Fréttablaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 20
Nú hefur Electronic Arts gefið
út The Sims 2 H&M Fashion
Stuff. Hægt er að hanna sín
eigin föt og búa til búðir.
Það er alltaf jákvætt þegar tölvu-
leikir ganga út á eitthvað annað en
að drepa eða skora mörk. Einn þess-
ara leikja er The Sims. Electronic
Arts hitti í mark með seríunni
og nú á að blóðmjólka hugmynd-
ina, en fyrirtækið hefur gefið út
aukapakka fyrir The Sims 2 undir
merkjum verslanakeðjunnar
H&M. Ættu íslenskar stúlkur þá að
gleðjast.
The Sims 2 H&M Fashion Stuff
leyfir notendum að búa til sín eigin
föt fyrir Simsana sína, líkja eftir
H&M búðum eða búa til nýjar.
„Með því að sameina framsækið
tískufyrirtæki og leikjasamfélag
sem þekkt er um allan heim fyrir
notandaframleitt innihald gefst
fólki tækifæri tjá bæði persónu-
leika sinn og sköpunargleði,“ segir
Steve Seabolt hjá Electronic Arts
Notendum gefst tækifæri á að
taka þátt í hönnunarkeppni þar
sem vinsælustu fötin verða svo
sýnd í sérstakri tískusýningu á net-
inu. „Við erum mjög spenntir yfir
því að H&M skuli vera fyrsta stóra
merkið til þess að taka þátt í Sims
ævintýrinu á þennan hátt,“ segir
Jörgen Andersson, markaðsstjóri
H&M. „Fyrir okkur er þessi viðbót
skemmtilegt tækifæri til þess að
kynnast viðskiptavinum okkar og
sýna brot af sumarlínunni okkar.
Sims-spilarar eru þekktir fyrir
sköpunargleði, tjáningu og snjall-
ræði og hlökkum við til að sjá þá
hönnunarstíla sem munu detta inn
á sýningargólfið.“
H&M í The Sims 2
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is