Fréttablaðið - 11.06.2007, Qupperneq 6
6021
SÁ ALLR
A
ÓDÝRAS
TI
Kr. 8.990,-
VIÐ HEIMTUM ÓDÝRA FARSÍMA
GERÐUVERÐSAMANBURÐ
ÓDÝRASTIBLUETOOTH SÍMINN
Háskólinn á Akureyri
brautskráði 372 nemendur á
laugardag og er það langstærsta
útskrift í sögu skólans. Af þessum
hópi hafa 120 stundað fjarnám
fyrir milligöngu háskólamiðstöðva
og símenntunarsetra á fjórtán
stöðum á landinu.
Flestir útskrifuðust frá kenn-
aradeild, 150 talsins. 93 útskrifuð-
ust frá viðskipta- og raunvísinda-
deild, 68 frá heilbrigðisdeild og 61
frá lagadeild. Konur eru yfirgnæf-
andi meirihluti brautskráðra, 299
talsins, en brautskráðir karlmenn
voru 73.
Langstærsta út-
skrift skólans
Fylgist þú með hrakförum
Parísar Hilton?
Ætti N1 að birta eldsneytisverð
á heimasíðu sinni?
SR-verktakar létu erlenda verka-
menn rífa hús með asbestklæðningu án þess að vera
með grímur eða hlífðarfatnað. Asbestmengun getur
valdið krabbameini og alvarlegum öndunarsjúkdóm-
um áratugum eftir að lungun komast í tæri við
asbestryk.
Hinn 5. desember 2006 barst Heilbrigðiseftirlitinu
kvörtun um að tíu manns væru að rífa asbest við
Héðinsgötu grímulausir og án hlífðarfatnaðar.
Heilbrigðisfulltrúar fóru á staðinn og staðfestu að
kvörtunin væri á rökum reist. Asbestklæðning hafði
verið rifin með stórvirkum vinnuvélum af veggjum
tveggja húsa, að því er kemur fram í áminningu frá
Heilbrigðiseftirlitinu.
Auk þess að starfsmenn væru án hlífðarfatnaðar
var engin aðstaða fyrir fata- og búningaskipti,
nágrönnum hafði ekki verið gert viðvart um
starfsemina og engin viðvörunarskilti voru hengd
upp um að verið væri að rífa asbest. Ekkert vatn var
notað til úðunar á asbest sem var brotið og engin
tilkynning hafði borist mengunarvörnum, þrátt fyrir
að Umhverfissvið hefði krafist þess áður að hvort
tveggja yrði gert.
SR-verktökum var veitt áminning vegna málsins,
enda ber vinnuveitendum lagaleg skylda til að
tryggja öryggi starfsmanna og þeirra sem koma
nálægt asbestryki á og við vinnusvæði.
Árný Sigurðardóttir, forstöðumaður Heilbrigðis-
eftirlitsins í Reykjavík, segir SR-verktaka aldrei
hafa hreyft mótmælum við áminningunni, hvorki á
þeim tveimur vikum sem þeir höfðu til þess á sínum
tíma, né síðar.
Sigurjón G. Halldórsson, eigandi SR-verktaka,
segir áminninguna bull. Um slys hafi verið að ræða
þar sem grafa hafi brotið óvart úr vegg með asbesti.
Þá hafi öll vinna verið stöðvuð og haldið áfram undir
eftirliti starfsmanns
Heilbrigðiseftirlitsins, þar sem allir voru í
hlífðarbúningum. Hann vildi ekki svara frekari
spurningum um atvikið.
Ragnar Þórarinsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, neitaði að svara spurningum um málið.
Unnu án hlífðarfata í
hættulegu asbestryki
SR-verktakar stefndu heilsu erlendra starfsmanna sinna í hættu með því að láta þá
rífa asbest án hlífðarfatnaðar. Strangar reglur eru um niðurrif á asbesti vegna þess
hve hættulegt efnið er. Heilbrigðiseftirlit áminnti fyrirtækið. Bull, segir eigandi.
Upplýsingafulltrúi FL Group segir
fyrirtækið ekki hafa reiknað út hversu háa
upphæð það þurfi að greiða Sigurði Helgasyni,
fyrrverandi forstjóra Flugleiða, eftir að
Hæstiréttur felldi þann dóm að kaupréttarsamn-
ingar átta launahæstu starfsmanna fyrirtækisins,
sem eftirlaun Sigurðar miðast við, teldust til launa.
Greint hefur verið frá því í fréttum Ríkisút-
varpsins að upphæðin hlaupi á hundruðum
milljóna.
Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi FL
Group, segist ekki geta staðfest þetta. Upplýsing-
arnar séu ekki frá fyrirtækinu komnar, enda hafi
upphæðin ekki verið reiknuð. „Fyrir utan það að
„hundruð milljóna“ er engin tala. Það gæti þýtt tvö
hundruð milljónir eða níu hundruð milljónir. En
við vitum ekki upphæðina.“
Í þrjátíu ára gömlum starfslokasamningi
Sigurðar segir að hann skuli til æviloka hafa sjötíu
prósent þeirra launa sem hann hafði þegar hann lét
af störfum. Þau laun voru hins vegar ekki föst tala,
heldur tæplega áttatíu prósentum hærri upphæð
en meðallaun þeirra átta starfsmanna fyrirtækis-
ins sem hæstu launin höfðu.
