Fréttablaðið - 11.06.2007, Side 12
Strandsiglingar eru hafnar á ný við
Ísland. Ari Axel Jónsson, eigandi fyrirtækisins
Dreggs, hefur keypt flutningaskip sem hvort
tveggja er ætlað til útflutnings og strandsiglinga í
kringum Ísland.
Skipið var vígt á Akureyri á föstudag við fjöl-
menni og hlaut nafnið Axel. Eftir vígsluna var haldið
til Ísafjarðar til að kynna skipið þar og náði blaða-
maður tali af Ara á stíminu þangað.
„Landsbyggðin er með hellingsmarkað og marga í
sömu stöðu og ég hefur dreymt um að hafa flutn-
ingaskip sem gengur hringinn í kringum landið,“
sagði Ari. „Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir
því að strandsiglingar eins og þær voru áður heyra
sögunni til.“ Skipið á því einnig að sinna útflutningi.
Það er frystiskip, er með 140 gámaeiningar og
aðstöðu fyrir lausavöru og er búið öflugum krönum.
„Þetta kostaði augun úr,“ svaraði Ari spurður um
verðið á skipinu. Stofnað hefur verið fyrirtækið
Dregg Shipping sem heldur utan um skipið. Ari er
eigandi þess en framkvæmdastjóri er Bjarni
Sigurðsson.
Heilbrigðiseftirlit
Vesturlands telur að þeir sem stóðu
að undirskriftum gegn hausa-
þurrkun Laugafisks á Akranesi
hafi haft fyrirtækið fyrir rangri
sök. Meint ólykt af starfsemi fyrir-
tækins hafi í raun stafað frá fiski-
mjölsverksmiðju HB Granda þar í
bænum.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu skrifuðu 603 íbúar á
Akranesi undir mótmælaskjal gegn
starfsemi Laugafisks og lögðu
meðal annars til að starfsemin yrði
flutt í iðnaðarhverfi fyrir utan
bæinn þar sem ólykt af hausa-
þurrkun fyrirtækisins væri óþol-
andi. Mótmælin beindust einnig
gegn miklum óþef frá fiskimjöls-
verksmiðju HB Granda.
Í ábendingum til Akraneskaup-
staðar segir Heilbrigðiseftirlit
Vesturlands að Laugafiskur hafi
lagt í nokkurn kostnað til að bæta
mengunarvarnir. Starfsemin hafi á
liðnum misserum farið að skilyrð-
um sem sett séu í starfsleyfi frá
heilbrigðiseftirlitinu. Kvörtunum
frá íbúum hafi fækkað mikið frá
því í lok árs 2004 er gerðar hafi
verið kröfur um að allt hráefni
kæmi ísað til vinnslunnar. Engin
kvörtun hafi borist á þessu ári og
heilbrigðiseftirlitið hafi aldrei
áminnt Laugafisk formlega.
Starfsemi fiskimjölsverksmiðju
HB Granda heyrir ekki undir heil-
brigðiseftirlitið heldur Umhverfis-
stofnun. Bæjaryfirvöld á Akranesi
bíða enn umsagnar stofnunarinnar
um HB Granda.
Ólyktin er ekki frá Laugafiski
Menntasjóður Kaup-
þings banka hefur ákveðið að
styrkja Háskólann á Bifröst um
30 milljónir króna. Frá þessu
greindi dr. Ágúst
Einarsson, rektor
Háskólans, í ræðu á
háskólahátíð þar
vestra í gær.
Helming fjárins á
að nota til nám-
skeiða í meistara-
námi í alþjóðlegum
banka- og fjármála-
fræðum en hinn
helminginn skal nota til að ráða
erlenda kennara og til rannsókna,
útgáfu og ráðstefnuhalds.
„Það er mikilvægt að hin öflugu
fyrirtæki í landinu styrki skólana
með þessum hætti og þetta er
höfðinglegt framlag Kaupþings
banka,“ segir Ágúst.
Kaupþing
styrkir Bifröst
Leiðtogi stjórnarandstöðu-
flokks á Spáni hyggst flytja
frumvarp þess efnis að skipuð
verði nefnd sem hefði það
hlutverk að semja texta við
þjóðsöng Spánverja.
Þjóðsöngurinn var tekinn upp
síðla á átjándu öld. Honum hefur
aldrei fylgt texti, þrátt fyrir
fjölda tilrauna til að semja einn
slíkan.
Mariano Rajoy, flutningsmaður
frumvarpsins, segir að þing-
nefndin ætti að geta samið laglegt
vers við þjóðsönginn á tveimur til
þremur vikum. Margir hafa þó
líst efasemdum um að nefnd geti
valdið svo listrænu verki.
Nefnd semji ljóð
við þjóðsönginn