Fréttablaðið - 11.06.2007, Qupperneq 42
Það var ekki boðið upp á
neina hágæðaknattspyrnu þegar
Framarar heimsóttu HK í Kópa-
voginum í gær. Jón Þorgrímur
kom HK yfir snemma leiks þegar
hann renndi boltanum í tómt mark-
ið. Þórður vann boltann af Hannesi
markmanni og Fram hefur þar með
lent undir í öllum leikjum sumars-
ins. Fram var einum færra þegar
það fékk markið á sig þar sem Egg-
ert Stefánsson þurfti að fara af
velli vegna meiðsla og varamaður-
inn var ekki kominn inn á.
Fyrri hálfleikurinn var ekki
mjög líflegur en HK var betri aðil-
inn. Frömurum gekk einkar illa að
koma sér í færi og tvö skot þeirra á
markið átti Gunnleifur ekki í nein-
um vandræðum með. Leikmenn
HK voru frískari án þess þó að
reyna mikið á Hannes í markinu.
Ólafur Þórðarson blés baráttu-
anda í sína menn í hálfleiknum þar
sem lærisveinar hans í Fram voru
aðeins frískari en í þeim fyrri.
Ólafur hefði mátt taka að sér að
blása lífi í leikinn en ekkert mark-
vert gerðist framan af síðari hálf-
leik. Eins og þruma úr heiðskíru
lofti skoraði Rúnar Páll glæsi-
legt mark með viðstöðulausu skoti
utan teigs. Jónas Grani minnkaði
muninn aðeins rúmri mínútu síðar
og Framarar gerðu hvað þeir gátu
til að jafna.
Það tókst ekki og góður sigur
HK staðreynd. „Við erum virki-
lega ánægðir með sigurinn. Við
vorum ánægðir með byrjun móts-
ins áður en Keflavík og FH kýldu
okkur niður en þetta er fínn kar-
akter hjá ungu liði að vinna þenn-
an leik. Við erum ekki neitt annað
en liðsheildin og vonandi fleytir
hún okkur langt í sumar,“ sagði
Jón Þorgrímur eftir leikinn.
„Gamla reynsluleysið sýndi sig
í síðari hálfleik þegar við ætluð-
um bara að halda fengnum hlut.
Tímabilið er reynslubrekka og við
sönkum að okkur reynslunni með
hverju skrefi. Við erum með ungt
og efnilegt lið og erum bara að fara
vaxandi. Því fleiri leiki sem við
spilum, því betur spilum við og þá
hölum við inn stig eftir því,“ sagði
maður leiksins að lokum.
Við erum ekkert annað en liðsheildin
Fylkismenn komu í gær
í veg fyrir að Íslandsmeistar-
ar FH myndu stinga af í Lands-
bankadeild karla þegar þeir urðu
fyrsta liðið til að taka stig gegn
Hafnarfjarðarliðinu. FH hefði
náð sex stiga forskoti með sigri.
Liðin gerðu markalaust jafntefli
í Kaplakrika en fengu bæði ágæt
færi til þess að fá meira út úr
þessum leik. FH-ingar voru betri
í fyrri hálfleik en áttu oft í vök
að verjast eftir hlé þegar skyndi-
sóknir Árbæinga fóru að opna FH-
vörnina hvað eftir annað.
Fylkismenn mættu mjög
grimmir til leiks, fóru af miklum
krafti í öll návígi, pressuðu vel
og voru oft að koma FH-ingum í
vandræði. Þegar leið á hálfleik-
inn fóru FH-ingar aftur á móti að
ná tökum á leiknum og gerðust
nokkrum sínnum hættulegir upp
við Fylkismarkið. Í stað þess að
klára leikina í seinni hálfleik eins
og oft áður fóru að sjást brotalam-
ir á leik FH-liðsins í seinni hálfleik
því á sama tíma og þeim gekk lítið
sem ekkert að opna Fylkisvörn-
ina voru skyndisóknir Fylkisliðs-
ins hvað eftir annað að skapa góð
tækifæri hinum megin.
Fylkismenn voru ávallt skeinu-
hættir, skyndisóknir liðsins voru
vel skipulagðar og hvað eftir
annað komu þeir FH-vörninni í
opna skjöldu.
Harkan var mikil í leiknum og
Ólafur Ragnarsson dómari leyfði
alvöru tæklingar. Það varð þó
allt vitlaust þegar sjö mínútur
voru eftir því upp úr sauð á milli
þeirra Vals Fannars Gíslasonar
og Tryggva Guðmundssonar sem
endaði með því að þeir voru báðir
reknir í sturtu með rautt spjald.
Matthías Guðmundsson fékk
reyndar algjört dauðafæri í blá-
lokin en Fjalar Þorgeirsson varði
frá honum og varð þar með fyrsti
markvörður deildarinnar sem
heldur hreinu gegn Matthíasi í
FH-búningnum.