Deilan snerist um það hvort kaupréttarsamning-
ar sem þeir starfsmenn hafa nýtt sér frá því að
þeir voru boðnir fyrst árið 2003 væru hluti af
launum þeirra. Héraðsdómur sagði svo ekki vera,
en Hæstiréttur sneri þeim dómi. Sigurður á því
von á ríflegum greiðslum vegna vangoldinna
eftirlauna frá árinu 2003.
Fulltrúar lögreglu
og Vinnumálastofnunar hafa átt
fundi að undanförnu vegna kæru á
hendur verktakafyrirtækinu
Formaco sem Vilhjálmur Birgis-
son, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, VLFA,
hefur lagt fram.
Vilhjálmur telur
að ekki sé farið að
reglum við
ráðningu erlendra
starfsmanna hjá
fyrirtækinu.
„Ég hef bent á
atriði þar sem ég
tel að ekki sé
farið að lögum.
Skráningu
mannanna er til
dæmis verulega ábótavant,“ segir
Vilhjálmur. Hann segir starfs-
mennina ekki með íslenska
kennitölu né dvalarleyfi þrátt fyrir
að hafa starfað hér á landi í hálft
annað ár.
Þetta er algjörlega andstætt
lögum og skekkir alla samkeppnis-
stöðu gagnvart öðrum fyrirtækj-
um,“ segir Vilhjálmur Birgisson.
Hefur kært
Formaco
Filippus prins, eiginmað-
ur Elísabetar Englandsdrottning-
ar, er dýrkaður sem guð af frum-
byggjaættflokki á eyju í
Vanúatú-eyjaklasanum í Suður-
Kyrrahafi.
Að því er greint er frá á frétta-
vef breska útvarpsins, BBC, hófst
þessi dýrkun á Filippusi upp úr
árinu 1960, en á þeim tíma var
Vanúatú enn bresk-frönsk nýlenda
og bar nafnið New Hebrides (Nýju
Suðureyjar). Í aldaraðir höfðu
íbúar á eynni Tanna trúað goð-
sögn um að sonur fjallsanda
myndi einn góðan veðurdag ber-
ast yfir hafið í leit að öflugri konu
til að kvænast. Samkvæmt goð-
sögninni yrði þessi guðumlíka
vera ljós á hörund, ólíkt heima-
mönnum.
Einhvern veginn fór svo að
þessi goðsögn var heimfærð upp á
Filippus prins – sem vissulega
hafði kvænst ríkri og voldugri
konu. Þessi trú hlaut byr undir
báða vængi þegar drottningin og
Filippus prins komu í opinbera
heimsókn til eyjaklasans árið
1974.
„Hann er guð, ekki maður,“
hefur fréttaritari BBC eftir Jack
Naiva, þorpshöfðingja á Tanna. 86
ára afmæli prinsins var fagnað
með mikilli veislu í þorpinu á
sunnudag.
Dýrka Filippus prins sem guð
Colin Powell,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
hann teldi ráðleg-
ast að loka
tafarlaust herfang-
elsinu við Guant-
anamo-flóa á Kúbu
og flytja fangana í
fangelsi í Banda-
ríkjunum.
Guantanamo-
fangelsið, þar sem
um 380 meintum „óvinveittum
bardagamönnum“ er nú haldið
föngnum í nafni „stríðsins gegn
hryðjuverkum“, hefur að sögn
Powells skaðað ímynd Bandaríkj-
anna í heiminum.
„Ef ég fengi einhverju um það
ráðið myndi ég loka Guantanamo.
Ekki á morgun, heldur strax í
dag,“ sagði hann.
Vill láta loka
Guantanamo
Rúmlega þrítugur maður
hefur verið handtekinn í Svíþjóð
grunaður um að hafa smitað tvær
stúlkur af HIV. „Við teljum að hann
hafi verið í sambandi við alls um
130 stúlkur og ungar konur sem
hann hitti á netinu,“ segir Diana
Sundin hjá lögreglunni í Stokk-
hólmi á vefútgáfu Aftonbladet.
Maðurinn notaði nafnið „Hot
Boy“ og eiga brotin að hafa átt sér
stað 2003-2006, meðal annars í
hverfinu Hässelby og Nynäs í
Stokkhólmi. Maðurinn, sem er
breskur ríkisborgari, hefur verið
HIV-jákvæður í fimmtán ár. Hann
er grunaður um gróft ofbeldi og
HIV-smitburð.
Smitaði tánings-
stúlkur af HIV
Bíll valt í Hvalfjarðargöng-
unum um kvöldmatarleytið í
gær. Var göngunum lokað af
þessum sökum á meðan hreins-
unarstarf fór fram.
Ein kona var í bílnum en hún
var komin úr honum þegar
lögreglu bar að. Hún er ekki talin
alvarlega slösuð. Ekki er vitað
hvað varð til þess að bíllinn valt.
Hvalfjarðar-
göngum lokað