Fréttablaðið - 11.06.2007, Side 10
Opið á Kletthálsi 11
mánudaga til föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
100%
lán
af völdum
bílum
*
*
M
ið
að
v
ið
1
00
%
lá
n
fr
á
SP
F
já
rm
ög
nu
n.
Gott úrval Pajero Sport
á frábærum kjörum
Notaðir bílar í toppstandi!
Dráttarbeisli og sumar- og vetrardekk
fylgja öllum Pajero Sport jeppum
Nýlegir og góðir eldri Pajero Sport jeppar
á verði frá aðeins 1.190.000 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Froskalappir eru
upphaflega tékkneskt lostæti, en
ekki franskt eins og jafnan hefur
verið talið. Þetta fullyrða tékk-
neskir fornleifafræðingar. Þeir
segjast hafa fundið sönnun þess að
fornaldaríbúar Bæheims hafi
borðað froskalappir þegar fornar
leifar eldhúss voru grafnar upp
skammt frá Prag.
„Froskar gætu hafa leikið stórt
hlutverk í landbúnaðarsögu Mið-
Evrópumanna í fornöld,“ segir í
skýrslu fornleifafræðistofnunar
Prag-háskóla. Aðallega fundust
afturlappir karlkyns froska í
uppgreftrinum. Þær eru kjötmest-
ar og vinsælastar til átu.
Fyrri til froska-
áts en Frakkar
Hjallastefnan ehf. tekur
við rekstri leikskólans Laufás-
borgar í haust. Samningur þess
efnis var staðfestur í leikskóla-
ráði Reykjavíkurborgar á mið-
vikudag. Fulltrúar Samfylkingar-
innar og Vinstri grænna greiddu
atkvæði gegn samningnum.
Oddný Sturludóttir, fulltrúi
Samfylkingar, segir að Hjalla-
stefnan hafi blómstrað á Laufás-
borg á meðan hann var rekinn af
Reykjavíkurborg. „Það er algjört
einsdæmi að Reykjavíkurborg
afhendi fullbúinn og rótgróinn
leikskóla til einkaaðila,“ segir
Oddný. Hún segist ekki getað
skrifað undir að börn framtíðar-
innar á Laufásborg muni hugsan-
lega greiða hærri leikskólagjöld
en þau gera í dag.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
formaður leikskólaráðs Reykja-
víkurborgar, segir eftirspurn for-
eldra og starfsmanna eftir Hjalla-
stefnuleikskóla hafa verið mikla.
„Þetta er vernduð hugmynda-
fræði og það er ekki hægt að vera
með Hjallastefnuna án þess að
vera með allt heildarkerfið, sem
felur í sér annað rekstrarform,“
segir Þorbjörg og bætir við að öll
börn sem séu nú þegar á Laufás-
borg muni njóta sömu gjaldskrár
og áður.
Margrét Pála Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjallastefnunnar,
segir að það eigi eftir að koma í
ljós hvort heimild til hækkunar
gjaldskrár verði nýtt.
Óvíst með hækkun gjalda
Hæstiréttur hefur
staðfest dóm héraðsdóms þess
efnis að Mark Wells, forstjóri og
aðaleigandi fyrirtækisins
Aquanetworld, beri skaðabóta-
ábyrgð og eigi að borga Lesley
Patriciu Ágústsson til baka tæpar
2,7 milljónir króna sem hann hafi
blekkt hana til að festa í fyrirtæk-
inu.
Vilhjálmur Bergs lögmaður
segir að Lesley sé að vonum
ánægð með niðurstöðuna. „Hún
gerir sér þó ekki miklar vonir að
fjármunirnir fáist greiddir, þótt
innheimtutilraunum verði að
sjálfsögðu haldið áfram. Einkum
er um móralskan sigur að ræða
sem verður vonandi til þess að
stöðva þessa starfsemi hér á
landi,“ segir hann.
Forstjórinn
er ábyrgur og
greiði bætur
Landhelgisgæslan sótti hóp ungra kvenna á
Grænlandsjökul á laugardag. Hafði vinur kvennanna
haft samband við strandgæsluna í Clyde-firði í
Skotlandi vegna þess að hann hafði áhyggjur af þeim.
Konurnar voru við æfingar í ísklifri á jöklinum.
Átti flugvél frá Flugfélagi Íslands að sækja þær og
flytja til Íslands. Vélin var að undirbúa snjóflugs-
braut á jöklinum þegar hún féll niður um þunnt íslag
og festist. Ekki tókst að rétta hana við og leitaði
flugfélagið því eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan TF-LÍF var send til Grænlands og með
henni í för voru tveir flugvirkjar frá Flugfélagi
Íslands. Þeir voru síðan skildir eftir við vélina ásamt
flugstjóra á meðan þyrlan sótti konurnar í tjaldbúðir
þeirra.
Þyrlan lenti á Ísafirði rétt fyrir þrjú aðfaranótt
sunnudags eftir erfitt flug frá Grænlandi. Flugvélin
kom svo til landsins síðar um morguninn.
Flugfélag Íslands hefur á undanförnum vikum
flogið með farþega til og frá Grænlandi og höfðu
ferðirnar allar gengið vel fram að þessu.
Bandarísk stjórnvöld
hafa slakað á reglum sem varða
vegabréfaeftirlit. Hertar reglur
voru settar eftir árásirnar á
tvíburaturnana árið 2001. Þær
hafa valdið því að bandarískir
ferðalangar hafa þurft að bíða í
marga mánuði eftir að fá
vegabréf sín.
Nú þurfa bandarískir borgarar
ekki vegabréf til að ferðast til og
frá Kanada, Mexíkó, eyjunum í
Karíbahafi og Bermúda.
Slaka á reglum