Fréttablaðið - 22.06.2007, Page 43
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2007 7suðurland fréttablaðið
Á laugardaginn verður hald-
ið fremur sérstakt mót á
vegum Knattspyrnufélags
Árborgar. Keppt verður í
mýrarbolta, sem minnir oft
frekar á leðjuslag en knatt-
spyrnu.
Mýrarbolti er uppruninn í
Finnlandi en síðustu ár hafa
verið haldin árleg mót á Ísa-
firði. Þetta verður í fyrsta
sinn sem slíkt mót er haldið
á Suðurlandi.
Keppt er í sex manna
liðum og eru glæsileg verð-
laun veitt. Bestu karla- og
kvennaliðin fá verðlaun en
einnig verða bestu búning-
arnir og drullugasti leik-
maðurinn verðlaunaðir sér-
staklega.
Mótið mun fara fram á
Selfossi á laugardag.
Mýrarbolta-
mót á Selfossi
Mýrarbolti minnir oft frekar á
leðjuslag en fótbolta.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eyjamönnum fer fjölgandi
samkvæmt nýjum tölum.
Þeir eru nú 4094 talsins og
eru það fimmtán fleiri en
bjuggu í Vestmannaeyjum í
fyrra.
Frá öðrum desember 2006
hafa 96 manns flutt til Eyja
en 94 fluttu í burtu. Á þessu
tímabili hafa 15 manns látist
en 26 börn hafa fæðst.
Eyjamenn hafa á undan-
förnum árum reynt að vinna
gegn fólksfækkun á svæð-
inu og eru þetta því góðar
fréttir fyrir bæinn.
Fjölgun í Vest-
mannaeyjum
Íbúum Vestmannaeyja fer fjölg-
andi samkvæmt nýjum tölum.
Jónsmessuhátíð er á Eyrarbakka
á laugardaginn, níunda árið í röð.
Er það til siðs að hittast á Jóns-
messunni og gera sér dagamun
og leita töfragrasa og náttúru-
steina. Dagskráin hefst klukkan
níu að morgni og stendur fram á
kvöld. Í boði er fróðleiksferð um
vesturhluta Eyra, listasýning El-
vars Guðna listamanns á Stokks-
eyri, leikir fyrir börnin, sýnd-
ur verður þjóðdans og endað á
Jónsmessubrennu. Dagskráin er
þétt yfir daginn og nokkuð víst
að mikið líf verður á Eyrarbakka.
Ætla jafnvel nokkrir Eyrbekking-
ar að opna híbýli sín upp á gátt og
taka á móti gestum og gangandi
í spjall og spekúleringar um lífið
og tilveruna.
Þeir sem opna gáttir eru meðal
annars Kristín Vilhjálmsdótt-
ir á Túngötu 45. Hjá henni verð-
ur Nína frænka hennar í heim-
sókn með gítarinn. Elsa, Pjetur og
fjölskyldan í Sólvangi sýna hesta
og gítarinn verður tekinn fram.
Nöfn þeirra sem munu hafa opið
hús ásamt upplýsingum um dag-
skrá má lesa á vefsíðunni www.
eyrarbakki.is
Jónsmessunótt á Eyrarbakka
Jónsmessan verður haldin hátíðleg
á Eyrarbakka á laugardaginn.
Aldrei er að vita nema menn velti
sér naktir upp úr dögginni næsta
morgunn.
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA · SÍMI 440 1200
REYKJAVÍK · AKUREYRI · HAFNARFIRÐI · KEFLAVÍK · SELFOSSI · HORNAFIRÐI · EGILSSTÖÐUM
VIRKA DAGA KL. 8–18
LAUGARDAGA KL. 10–14
OPIÐ BÍLDSHÖFÐA
Ti
lb
o
ð
ið
g
ild
ir
ti
l 1
. j
úl
í e
ð
a
á
m
eð
an
b
irg
ð
ir
e
nd
as
t.
20% AFSLÁTTUR
AF FERÐABOXUM
22.300,-
TILBOÐ
R BX, 310 lítrar
820 691231
27.900,-
39.900,-
TILBOÐ
Triton, 380 lítrar
820 731816
49.900,-
43.100,-
TILBOÐ
Triton, 430 lítrar
820 731846
53.900,-
... og allur ferðabúnaður kemst á toppinn