Fréttablaðið - 11.06.2007, Side 8
Launa
miðan
s
Suma
rbón
us
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
11
25
Skafðu hér og þú getur
unnið 100.000 kr. á mánuði
næstu 120 mánuðina.
Alls 12 milljónir skattfrjálst!
Skafðu hér og
þú getur
unnið milljón
strax!
Fullt af glæsilegum aukavinningum
í boði fyrir þá sem taka þátt:
• Sólarlandaferð með Úrval Útsýn
• Borgarferð með Úrval Útsýn
• Flug innanlands með Flugfélagi Íslands
• Leikhúsmiðar í Borgarleikhúsið
• Gisting fyrir tvo á Hótel KEA
• Leikhúsmiðar hjá Leikfélagi Akureyrar
• Kvöldverður á Einari Ben
• Ísveisla frá Kjörís
• Bíómiðar í Háskólabíó
• Launamiðar
Ef þú færð ekki vinning
skefur þú hér og slærð inn
númerið á www.hhi.is
og ferð í lukkupottinn.
Mundu að geyma miðann.
Kíktu á www.hhi.is
1. útd
ráttu
r
13.jún
í!
Verum með
fallegar tær
í sumar!
NÝTT
Bylting í meðferð
á fótsveppi …
– sveppasýkingarlyfið
sem einungis
þarf að bera á
einu sinni!
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota
Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er
eingöngu ætlað til húð-meðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota
Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að
bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir algjöra
eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf.,
Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
Störfum á Reykja-
nesi mun fjölga um rúmlega eitt
þúsund ef 250 þúsund tonna álver
verður reist í Helguvík. Atvinnu-
tekjur munu aukast um rúma þrjá
milljarða og íbúunum fjölga um
hátt í tvö þúsund manns.
Forsenda íbúafjölgunar á Suður-
nesjum er að fyrir hvert starf sem
skapist vegna álversins fjölgi
íbúum um tvo. Þetta kemur fram í
nýrri úttekt Samtaka atvinnulífs-
ins. Þá er ætlað að skatttekjur
Reykjanesbæjar muni aukast um
fimmtung og verða rúmum 600
milljónum króna hærri en ella frá
árinu 2015 ef álver taki til starfa í
Helguvík. Skatttekjur annarra
sveitarfélaga á Suðurnesjum auk-
ist um tæpar 200 milljónir á ári og
á höfuðborgarsvæðinu aukist þær
um 100 milljónir.
Tekjuskattur til ríkisins muni
nema einum milljarði, trygginga-
gjald skili 270 milljónum og
tekjuskattgreiðslur fyrirtækis-
ins nemi 1-2 milljörðum króna á
ári.
Telja að störfum
fjölgi um þúsund
Þjónustuíbúðir fyrir
aldraða sem eru í byggingu á
Markarreit við Suðurlandsveg
kosta allt að 500 þúsund krónur á
fermetrann.
Eignarhaldsfélag Nýsis stendur
að byggingu þessara 78 þjónustu-
íbúða þar sem íbúðirnar kosta á
bilinu 31 til 68 milljónir. Dýrasta
íbúðin er 139 fermetrar og kostar
tæpar 68 milljónir. Hæsta fer-
metraverðið er nálægt 500 þús-
und krónum. Sambærilegar íbúð-
ir hjá Samtökum aldraðra kosta
um 20 milljónir; 200 þúsund á fer-
metrann miðað við 100 fermetra
íbúð.
Árið 2005 fékk sjálfseignar-
stofnunin Markarholt bygginga-
rétt á reitnum gegn greiðslu
gatnagerðargjalda. Nýsir keypti
Markarholt ári síðar og tók yfir
byggingaréttinn. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri sagði á
borgarráðsfundi að þessi fram-
kvæmd ætti ekki að skila arði til
eins eða neins heldur skila betri
og öruggari búsetuúrræðum fyrir
eldri borgara.
Staðgreiða skal andvirði íbúð-
arinnar og öðlast kaupandi með
því búseturétt til dauðadags. Við
uppsögn samnings endurgreiðir
Nýsir framreiknað virði íbúðar-
innar sem miðast við vísitölu
neysluverðs, breytingar á fast-
eignamati og breytingar á bruna-
bótamati. Af þessu dregst tveggja
prósenta umsýslugjald. Einnig fer
eitt og hálft prósent í afskriftir
fyrir hvert leiguár.
Samtök aldraðra stóðu fyrir
byggingu þjónustuíbúða við
Sléttuveg fyrr á þessu ári. Á fundi
sem haldinn var með íbúunum á
dögunum kom fram að meðalverð
íbúða var tæplega 21 milljón
króna og meðalfermetraverð því
innan við 130 þúsund krónur.
Ekki náðist í Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóra í gær.
Búseturéttur
til dauðadags
Einkafyrirtæki bjóða eldri borgurum upp á íbúðir
með búseturétti til dauðadags. Fyrirtækin fá lóðir
afhentar á lágmarksverði. Framkvæmdirnar eiga
ekki að skila arði, að mati borgarstjóra.