Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 43
Lagersölunni lýkur í dag Lagersala Eirvíkur að Suðurlandsbraut 20 Verðhrun VASKAR HELLUBORÐ ÍSSKÁPAR ÞURRKARAR OFNAR HÁFAR GASELDAVÉLAR SMÁVÖRUR Roman Calderon, for- seti Real Madrid, ætlar að reyna að sannfæra David Beckham að vera um kyrrt í Madríd. Fyrr í vetur samdi Beckham við banda- ríska úrvalsdeildarliðið Los Ang- eles Galaxy og fer þangað að tímabilinu loknu á Spáni. Calderon gaf hins vegar til kynna í samtali við spænska blaðið Marca að klásúla í samn- ingi hans gæti gert félaginu kleift að halda Beckham í sínum röðum. „Við þurfum að sitjast niður með honum og fulltrúum hans og ná niðurstöðu í þessu máli,“ sagði Calderon. Beckham hafnaði samningi við Real Madrid í janúar og brugðust þeir Calderon og Fabio Capello, þjálfari liðsins, harkalega við. Capello sagði að Beckham myndi ekki spila meira með Real og að hann yrði aðeins „miðlungs kvik- myndaleikari í Hollywood“. Síðan þá hafa þeir neyðst til að sjá eftir orðum sínum því Beck- ham hefur spilað sig inn í liðið á ný og staðið sig frábærlega. Hann vann sig einnig inn í enska landsliðið nú fyrir skemmstu. Forseti Real Madrid vill halda Beckham Rafael Nadal vann í gær Opna franska meistaramótið í tennis í þriðja skiptið í röð eftir sigur á Roger Federer í úrslitunum í gær. Nadal vann með þremur settum gegn einu; 6-3, 4-6, 6-3 og 6-4. Þar með batt Nadal draum Federer á enda um að verða að- eins þriðji maðurinn í sögunni sem er handhafi allra fjögurra slemmutitlanna samtímis. Það hafa aðeins Rod Laver (1969) og Don Budge (1938) afrekað. Nadal er aðeins annar maður- inn í sögunni síðan opnu meist- aramótunum var komið á fót til að vinna Opna franska þrjú ár í röð. Björn Borg fullkomnaði sína þrennu árið 1980. „Fyrst og fremst vil ég hrósa Federer. Þú afsakar að ég vann þig aftur. Hann er frábær meist- ari og ég veit að hann mun ná sér á strik,“ sagði Nadal. „Það er draumi líkast að vinna hér þriðja sinni og hef ég ekkert nema já- kvætt um þennan stað að segja.“ Nadal hafði talsverða yfirburði í leiknum og snemma var ljóst í hvað stefndi. Hann hefur aldrei tapað viðureign á Roland Garros. Federer fékk þó sín tækifæri til að snúa viðureigninni sér í hag. Í fyrsta settinu fékk hann tíu tæki- færi til að stela lotu af Nadal en ekkert virtist ganga. „Þetta er algjör synd og ég er svolítið dapur yfir hvernig ég spilaði,“ sagði Federer. „Ég held að ég hafi verið betur undirbúinn í fyrra því þá vann ég fyrsta sett- ið, 6-1, en hér var ég alltaf að elta. Þetta er sannarlega ekki í síðasta skiptið sem ég spila hér og mun ég gera mitt allra besta á næsta ári.“ Mikil eftirvænting var fyrir úr- slitaleikinn enda mættust þar tveir bestu leikmenn heimsins í dag. Federer hefur haft mikla yfirburði nema á leir, þar sem Nadal virkar nánast ósigrandi. Hann er því enn konungurinn á leir og Federer þarf nú að byrja upp á nýtt til að ná al- slemmunni. Nadal er enn kon- ungurinn á leirnum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.