Fréttablaðið - 11.06.2007, Síða 19
Helga Lára Pálsdóttir, þjónustufulltrúi Voda-
fone, tekur á móti hundrað samtölum á anna-
sömum degi.
„Við fáum þúsund til fimmtán hundruð símtöl í þjón-
ustuverið daglega. Eftirminnilegast er maðurinn sem
komst ekki á þráðlausa netið uppi í sumarbústað og
maðurinn sem vildi fá okkur til að kveikja á síma konu
sinnar sem var stödd uppi á hálendinu,“ segir Helga
Lára Pálsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Vodafone. Hún
segir þó flestar spurningar snúast um frelsisnotkun,
reikninga og stillingar fyrir GSM og GPRS.
Þjónustufulltrúarnir kynnast allri flóru mannlífsins
að sögn Helgu Láru. Langflestir eru viðkunnanlegir en
nokkuð samtaka á erfiðum degi.
„Íslendingar fara í skap saman. Við finnum fyrir
því að suma daga eru allir í góðu skapi og enn aðra
eru allir móðgaðir. Þetta tengist helst útborgunar-
degi og veðrinu. Síðan virðast fólk líka vera pirraðra í
kringum fullt tungl,“ segir Helga Lára og segir fólkið
sem brosir í gegnum símann vera helsta kostinn við
starfið.
„Það er ofsalega gaman þegar maður fær tækifæri
til að gefa af sér. Þá grípur maður gæsina og bros-
ir með fólki,“ segir Helga Lára, sem meira að segja
hefur bakað fyrir viðskiptavin.
„Við vorum með smáhnökra á reikningi hjá einum
viðskiptavini. Hann efaðist um að þetta yrði í lagi en
þá lofaði ég honum súkkulaðiköku ef þetta myndi ekki
lagast. Næsta mánuð var þetta enn í ólagi og þá vissi
ég að hann myndi stríða mér það sem eftir væri. Svo
ég bakaði bara kökuna og færði honum, eins og ég
hafði lofað,“ segir Helga Lára hlæjandi.
Viðskiptavinurinn var að vonum ánægður og sendi
Helgu Láru þakkarbréf. „Hann var alltaf svo ofsalega
kurteis og skemmtilegur að ég hafði bara gaman af
þessu. Ég held samt að ég eigi eftir að hugsa mig um
áður en ég lofa fleiri kökum upp í ermina á mér,“ segir
Helga Lára brosandi.
Pirringur á fullu tungli
Opnunartími : mánudagurinn 11.júni til föstudagsins
15 júní frá kl.11-18
frábært tilboð af sokkabuxum og nærfötum.
50 % afsl. af öllum vörum,
Lyngási 11 Garðabæ
ÚTSÖLUMARKAÐUR
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 23.4.2007.
3,4%
Þannig er mál
með vexti ...
... að það er hægt að létta greiðslubyrðina.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
SAMANBURÐUR Á LÁNUM
MYNTKÖRFULÁN *** BLANDAÐ LÁN ** ÍBÚÐARLÁN
LÁNSUPPHÆÐ 20.000.000 20.000.000 20.000.000
VEXTIR 4,0% * 4,4% * 5,0%
GREIÐSLUBYRÐI**** 66.500 100.800 96.600
* M.v. 1. mánaða Libor vexti 23.04.2007. ** 50% íbúðarlán/50% erlent lán í CHF og JPY.
*** Vextir á erlendri myntkörfu ráðast af veðsetningu og myntsamsetningu og eru á bilinu 3,4% til 4,5% m.v. myntkörfu 4.
**** Mánaðarlegar afborganir fyrsta árið, lánstími 40 ár, einungis greiddir vextir af myntkörfuláninu fyrstu þrjú árin, án verðbóta eða gengisbreytinga.
Reiknaðu út hvernig
greiðslubyrði þín lækkar á
www.frjalsi.is eða hafðu
samband í síma 540 5000.