Fréttablaðið - 11.06.2007, Qupperneq 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Myndlist er aðaláhugamálið mitt
og ég hef verið að hanna tattú
fyrir fólk í nokkur ár. En mig vant-
aði alltaf pening til að fara í mynd-
listarskóla svo ég dreif mig í húð-
flúrsnám í Bandaríkjunum. Ég
er í raun að skapa mér atvinnu í
myndlist,“ segir Málfríður Sigrún-
ardóttir, sem ætlar innan skamms
að opna húðflúrstofu á Ísafirði.
Málfríður, sem er tvítug, lærði í
World Only Tattoo School í Detroit.
„Fólk verður að hafa myndlist-
arbakgrunn til að komast inn í
skólann því þar er ekki kennt að
teikna. Ég hafði þann bakgrunn
en lærði svo allt um það sem snýr
að vélinni og hreinlætis- og heil-
brigðismálum.“
Þótt Málfríður ætli sér ekki að
opna húðflúrstofuna fyrr en um
miðjan mánuðinn eru pantanir
þegar farnar að streyma inn.
„Það er fólk á öllum aldri sem er
að panta tíma, allt frá sextán ára
aldri og upp í sextugt. Það er nóg
að gera í þessu hér, það vantar
ekkert upp á það.“
Opnar húðflúrstofu á Ísafirði
„Það er helst Red Hot Chili
Peppers eða eitthvað í þeim
dúr.“
Íslensku keppendurnir á Smá-
þjóðaleikunum í Mónakó, sem
lauk á sunnudaginn var, nutu lífs-
ins á milli æfinga og keppna um
borð í einu glæsilegasta skemmti-
ferðaskipi heims, Crystal Harm-
ony.
Vegna skorts á hótelherbergjum
í Mónakó brugðu skipuleggjendur
leikanna á það ráð að leigja heilt
skemmtiferðaskip fyrir alla kepp-
endur leikanna, sem eru á annað
þúsund talsins. Skipið stóð á besta
stað við höfnina í Mónakó og segir
Örn Andrésson, aðalfararstjóri ís-
lenska hópsins, að þessi gisting-
armáti sé nokkuð frábrugðin hinu
„hefðbundna“ hótellífi en jafn-
framt mun betri sem slíkur.
„Krakkarnir voru mjög ánægðir
með þetta. Þau hafa ferðast víða
og prófað margt en þetta er með
því skemmtilegra sem þau hafa
lent í,“ segir Örn.
Miðað við vistarverur á Harm-
ony ætti ánægja íslenska hóps-
ins ekki að koma á óvart. Í skip-
inu eru tvær sundlaugar, spilavíti,
lítil verslunarmiðstöð, tugir veit-
inga- og skemmtistaða, bókasafn,
kvikmynda- og leikhús. Helsta
stolt skipsins er hins vegar 1000
fermetra líkamsræktarstöð og
baðstofa sem innréttuð er í Feng
Shui-stíl, þar sem boðið er upp á
allar tegundir af nuddi og dekri
nánast hvenær sólarhringsins
sem er.
Einnig má finna golfhermi og
púttvöll, skvassvöll og bókasafn,
og þá er einnig er starfræktur
vín- og vindla klúbbur á skipinu.
„Það væsir ekki um mann,“
sagði Magnús Þór Gunnarsson,
leikmaður íslenska körfubolta-
liðsins. „Verslunarmiðstöðin og
spilavítið voru ekki opin fyrir
keppendur en það var samt hægt
að finna sér nóg til afþreyingar.
Við kvörtuðum í það minnsta
ekki.“ Forsetahjónin Ólafur Ragn-
ar Grímsson og Dorrit Moussai-
eff heimsóttu skipið ásamt Albert
prins í fyrradag og heilsuðu upp á
íslenska hópinn.
SMS
LEIKUR
SENDU SMS JA 2HO
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR
OG MARGT FLEIRA!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
HEIMSFRUMSÝND 8. JÚNÍ
STRANGLEGA BÖNNUÐ
Þorsteinn J. Vilhjálmsson er að
leggja lokahönd á nýja mynd sem
heitir The Bohemians. Myndin
fjallar um félagsskap
karla í Dublin sem
hittast einu sinni
í viku í þeim til-
gangi að syngja
hver fyrir annan.
Félagsskapur-
inn var stofnað-
ur árið 1897 og
skipar um 150 manns, flesta á átt-
ræðis eða níræðis aldri.
„Kjarninn í þessu er orð sem eru
orðin innihaldslaus og hallærisleg,
það er vinátta og að njóta samvista
hver við annan,“ segir Þorsteinn.
„Þessi ástríða fyrir söngnum og
tónlistinni er mjög merkileg því
það eru bæði í félaginu söngvar-
ar sem syngja og líka þeir sem eru
„non-performance“, sem eru bara
með til að njóta tónlistarinnar. Það
eru allir með, hvort sem þeir leggja
eitthvað af mörkum eða ekki.“
Að sögn Þorsteins er félagsskap-
urinn karlavígi þar sem haldið er í
gamlar hefðir. „Konur fá ekki að-
gang að skemmtunum klúbbsins
nema tvisvar á ári þegar þeim er
boðið í dinner.“
Þorsteinn heyrði fyrst af félags-
skapnum í gegnum írskan vin sinn.
Kom sér í samband við félagið og
fékk að mynda eina kvöldstund. Í
myndinni er rætt við og hlustað á
tóna söngfuglanna sem og fyglst
með þegar ungur konsertpíanisti
er boðinn velkominn í hópinn.
Þorsteinn er að leggja lokahönd
á myndina en hann hefur setið
sveittur yfir klippingum síðustu
mánuði. Brot úr myndinni má sjá
á heimasíðu hans, thorsteinnj.is,
en ætlunin er að frumsýna mynd-
ina í sjónvarpi eða kvikmyndahúsi
í september.
Kvikmyndar söngelska karlmenn
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI