Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 23
11. JÚNÍ 2007
Við Grundarstíg stendur sögufrægt
hús sem nýlega fór í sölu hjá Remax á
Stórhöfða.
H úsið var reist af Hannesi Hafstein, þjóðskáldi og fyrsta ráðherra Íslands, árið 1915. Það stendur við
Grundarstíg 10 og þar bjó Hannes ásamt
fjölskyldu sinni til dauðadags árið 1922.
Húsið er steinsteypt og skiptist í kjall-
ara, tvær hæðir og ris. Hæðirnar telja hvor
um sig um 110 fermetra en ef óskráðir
fermetrar kjallara og riss eru teknir með í
reikninginn má áætla að húsið sé vel á fjórða
hundrað fermetrar.
Á fyrstu hæðinni er mikil lofthæð og upp-
runalegir gipslistar og rósettur eru í lofti.
Hæðin skiptist í hol, þrjár stofur, forstofu-
herbergi, eldhús, stigahús og gestasalerni.
Gengt er á milli stofanna þriggja og for-
stofuherbergis.
Önnur hæðin skiptist í rúmgott hol, lítið
eldhús, fjögur stór svefnherbergi og eitt
stórt hjónaherbergi með suðursvölum. Þar
er einnig aðalbaðherbergi hússins með bæði
baðkari og sturtu. Baðherbergið er allt flísa-
lagt en gólfefni í herbergjum eru teppi og
parkett.
Í kjallara eru þrjár stórar geymslur og ein
lítil, gangur, þvottahús og anddyri undir úti-
tröppum. Risið er að mestu leyti óinnréttað
en þar er lítið herbergi og geymsla. Tveir
tvöfaldir reykháfar eru í húsinu. Þeir eru
báðir með virkri loftræstingu og hægt er að
tengja eldstæði við þá. Garðurinn við húsið
er gróinn og pallur er sunnan við bílskúrinn.
Bílskúrinn er hlaðinn úr holsteini.
Húsið þarfnast viðhalds og má sem dæmi
nefna að allir gluggar eru upprunalegir og
lélegir en hægt er að sækja um styrk til
Húsfriðunarnefndar vegna endurnýjunar á
þeim. Vatns- og raflagnir hafa verið endur-
nýjaðar að hluta. thorunn@frettabladid.is
Reisulegt hús Hannesar Hafstein
Eitt fimm svefnherbergja hússins.
Holið á efri hæðinni er bæði bjart og rúmgott.
Grundarstígur 10 er glæsilegt hús.
fasteignir
Grensásvegi 12A
sími: 568 1000
frum@frum.is - www.frum.is
U M B R O T