Fréttablaðið - 11.06.2007, Síða 40
Í dag fer fram hátíð-
arfundur stjórnar handknatt-
leikssamband Íslands, sem fagn-
ar á þessu ári fimmtíu ára afmæli
sínu. Mikið verður um hátíðarhöld
allt árið en sérstaklega um næstu
helgi.
Á laugardaginn fer fram mót-
taka í Þjóðmenningarhúsinu þar
sem forseti Íslands, ráðherrar,
borgarstjóri, erlendir gestir og
forráðamenn úr íþróttahreyfing-
unni verða meðal gesta. Á sunnu-
dag, á lýðveldisdaginn, mætir ís-
lenska karlalandsliðið Serbum í
Laugardalshöll í forkeppni EM í
Noregi á næsta ári.
„Fundurinn í dag er formlegur
stjórnarfundur eins og allir aðrir
en það verður meiri hátíðarbragur
á þessum. Það sem rætt verður er
í tengslum við afmælisárið,“ sagði
Guðmundur Ágúst Ingvarsson,
formaður HSÍ.
Meðal þess sem er á dagskrá er
stofnun verkefnasjóðs Árna Árna-
sonar, fyrsta formanns HSÍ, sem
og stofnun Landsliðsfélags HSÍ,
en að því eiga allir þeir sem spilað
hafa landsleiki fyrir Íslands hönd
aðild.
„Verkefnasjóðurinn er stofnað-
ur að frumkvæði Árna Árnasonar,
fyrsta formanns HSÍ, og verður
hann notaður í ýmiss konar verk-
efni á vegum HSÍ. Nú þegar hafa
einhver framlög komið í sjóðinn
en við vonumst til að fá fé í sjóð-
inn með einum eða öðrum hætti,
til dæmis með framlögum eða
tekjustofnum,“ sagði Guðmundur.
„Þetta er nokkuð sem á eftir að
útfæra betur og verður tilkynnt
eftir fundinn í dag.“
Hann segir tilefni þess að bjóða
til mótttöku í Þjóðmenningarhús-
inu sé fyrst og fremst að gleðj-
ast með því fólki sem starfað hafi
með og stutt sambandið í gegnum
tíðina.
„Það er ekki miklu kostað til
þessara hátíðarhalda en fyrst og
fremst er þetta gert af mikilli
virðingu til handa þeim sem hafa
starfað með sambandinu. Við von-
umst fyrst og fremst til þess að
fólk verði ánægt og fúst og vilj-
ugt til þess að starfa með okkur
áfram.“
Guðmundur sat vitanlega
límdur við skjáinn á laugardag er
landsliðið tapaði með einu marki
fyrir Serbum ytra. „Það var algjör
óþarfi að tapa þessum leik, við
áttum að geta tekið þetta. En þetta
eru síður en svo slæm úrslit og ég
er alveg klár á því að við munum
vinna hér heima með meiri mun.“
Hann segir að Alfreð Gíslason
verði áfram fyrsti kostur sinn
í starf landsliðsþjálfara en Al-
freð hefur áður sagt að leikur-
inn gegn Serbum í Laugardals-
höll verði sinn síðasti með lands-
liðinu. Alfreð býr í Þýskalandi þar
sem hann þjálfar úrvalsdeildarlið
Gummersbach.
„Ég held að honum þyki þetta
afar skemmtilegt starf og er hann
sá albesti sem við getum fengið til
starfsins. En hann hefur þó sagt
að hann ætli ekki að halda áfram.
Við sjáum hvað setur.“
Handknattleikssamband Íslands fagnar á þessu ári fimmtíu ára afmæli sam-
bandsins. Í dag verður hátíðarfundur stjórnar HSÍ þar sem verkefnasjóður Árna
Árnasonar verður stofnaður sem og félag allra þeirra sem spilað hafa landsleiki.
Hef aldrei spilað fyrir jafn marga áhorfendur
Kári Árnason var á skot-
skónum í gær fyrir danska 1.
deildarliðið AGF sem vann 2-1
sigur á Næstved á útivelli. Kári
skoraði fyrsta mark leiksins á 52.
mínútu og lék allan leikinn. AGF
bætti við öðru marki á 90. mínútu
áður en Næstved klóraði í bakk-
ann með marki í uppbótartíma.
Fredericia, helsti keppinautur
AGF um annað sæti deildarinnar,
tapaði sínum leik í gær og er því
AGF í góðri stöðu, með þriggja
stiga forskot á Fredericia þegar
tvær umferðir eru eftir. AGF
á meira að segja leik til góða,
gegn Ølstykke á miðvikudag.
Sigur í þeim leik fer langt með að
tryggja úrvalsdeildarsætið.
Lyngby tryggði sér í gær úr-
valsdeildarsæti en liðið er með
átta stiga forystu á AGF á toppi
deildarinnar.
AGF nálgast
úrvalsdeildina
Norska úrvalsdeildin
Spænska úrvalsdeildin
Sænska úrvalsdeildin
Forkeppni EM 2008
Lewis Hamilton vann í
gær sinn fyrsta sigur í Formúlu 1
er hann fagnaði sigri í kanadíska
kappakstrinum. Hann byrjaði á
ráspól og lét forystuna aldrei af
hendi.
Kappakstursins verður ekki
síður minnst fyrir þann fjölda
óhappa sem átti sér stað. Pólverj-
inn Robert Kubica fór hvað verst
út úr sínu óhappi en hann fót-
brotnaði eftir að hafa klesst BMW-
bíl sínum á tvo veggi. Bíllinn gjör-
eyðilagðist og má þakka fyrir að
ekki fór verr.
Nick Heidfeld á BMW varð
annar og Alexander Wurz á Willi-
ams þriðji. Hamilton hefur keppt í
sex Formúlu 1-keppnum og komið
sér á verðlaunapall í þeim öllum.
Hann er nú með sex stiga forskot
á liðsfélaga sinn, heimsmeistar-
ann Fernando Alonso, sem náði að-
eins sjöunda sæti í gær.
„Ég hef verið tilbúinn fyrir
þennan sigur í þó nokkurn tíma.
Það var bara spurning um stað
og tíma,“ sagði Hamilton, sem er
ekki nema 22 ára gamall.
Finninn Heikki Kovalainen náði
fjórða sæti þrátt fyrir að hafa
klessukeyrt bifreið sína í tíma-
tökunni og byrjað aftast í röðinni.
Hann nýtti sér hins vegar innkomu
öryggisbílsins vel. Aðrir fengu að
kenna á inngripunum, þeirra á
meðal Felipe Massa og Giancarlo
Fisichella sem voru báðir dæmdir
úr leik fyrir að fara úr viðgerðar-
svæðinu þegar útkeyrslunni var
lokað.
Kimi Raikkönen varð fimmti í
keppninni.
Hamilton vann sinn fyrsta sigur