„Við vorum að spila ágætan
fyrri hálfleik og fengum færi til
að skora. Í seinni hálfleik hættum
við að spila fótbolta og fórum að
hugsa um hluti sem koma fótbolta
ekki mikið við. Við fórum að ergja
okkur á dómgæslunni og fórum að
ergja okkur á andstæðingnum. Við
fórum í óþarfa vitlausu en fengum
samt færin til þess að klára þenn-
an leik,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari FH. „Fylkisliðið spil-
ar mjög skipulega og spilar svolít-
ið fast og við réðum ekki við það.
Það er nóg eftir af þessu móti og
það eru ekki himinn og jörð að
farast þótt við töpum stigum. Það
hefur gerst á hverju ári síðan fót-
boltinn byrjaði og við erum ekki
að fara á taugum yfir því,“ sagði
Ólafur að lokum.
Fylkismaðurinn Haukur Ingi
Guðnason var einn allra besti
maður vallarins í seinni hálf-
leik þegar Fylkismenn voru að
spila mjög vel. „Ég er hálfsvekkt-
ur með að hafa ekki tekið öll þrjú
stigin með okkur. Við fengum alla-
vega færi í síðari hálfleik til þess
að klára þennan leik. Við komum
svolítið óöruggir í fyrri hálf-
leik en síðan náðum við að vinna
okkur inn í leikinn jafnt og þétt.
Mér fannst við vera betri aðilinn
í seinni hálfleik. Við komum hing-
að með eitt stig og vorum harð-
ákveðnir að fara ekki með færri
stig en það. Það tókst en það hefði
verið gaman að ná í öll þrjú stig-
in og verða fyrsta liðið til þess að
vinna þá. Við erum allavega fyrsta
liðið til að stoppa sigurgöngu
þeirra,“ sagði Haukur Ingi.
FH-ingar töpuðu fyrstu stigum sínum í Landsbankadeild karla í sumar þegar þeir gerðu markalaust jafntefli
við Fylki í Kaplakrika í gær. Fylkismenn voru mun betri í seinni hálfleik en fóru þá illa með upplögð færi.
Ástandið hjá KR versn-
ar með hverjum leik en liðið er
með eitt stig eftir fimm leiki. Í
gær tapaði KR fyrir sprækum
Skagamönnum, 3-1. ÍA var mun
betra liðið og vann verðskuldað-
an sigur.
Margir biðu spenntir eftir að
sjá hvort og þá hvaða breyting-
ar Teitur Þórðarson myndi gera á
KR-liðinu. Hann ákvað að halda í
4-3-3 leikkerfið en setti Henning
fram í stað Björgólfs og Óskar
Örn á vinstri kantinn.
Eins og svo oft áður í sumar
byrjaði KR-liðið frísklega. Það
var áberandi að leikmenn reyndu
að spila boltanum fram völlinn í
stað stanslausra kýlinga eins og
svo oft í sumar. Það gekk þokka-
lega en að sama skapi gekk KR-
ingum ekkert að koma Rúnari
Kristinssyni í leikinn. Það fjaraði
fljótt undan leik KR og þá tóku
heimamenn völdin.
Bjarni Guðjónsson var í fanta-
formi og átti miðjuna. Byggði
upp allt spil ÍA og var duglegur
að hjálpa til í vörninni. Jón Vil-
helm var einnig sprækur en hann
lagði upp bæði mörk Skagamanna
í fyrri hálfleik. Áhöld voru þó um
hvort Helgi Pétur hefði skorað
með hendinni. Staðan í leikhléi 2-
0 og forysta heimamanna verð-
skulduð.
ÍA gerði út um leikinn eftir að-
eins þrettán sekúndur í síðari
hálfleik þegar Dean Martin brun-
aði upp kantinn og lagði hann í
teiginn þar sem Kári Steinn var
einn og yfirgefinn og negldi síð-
asta naglann í kistu KR-inga.
KR-ingar reyndu af veikum
mætti að koma sér inn í leik-
inn eftir þriðja markið en féllu
í gamla farið og kýldu látlaust
fram völlinn. Það skilaði litlu og
KR var ekki nálægt því að skora
fyrr en Björgólfur minnkaði
muninn í uppbótartíma.
Það eru lítil sem engin bata-
merki á KR-liðinu og fátt virðist
hafa breyst í landsleikjafríinu.
Það er eflaust ekki upplífgandi
tilhugsun hjá Teiti að fá Íslands-
meistara FH í næsta leik en hann
hlýtur að hugsa sinn gang þessa
dagana enda er eitthvað mikið að
í herbúðum KR.
Guðjón Þórðarson er aftur á
móti á réttri leið með ÍA sem
sýnir stöðugar framfarir, leik-
menn leggja sig alla í verkefn-
ið. Liðið er vel spilandi þar sem
Bjarni Guðjónsson stýrir leik
liðsins eins og hershöfðingi og
skrítið að hann skuli ekki koma til
greina í landsliðið þar sem mikill
skortur er á spilandi miðjumönn-
um.
KR-ingar kafsigldir af Skagamönnum