóttir Anna Karen Hauksdóttir og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svanhvít Ólafsdóttir frá Suðureyri við Súgandafjörð, sem andaðist 25. maí á heimili sínu, Hjúkrunar- heimilinu Sóltúni Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju 12. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna. Gunnar Pálsson Hafdís Pálmadóttir Friðbert Pálsson Fanney Gísladóttir Leó Pálsson Ingunn Þorleifsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.